Settu á þig eye-liner og sláðu í gegn

Björg Al­freðsdótt­ir, alþjóðleg­ur förðun­ar­fræðing­ur Yves Saint-Laurent á Íslandi, seg­ir margt spenn­andi að ger­ast í förðun­ar­heim­in­um þessa dag­ana. 

„Með vor­inu sjá­um við nátt­úru­lega, heil­brigða og ljóm­andi húð koma aft­ur inn eins og síðustu sum­ur. Áhersl­an er á „no makeup makeup“ þar sem létt­ur farði er ráðandi ásamt mild­um skygg­ing­ar- og kinna­lit­um. Þar er lyk­ill­inn að nota minna en meira af formúl­un­um og blanda vel svo við sjá­um næst­um ekki að farði sé á húðinni. Einnig væri hægt að nota ein­göngu hylj­ara til að bera létt á þau svæði sem við vilj­um hylja og jafna,“ seg­ir Björg.

Þrátt fyr­ir að húðin verði mjög nátt­úru­leg og létt sjá­um við bjart­ari liti í augn- og vara­förðun.

„Eft­ir því sem líða tek­ur á vor og sum­ar sjá­um við mikið af pastel og björt­um lit­um í augn­förðun þar sem mikið verður um list­ræn­ar lín­ur í kring­um aug­un. Þar fylgj­um við eng­um regl­um held­ur verður tísk­an óreglu­leg­ar lín­ur og skygg­ing­ar á aug­um og jafn­vel með sanseruðum skugg­um yfir hina lit­ina, í augnkrók­inn eða við augn­línu. Augn­förðunin verður svo toppuð með létt­um maskara og ýfðar og nátt­úru­leg­ar auga­brún­ir halda sínu striki.“

Í vara­tísk­unni helst glossið inni og verður enn vin­sælla.

„Glans­andi, glossaðar og jafn­vel glimmeraðar var­ir verða málið árið 2022 ásamt björt­um varalit­um. Það er svo gam­an að geta leikið sér með var­irn­ar og þá eru eng­ar regl­ur; notaðu allt sam­an eða berðu bara létt gloss á var­irn­ar. Þú gæt­ir jafn­vel bætt glimmeruðum augnskugga yfir varalit­inn eða glossið til að fá enn meiri hreyf­ingu og ljóma. Rauði varalit­ur­inn er kom­inn til að vera! Rautt er klass­ískt all­an árs­ins hring og mun­um við sjá miklu meira af hon­um á kom­andi ári, sem er sér­stak­lega fal­legt við nátt­úru­lega húðina og skarpa eyel­iner­inn.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda