Hitalausar krullur á nokkrum mínútum

Förðunarfræðingurinn Ragnheiður Júlíusdóttir prófaði á dögunum hitalausar krullur.
Förðunarfræðingurinn Ragnheiður Júlíusdóttir prófaði á dögunum hitalausar krullur. Samsett mynd

Hvernig hljóm­ar að græja guðdóm­leg­ar krull­ur á aðeins ör­fá­um mín­út­um sem fara vel með hárið og valda eng­um hita­skemmd­um? 

Það er ekki af ástæðulausu sem mynd­skeið af hita­laus­um krull­um hafa tekið yfir net­heima síðustu mánuði, enda fátt sem hljóm­ar bet­ur en að vakna með fal­leg­ar krull­ur í hár­inu sem þurfa litla sem enga fyr­ir­höfn. 

Græjaðu hárið kvöldið áður

Förðun­ar­fræðing­ur­inn Ragn­heiður Júlí­us­dótt­ir deildi á dög­un­um mynd­skeiði á In­sta­gram þar sem hún sýndi hvernig hita­lausu krull­urn­ar virka, en mælt er með því að gera krull­urn­ar í þurrt hár.

Hún byrj­ar á því að taka krullu­stöng og binda end­ana sam­an svo stöng­in myndi hálf­gerðan hatt á höfðinu. Því næst vef­ur hún hár­lokk­um í kring­um stöng­ina og bæt­ir lokk­um við eft­ir hverja um­ferð þar til hún hef­ur vafið öllu hár­inu um krullu­stöng­ina og aðeins lít­ill lokk­ur er eft­ir. 

Hún fest­ir lokk­inn með teygju og end­ur­tek­ur svo á hinni hliðinni. Því næst fer hún að sofa, en krullu­stöng­in er silkimjúk og ætti því ekki að trufla svefn­inn.

Næsta dag vakn­ar Ragn­heiður og þarf ekki að gera neitt við hárið nema taka krullu­stöng­ina úr og hrista hárið aðeins til. Útkom­an er sann­ar­lega glæsi­leg og spara hita­lausu krull­urn­ar dýr­mæt­an tíma á morgn­anna sem ann­ars færi í að blása og græja hárið. 

Ýmsar leiðir til að töfra fram krull­ur

Það eru ýms­ar mis­mun­andi leiðir sem hægt er að nota krullu­stöng­ina, en í mynd­skeiðinu sem Ragn­heiður deildi not­ar hún ekki hina „hefðbundnu“ leið sem al­gengt er að sjá í mynd­skeiðum. 

Þar er krullu­stöng­in sett yfir höfuðið og fest niður með hár­klemmu. Því næst eru lokk­ar vafðir utan um stöng­ina, og hári bætt við eft­ir hverja um­ferð, þar til öllu hár­inu hef­ur verið vafið. Þá er hárið fest við krullu­stöng­ina með því að nota teygju. Þetta er svo end­ur­tekið á hinni hliðinni. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by ETERNAL MUSE (@eternalmu­sehair)

View this post on In­sta­gram

A post shared by ETERNAL MUSE (@eternalmu­sehair)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda