Rosalía stældi Björk

Alveg málið!
Alveg málið! Samsett mynd

Svana­kjóll­inn sem Björk klædd­ist á Óskar­sverðlauna­hátíðinni árið 2001 er án efa einn um­talaðasti og þekkt­asti kjóll sem sést hef­ur á rauða dregl­in­um, fyrr og síðar. 

Tón­list­ar­kon­an vakti mikla at­hygli fyr­ir kjól­inn, sem hannaður var af Mar­jan Pejoski, á sín­um tíma og nú yfir 20 árum síðar er kjóll­inn enn að vekja verðskuldaða at­hygli og það hjá yngri kyn­slóðum. 

Mik­ill aðdá­andi Bjark­ar

Spænska söng­kon­an Rosal­ía, sem hef­ur á und­an­förn­um árum átt vax­andi vel­gengni að fagna, er mik­ill aðdá­andi Bjark­ar og hef­ur lengi farið fögr­um orðum um ís­lensku tón­list­ar­kon­una, list henn­ar og menn­ing­ar­leg áhrif. 

Sú mætti í eft­ir­lík­ingu af svana­kjóln­um í eitt stærsta Hollywood-partí hrekkja­vöku­helgar­inn­ar, haldið af fyr­ir­sæt­unni Kendall Jenner á Château Marmont hót­el­inu í Los Ang­eles.

Rosal­ía var stór­glæsi­leg í svana­kjóln­um en söng­kon­an stældi allt frá kjóln­um að skón­um sem Björk klædd­ist á Óskar­sverðlauna­hátíðinni og var einnig með svipaða hár­greiðslu.

Rosal­ía og Björk til­kynntu ný­verið um tón­list­ar­sam­starf en þær vinna nú hörðum hönd­um að lag­inu Oral sem Björk samdi fyr­ir 20 árum síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda