Barnabarn Grace Kelly opnaði sýningu Chanel

Char­lotte Casirag­hi var glæsi­leg á velli þegar hún reið inn tísku­sýn­ingapall­ana fyr­ir Chanel þegar tísku­húsið sýndi haute cout­ure línu sína fyr­ir vor og sum­ar 2022. Hún á ekki langt að sækja glæsi­leika sinn því hún er barna­barn Grace Kelly heit­inn­ar, dótt­ir Karólínu prins­essu af Mónakó.  Sýn­ing­in fór fram í dag og var ekki bara mikið lagt í hönn­un tísku­lín­unn­ar held­ur var um­gjörðin afar heill­andi. Casirag­hi var í svört­um Chanel-tvee­djakka með glitrandi þráðum og þröng­um reiðbux­um og að sjálf­sögðu með hjálm. 

Virg­inie Vi­ard hannaði lín­una fyr­ir Chanel en hún hef­ur starfað lengi hjá tísku­hús­inu. Hún hóf störf 1987 en fór svo í  stutt stopp til Chloé tísku­húss­ins en kom svo aft­ur og var ráðin yf­ir­hönnuður þegar Karl Lag­er­feld heit­inn féll frá. Hún hef­ur verið yf­ir­hönnuður Chanel síðan 2019. 

Vi­ard seg­ir að hönn­un á um­gjörð sýn­ing­ar­inn­ar sjálfr­ar hafi komið frá hönnuðinum Xa­vier Veil­h­an. Hún seg­ir að sviðsmynd hans hafi minnt hana á Karl Lag­er­feld heit­inn. Þegar Veil­h­an hafi stundið upp á því að vinna með Char­lotte Casirag­hi þá hafi þetta allt smollið sam­an. 

Tísku­lín­an sjálf er ekta Chanel. Þar er hinn klass­íski tveed-Chanel-jakki orðinn afar aðsniðinn og hent­ar vel fyr­ir þær sem vilja sýna mitt­is­lín­una. Þess­ir vel sniðnu jakk­ar fara vel við síð pils, víðar tveed-bux­ur eða pils sem ná um það bil 10 cm fyr­ir ofan hné. 

Hluti af lín­unni minn­ir á óneyt­an­lega á árin í kring­um 1980 en svo er tvist frá ár­un­um í kring­um 1920 eða um það bil sem Gabrielle Chanel var að stíga sín fyrstu skref með tísku­hús sitt. 

Virginie Viard á tískusýningunni í dag.
Virg­inie Vi­ard á tísku­sýn­ing­unni í dag. AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda