Hvað er er best að gera við unglingabólur?

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni.
Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni. Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir

Jenna Huld Ey­steins­dótt­ir húðlækn­ir á Húðlækna­stöðinni svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hún spurn­ingu frá móður varðandi ból­ur á lík­ama 12 ára dótt­ur henn­ar. 

Sæl Jenna. 


12 ára dótt­ir mín er far­in að fá ból­ur á bringu og bak. Sjálf var ég svona sem barn og er af­skap­lega upp­tek­in af því að vinna í þessu fljótt, áður en ból­urn­ar aukast. Get­ur þú gefið mér ein­hver ráð?

Með góðum kveðjum,

Kol­brún

 

Sæl Kol­brún.

Það er margt hægt að gera við ból­um heima fyr­ir, sér­stak­lega þegar að bólg­urn­ar í húðinni eru ekki djúp­ar og aðallega fílapensl­ar. Ef þessi heimaráð duga ekki til fyr­ir ykk­ur mæðgurn­ar þá mæli ég með að þið leitið til ykk­ar heim­il­is­lækn­is eða húðlækn­is til að meta hvort hún þurfi lyfjameðferð.

Hér koma nokk­ur ráð varðandi ol­íu­kennda húð sem þið getið byrjað á heima fyr­ir:

  1. Þrífðu and­litið kvölds og morgna því sviti, húðfita, óhrein­indi, meng­un og farði eyk­ur lík­urn­ar á kirtl­arn­ir lok­ist. Notaðu gjarn­an húðhreinsi­vör­ur sem inni­halda salicylic­sýru (BHA), glycolic­sýru (AHA) eða aðrar ávaxta­sýr­ur en sýr­urn­ar hjálpa til við að fjar­lægja dauðar húðfrum­ur og húðfitu og halda kirtl­un­um opn­um og hrein­um. Dæmi um góða húðhreinsa eru Blem­ish and Age Cle­anser gel frá SkinCeuticals (inni­held­ur bæði salicylic-og glycolic­sýru), Salicylic Acid 2% soluti­on frá The Ordin­ary, Salicylic Acid Cle­anser frá The In­key List eða Salicylic toner frá Neutrogena. Ef ból­ur og fílapensl­ar á bak­inu, þá til­valið að nota hreins­inn þar líka og láta liggja á húðinni í 30-90 sek­únd­ur áður en hann er hreinsaður af. 
  2. Notaðu rakakrem sem eru án olíu eða „non-comedo­genic“. Yf­ir­leitt stend­ur á krem­un­um hvort þau eru ætluð fyr­ir bólu­húð (acne prone skin) og þá ætti að vera óhætt að nota það. Ef húðin er mjög ol­íu­kennd mæl­um við með ser­um eða geli, til dæm­is Hydrat­ing B5 gel frá SkinCeuticals, Hyaluronic Acid 2%+B5 frá The Ordin­ary eða Moist­ure sur­ge gel frá Cl­in­ique. Ef þörf er á meiri raka er til dæm­is hægt að nota Eucer­in Dermop­ure Adjuncti­ve Smoot­hing creameða Anti-Acne normaliz­ing face cream frá Pharmacer­is. Þá eru þau annað hvort notuð ein og sér, eða bor­in á húðina eft­ir serumið.
  3. Ekki klóra í húðina eða kreista ból­urn­ar og farðu var­lega í skrúbbmeðferðir og maska þar sem þær meðferðir geta gert ból­urn­ar verri.
  4. Borðaðu holl­an og fjöl­breytt­an mat, mikið af fersk­um ávöxt­um og græn­meti. Reyndu að halda sykri í lág­marki og forðast fæðubót­ar­efni.
  5. Notaðu krem sem inni­halda retinóíða eða retinól á hverj­um degi. Best að nota á kvöld­in. Retinóíðar/​retinóleru kjörmeðferð við ból­um og hafa marg­vís­leg áhrif á húðina meðal ann­ars að minnka fitu­mynd­un og minnka áber­andi svita­hol­ur eða fitukirtla. Þeir geta einnig dregið úr sýni­leg­um örum í húð meðal ann­ars bólu­ör­um. Dæmi um retinól sem fást án lyf­seðils eru Ret­in­ol frá SkinCeuticals (0.3, 0.5 og 1.0%), Retinól 0.3% frá Pharmacer­is og Ret­in­ol frá The Ordin­ary. Dæmi um sterk­ari retinóíða sem fást ein­ung­is með lyf­seðli eru Dif­fer­in (Adap­alene), Tret­in­o­in 0.05% og Airol (Tret­in­o­in 0.05%).
  6. Komdu því inn í rútín­una þína að nota sól­ar­vörn dag­lega eða dag­krem með sól­ar­vörn. Passaðu þig á að kaupa sól­ar­vörn sem er ætluð fyr­ir and­lit og forðastu feit­ar sól­ar­varn­ir með olíu því þær eiga það til að stífla kirtla og jafn­vel valda ból­um. Dæmi um góðar sól­ar­varn­ir fyr­ir ol­íu­kennda húð eru Eucer­in Mattify­ing Fluid SPF 50, La Roche Ant­heli­os XL­Anti-Shine DryTouch SPF50+og sól­ar­varn­irn­ar frá SkinCeuticals sem fást bæði án lits (Oil shield Defen­se SPF 50+) og með lit ( Miner­al Radi­ance UV Defen­se SPF50).

Kær kveðja, 

Jenna Huld Ey­steins­dótt­ir húðlækn­ir. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Jennu Huld spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda