Hætti við að fara með fötin í Rauða krossinn

Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur situr í stjórn Landverndar.
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur situr í stjórn Landverndar.

Krist­ín Helga Gunn­ars­dótt­ir rit­höf­und­ur er gest­ur hlaðvarpsþátt­ar­ins, Ekk­ert rusl. Fyrr­ver­andi flug­freyj­urn­ar Mar­grét Stef­áns­dótt­ir og Lena Magnús­dótt­ir stýra hlaðvarp­inu en þær eru að gera sitt besta til að verða um­hverf­i­s­vænni. Það geng­ur upp og niður en já­kvæðu frétt­irn­ar eru þær að Lena keypti sér loks­ins raf­magns­bíl og sparaði 120 þúsund krón­ur í bens­ín þegar hún ferðaðist um Ísland á dög­un­um.  

Krist­ín Helga ræðir um fata­kaup í þætt­in­um og seg­ir að fólk þurfi að bera ábyrgð á eig­in kaup­um. 

„Fata­brans­inn er einn sá mest um­hverf­is­spill­andi iðnaður í heim­in­um,“ seg­ir Krist­ín Helga og ját­ar að hafa ætlað að fara með full­an poka af föt­um í fatagám Rauða kross­ins sem voru í raun heil. Það vantaði kannski töl­ur á ein­hverj­ar flík­ur og á sum­um hafði renni­lás­inn gefið sig. Í kjöl­farið fór hún að velta fyr­ir sér eig­in ábyrgð þegar kem­ur að fata­kaup­um. Eft­ir að hafa hugsað þetta lengra ákvað hún að fara ekki með föt­in í Rauða kross­inn og fór með þau til sauma­konu sem lagaði þau svo hún gæti notað þau leng­ur. Henni fannst hún sér­stak­lega bera ábyrgð á ódýru úlp­unni sem hún hafði keypt og lét laga hana fyr­ir hærri upp­hæð en hún kostaði ný úr búðinni. Hún von­ar að heilt yfir för­um við smátt og smátt að temja okk­ur þessa ábyrgð og hugs­un­ar­hátt. Þá spyr hún hvort við ætl­um virki­lega að eyða foss­un­um okk­ar í Bitco­in?  

Hægt er að hlusta á þátt­inn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda