Getur 72 ára farið í svuntuaðgerð?

Shane/Unsplash

Þór­dís Kjart­ans­dótt­ir lýta­lækn­ir á Dea Medica svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hún spurn­ingu frá konu sem lang­ar í svuntuaðgerð. 

Sæl.

Ég er 72 ára og er með svuntu sem er far­in að pirra mig. Ég fæ sár og nú er það spurn­ing hvort ég sé of sein að fara í svuntuaðgerð. Ég er 168 cm og 85 kg og fer mikið í sól­ina. Hvað mynd­ir þú ráðleggja mér?

Kær kveðja, 

ÞB

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.
Þór­dís Kjart­ans­dótt­ir lýta­lækn­ir. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Sæl og takk fyr­ir spurn­ing­una.

Ef þú ert að hugsa um hvort það sé of seint fyr­ir 72 ára að fara í svuntu þá þarf það ekki að vera. Það fer allt eft­ir því hvernig al­menn heilsa þín er. Ertu hraust í hjarta og lung­um? Ertu á ein­hverj­um ónæm­is­bæl­andi lyfj­um? Reyk­ir þú? Ef þú ert al­mennt hraust 72 ára ætt­ir þú að geta farið í val­kvæða skurðaðgerð. Þú ert með BMI um 30 sem er í þyngra lagi og mætt­ir losna við nokk­ur kg fyr­ir aðgerð. 

Ann­ars ráðlegg ég þér að panta þér tíma á stofu hjá lýta­lækni og skoða þína mögu­leika.

Með bestu kveðjum og gangi þér vel,

Þór­dís Kjart­ans­dótt­ir lýta­lækn­ir.

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Þór­dísi spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda