10 hlutir sem þykja þeir heitustu í dag

Óskalisti vikunnar inniheldur tíu frábærar vörur!
Óskalisti vikunnar inniheldur tíu frábærar vörur! Samsett mynd

Óskalist­inn þessa vik­una er ekki af verri gerðinni, en hann prýða allra heit­ustu vör­urn­ar núna sem ættu að keyra aðeins upp gleðihorm­ón­in í skamm­deg­inu. 

Á list­an­um eru tíu vör­ur, allt frá tryllt­um leður­jakka og sjarmer­andi stíg­vél­um yfir í dá­sam­legt silki fyr­ir svefn­inn, húðina og hárið. 

Er ekki alltaf veður fyr­ir leður?

Leðrið virðist vera það allra heit­asta og þá sér­stak­lega leður­jakk­ar í hinum ýmsu sniðum. Þessi tryllta leður­kápa er hin full­komna flík fyr­ir þá sem vilja bæta smá leðri inn í fata­skáp­inn.

Kápan fæst hjá Zara og kostar 15.995 kr.
Káp­an fæst hjá Zara og kost­ar 15.995 kr. Ljós­mynd/​Zara.com

Form­fag­urt kera­mik!

Þess­ir fal­legu kera­mikvas­ar eru hannaðir af Ma­ritu Lind­holm og koma í þrem­ur mis­mun­andi stærðum og lit­um. Þeir eru mini­malísk­ir og ættu því að passa inn í hvaða rými sem er.

Keramikvasar frá Lindform fást í Dimm og kosta frá 3.590 …
Kera­mikvas­ar frá Lind­form fást í Dimm og kosta frá 3.590 til 5.990 kr. Ljós­mynd/​Dimm.is

Vant­ar þig hvatn­ingu í rækt­ina?

Nýr fatnaður get­ur gefið manni auka hvatn­ingu á æf­ingu, en nú þegar farið er að kólna þykir mörg­um gott að skipta yfir í lan­germa æf­inga­boli. Þessi stíl­hreina peysa frá Nike er til­val­in fyr­ir kald­ari daga.

Rennd peysa frá Nike fæst í Hverslun og kostar 23.495 …
Rennd peysa frá Nike fæst í Hversl­un og kost­ar 23.495 kr. Ljós­mynd/​Hversl­un.is

Dek­ur fyr­ir hárið!

Þegar fer að kólna er mik­il­vægt að huga vel að húðinni og hár­inu með góðum raka og al­vöru dekri. Í þess­um hárpakka frá K18 er allt sem þú þarft til að dekra við hárið og gera það glans­andi mjúkt.

Vörurnar frá K18 fást hjá Beauty Bar. Settið kostar 22.680 …
Vör­urn­ar frá K18 fást hjá Beauty Bar. Settið kost­ar 22.680 kr. Skjá­skot/​In­sta­gram

Óvænt en vel­kom­in kú­reka­stemn­ing!

Kú­reka­stíg­vél hafa tekið yfir tísku­heim­inn und­an­farn­ar vik­ur. Það er eitt­hvað fá­rán­lega heill­andi við þessi stíg­vél enda hafa þau sinn ein­staka sjarma. Stíg­vél­in eru því óvænt en sann­ar­lega vel­kom­in viðbót í fata­skápa tísku­unn­enda um all­an heim.

Kúrekastígvélin fást hjá Zara og kosta 15.995 kr.
Kú­reka­stíg­vél­in fást hjá Zara og kosta 15.995 kr. Ljós­mynd/​Zara.com

Smá­atriði sem heilla!

Það ætti að vera pláss fyr­ir góðar galla­bux­ur á öll­um óskalist­um enda klass­ísk og tíma­laus flík sem virðist aldrei detta úr tísku. Nú orðið eru til ótal galla­bux­ur í hinum ýmsu sniðum og öll­um regn­bog­ans lit­um, en þeir sem vilja prófa eitt­hvað nýtt ættu að elska smá­atriðin á þess­um bux­um.

Gallabuxur frá Agolde fást í Andrá og kosta 46.900 kr.
Galla­bux­ur frá Agolde fást í Andrá og kosta 46.900 kr. Ljós­mynd/​Andrareykja­vik.com

Al­vöru lúx­us!

Eins og fram hef­ur komið er sér­stak­lega mik­il­vægt að huga vel að húð og hári þegar það fer að kólna. Silki fer vel með húðina og hárið, en það viðheld­ur réttu raka­stigi og dreg­ur úr nún­ingi sem minnk­ar hár­skemmd­ir.

Silkikoddaverið fæst hjá Heima er gott og kostar 10.990 kr.
Silki­kodda­verið fæst hjá Heima er gott og kost­ar 10.990 kr. Ljós­mynd/​Heima­ergott.is

Borðbúnaður sem gleður augað!

Fal­leg­ur borðbúnaður ger­ir gæfumun­inn í mat­ar­boðinu, enda ef­laust marg­ir sem tengja við það að njóta þess enn frek­ar að borða góðan mat ef hann er bor­inn fram á fal­leg­um disk. Þessi disk­ur er ein­fald­ur en fang­ar samt sem áður augað.

Diskur frá Majas Cottage fæst í Bast og kostar 2.995 …
Disk­ur frá Maj­as Cotta­ge fæst í Bast og kost­ar 2.995 kr. Ljós­mynd/​Bast.is

Hylj­ar­inn sem þú þarft í vet­ur!

Þessi nýji ser­um-hylj­ari frá Lancome hyl­ur dökka bauga um leið og hann gef­ur svæðinu góðan raka. Hann gef­ur miðlungs þekju og hinn eft­ir­sókna­verða nátt­úru­lega og heil­brigða ljóma sem okk­ur dreym­ir um í kuld­an­um.

Teint Idole Ultra Wear Care & Glow Serum-hyljarinn frá Lancome …
Teint Idole Ultra Wear Care & Glow Ser­um-hylj­ar­inn frá Lancome fæst í Hag­kaup og kost­ar 5.799 kr. Ljós­mynd/​Hag­kaup.is

Oft er ein­falt bara best!

Það kann­ast ef­laust marg­ir við að eiga það til að flækja hlut­ina, en oft er ein­falt bara best. Þess vegna er gott að eiga ein­fald­an hvít­an hlýra­bol sem pass­ar við allt, en þessi bol­ur er með afar sjarmer­andi háls­máli sem ger­ir mikið fyr­ir út­litið.

Bolurinn fæst í Gina Tricot og kostar 2.595 kr.
Bol­ur­inn fæst í Gina Tricot og kost­ar 2.595 kr. Ljós­mynd/​Gin­at­ricot.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda