Mött húð gengur í endurnýjun lífdaga á TikTok

Ljóm­andi húð hef­ur átt miklu fylgi að fagna um tals­vert langt skeið. Nú hef­ur framá­fólk í snyrti­heim­in­um hins veg­ar heill­ast af nýrri áferð. Um er að ræða ákveðna gerð af mattri húð sem kölluð hef­ur verið  „cloud skin“. Þar er, eins og geta má, verið að vísa í áferð sem lík­ist létt­um og dún­kennd­um skýj­um sem fljóta um á himn­in­um. Þó hug­takið hafi fyrst komið fram árið 2021 eru það not­end­ur TikT­ok sem hafa end­ur­vakið þessa förðun­ar­tísku þar sem heil­brigð, hálf­mött húð er í for­grunni.

Þó ljóm­andi húð sé alltaf fal­leg þá er kom­inn tími til að viður­kenna að sum­ir hafa gengið svo langt í notk­un á ljóma­vör­um að erfitt var orðið að greina hvort viðkom­andi hafði verið að nota ljóm­andi förðun­ar­vör­ur eða hefði löður­svitnað við aðrar at­hafn­ir. Það var því sem fersk­ur blær í snyrti­heim­in­um þegar not­end­ur TikT­ok end­ur­lífguðu hug­tak Dom­inic Skinner, alþjóðlegs yf­ir­förðun­ar­fræðings M.A.C., frá ár­inu 2021 um „cloud skin“ eða hálf­matta förðun. Það er ekki endi­lega nýtt af nál­inni að nota laust púður til að draga úr glans­andi áferð á ákveðnum svæðum and­lits­ins en nú grípa sí­fellt fleiri í púðrið.

Lancôme Hydra Zen Anti-Stress Glow fljótandi rakakrem, 7.799 kr.
Lancôme Hydra Zen Anti-Stress Glow fljót­andi rakakrem, 7.799 kr.
Estée Lauder Futurist Aqua Brilliance, 9.599 kr.
Estée Lau­der Fut­urist Aqua Brilli­ance, 9.599 kr.

Allt byrj­ar á húðvör­um

Til að fá full­komna hálf­matta húð er heppi­leg­ast að blanda sam­an ljóm­andi og mattri áferð og fara þannig hinn full­komna milli­veg, líkt og þú ljóm­ir inn­an frá en þó með svo­lítið möttu yf­ir­bragði sem dreg­ur út sýni­leika mis­fellna húðar­inn­ar og svita­hola. Grunn­ur­inn að hinni full­komnu hálf­möttu húð byrj­ar með því að veita húðinni góðan raka og gera húðina þannig þrýstn­ari og slétt­ari. Þar koma gott raka­vatn og rakakrem sér vel sem fyrstu skref­in. Prófaðu til dæm­is Moist­ure Sur­ge Hydro-Infu­sed Loti­on, sem er ein­fald­lega of­urraka­vatn, og á eft­ir er til­valið að nota hið nær­andi en þó létta Hydra Zen Anti-Stress Glow Liquid Moist­urizer frá Lancôme.

Shiseido Synchro Skin Self Refreshing hyljari, 5.699 kr.
Shiseido Synchro Skin Self Refres­hing hylj­ari, 5.699 kr.

Þunn lög skipta máli

Þegar þú ferð yfir í förðun­ar­vör­urn­ar er mik­il­vægt að til­einka sér að bera hverja förðun­ar­vöru á í þunnu lagi til að hafa áferðina sem fal­leg­asta. Byrjaðu á farðagrunni sem býr yfir nátt­úru­leg­um ljóma, til dæm­is Fut­urist Aqua Brilli­ance frá Estée Lau­der, og berðu svo þunnt lag af farða sem býr yfir satín­kenndri eða ljóm­andi-mattri áferð, til dæm­is Terracotta Le Teint frá Gu­erlain eða All Hours Foundati­on frá Yves Saint Laurent. Þú get­ur svo byggt upp þekj­una á þeim svæðum and­lits­ins sem þess þurfa. Að lok­um get­urðu notað hylj­ara til að fela bauga eða mis­fell­ur og er þá Synchro Skin Self Refres­hing Conceal­er frá Shiseido frá­bær kost­ur, enda er sá hylj­ari með hálf­mattri, skýja­kenndri áferð.

Guerlain Terracotta Le Teint, 9.299 kr.
Gu­erlain Terracotta Le Teint, 9.299 kr.

Púðrið yfir lykla­borðið

Not­irðu kinna­lit og brúnku í krem­formi skaltu bera þær vör­ur á húðina áður en þú not­ar púður, reyndu að nota krem sem búa yfir nátt­úru­legri áferð – ekki of ljóm­andi. Þú þarft í raun ekki að nota sér­stak­an ljóma þar sem grunn­ur­inn er þegar ljóm­andi og kem­ur fram bet­ur yfir dag­inn. Rétta púðrið er lyk­il­atriði til að fram­kalla þessa léttu hálf­möttu áferð á húðina. Í því skyni er heppi­legt að nota gegn­sætt púður sem er afar fín­legt, til dæm­is Studio Fix Pro Set+Blur Weig­ht­less Loose Powder frá M.A.C.. Notaðu fín­gerðan bursta til að setja púðrið á and­litið á ná­kvæm­an hátt. Ein­blíndu á innri augnkróka, svæðið sitt hvor­um meg­in við nefið og meðfram hár- og kjálkalínu en forðastu hæstu punkta and­lits­ins til að stroka ekki all­an ljóma út. Ef T-svæðið þitt verður ol­íu­kennt get­urðu bætt við smá­veg­is púðri þar. Með þess­ari aðferð matt­arðu ekki allt and­litið, held­ur fær nátt­úru­leg­ur ljómi annarra förðun­ar­vara að bland­ast sam­an við matta áferð púðurs­ins. Úr verður ein­stak­lega fal­leg áferð sem veit­ir fág­un og mjúka áferð húðar­inn­ar sem mynd­ast ein­stak­lega vel.

Clinique Moisture Surge Hydro-Infused rakakrem, 7.199 kr.
Cl­in­ique Moist­ure Sur­ge Hydro-Infu­sed rakakrem, 7.199 kr.
Laust púður: M.A.C. Studio Fix Pro Set+Blur Weightless Loose Powder, …
Laust púður: M.A.C. Studio Fix Pro Set+Blur Weig­ht­less Loose Powder, 7.490 kr.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda