Ásdís Rán: „Ég klippti mig sjálf“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir er nýklippt.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er nýklippt. Skjáskot/Instagram

Ásdís Rán Gunn­ars­dótt­ir, fyr­ir­sæta og þúsundþjala­smiður, er kom­in með nýja hár­greiðslu. Ásdís Rán sem er enn ljós­hærð seg­ir fólk vera for­vitið um nýju greiðsluna. Hún hef­ur nú upp­ljóstraði því hvernig hún náði fram hár­greiðslunni. 

„Það eru all­ir að missa sig yfir blessuðu klipp­ing­unni minni sem er al­gjör­lega búin að slá öll met! Það rign­ir inn skila­boðum og fólk stopp­ar mig allstaðar,“ skrif­ar Ísdrottn­ing­in á In­sta­gram sem er með stutt hár og topp. 

„Sann­leik­ur­inn er að ég klippti mig sjálf þannig það á eng­in hár­greiðslumaður heiður­inn af henni,“ held­ur hún áfram en viður­kenn­ir að hún sé reynd­ar með bak­grunn í hár­greiðslu. Hún er auk þess and­lit Red­ken á Íslandi. 

Bombu-lokk­arn­ir fengu að víkja fyr­ir tíu árum

Ásdís Rán er ekki óvön því að skipta um hárstíl á þess­um árs­tíma. Fyr­ir tíu árum lét hún síðu lokk­ana fjúka. 

„Það er bara kom­in tími til að breyta smá til og leyfa bombu-lokk­un­um að víkja fyr­ir klass­ísk­ara lúkki þar sem ég er langt kom­in í að leggja fyr­ir­sætu skóna á hill­una og byrjuð að ein­beita mér að öðrum mál­um. Ég á yfir 30 forsíður, þúsund­ir mynda og sjón­varpsþætti að baki sem birst hafa víðsveg­ar um Evr­ópu þannig að ég er bara sátt með minn fer­il á þessu sviði svona sam­hliða móður­hlut­verk­inu. Ég er að sjálf­sögðu ekki al­veg hætt en já ég er að fara aðeins út í klass­ísk­ari ímynd með breytt­um áhersl­um,“ seg­ir Ásdís Rán Gunn­ars­dótt­ir í viðtali við Smart­land í des­em­ber árið 2013. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda