Ekkert breyst í 22 ár

Beckham-hjónin hafa verið gift í 22 ár. David Beckham birti …
Beckham-hjónin hafa verið gift í 22 ár. David Beckham birti gamlar og nýjar myndir af fjölskyldu sinni á Instagram. Samsett mynd

Stjörnu­hjón­in Dav­id og Victoria Beckham fögnuðu 22 ára brúðkaup­saf­mæli um síðustu helgi. Þau hafa vissu­lega elst eins og annað fólk þótt þykkt­in á hár­inu segi annað. Sumt hef­ur þó ekk­ert breyst eins og hvernig þau klæða sig í stíl hvort við annað. 

„22 árum seinna, enn í föt­um í stíl,“ skrifaði knatt­spyrnu­hetj­an á In­sta­gram þegar hann óskaði spúsu sinni til ham­ingju með dag­inn. „Til ham­ingju með brúðkaup­saf­mælið, ég elska þig svo mikið og takk fyr­ir að gefa mér þessi frá­bæru börn svo við get­um öll verið í eins föt­um.“

Dav­id Beckham birti eft­ir­minni­leg­ar mynd­ir af þeim hjón­um í fjólu­blá­um föt­um úr brúðkaup­inu og í eins leður­göll­um. Hann þurfti ekki að grafa lengi og fann nýrri mynd­ir af þeim hjón­um þar sem þau voru bæði í föt­um í ensk­um sveita­stíl. Á ann­arri mynd voru þau bæði í brún­um bux­um og hvít­um bol. Á síðustu mynd­inni var öll fjöl­skyld­an sam­an­kom­in í eins nátt­föt­um en hjón­in eiga fjög­ur börn. 

Öll fjölskyldan í eins náttfötum.
Öll fjöl­skyld­an í eins nátt­föt­um. Skjá­skot/​In­sta­gram
View this post on In­sta­gram

A post shared by Dav­id Beckham (@dav­idbeckham)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda