Algengustu mistökin eru að gefa sér ekki tíma

Alma Lluvia og Andrea Dís með jólahárið í ár. Harpa …
Alma Lluvia og Andrea Dís með jólahárið í ár. Harpa Ómarsdóttir greiddi þeim. mbl.is/Arnþór Birkisson

Harpa Ómars­dótt­ir, eig­andi Blondie og Háraka­demí­unn­ar, mæl­ir með því að gefa sér tíma í jóla­hár­greiðsluna. Hún notaði lítið krullu­járn til þess að ná fram jóla­hár­inu í ár og seg­ir tækið eiga heima í jólapakk­an­um í ár.

„Sein­ustu ár hafa krullu- og keilu­járn komið sterk inn í all­ar sídd­ir og í ár er stór blást­ur málið með aðstoð frá stór­um „frönsk­um“ rúll­um til að fá meira loft eða leika með út­kom­una við and­litið,“ seg­ir Harpa um jóla­hárið í ár.

Harpa gerði tvær jóla­hár­greiðslur fyr­ir jóla­blað Morg­un­blaðsins en hún kall­ar jóla­hárið í ár.

„Retro Glam Waves“ með mikl­um glans.

„Hér er hárið unnið með litlu krullu­járni. Hár­inu er skipt í fjór­ar til fimm lá­rétt­ar skipt­ing­ar og er hver skipt­ing tek­in í nokkra parta og rúllað upp að höfðinu, lokk­ur­inn síðan fest­ur í form­inu sínu með spennu og lát­inn kólna. Síðan er hárið greitt mjög vel niður og lokk­arn­ir mæt­ast og mynda eina heild. Í lok­in er sett „shine sprey“ og ég mæli með að prófa skemmti­legt hárskraut,“ seg­ir Harpa sem notaði vör­urn­ar label.m wolume mous­se, label.m hairspray, label.m healt­hy hair mist og label.m top code ser­um.

Harpa Ómarsdóttir ætlar að leggja áherslu á góðan blástur þegar …
Harpa Ómars­dótt­ir ætl­ar að leggja áherslu á góðan blást­ur þegar hún greiðir sér fyr­ir jól­in. Ljós­mynd/​Aðsend

Góðar mót­un­ar­vör­ur lyk­il­atriði

Harpa er með gott ráð fyr­ir jóla­hárið þegar tím­inn er af skorn­um skammti. „Ef við eyðum mikl­um tíma í eld­hús­inu eða ann­ars staðar yfir hátíðirn­ar gæti verið sniðugt að þvo hárið á und­an og blása það. Besta trixið til að fá mesta haldið og fyll­ingu er að þvo hárið bara með sjampói og nota enga nær­ingu og blása það upp úr froðu,“ seg­ir Harpa.

Eru ein­hver al­geng mis­tök sem kon­ur gera í sam­bandi við hárið fyr­ir jól­in?

„Al­geng­ustu mis­tök­in eru að nota ekki rétt­ar mót­un­ar­vör­ur og gefa sér ekki næg­an tíma til að njóta meðan við höf­um okk­ur til.“

Ef fólk vill breyta til í jólaklipp­ing­unni, hvað ætti það að gera?

„Skemmti­legt er að breyta aðeins til í jólaklipp­ing­unni og til dæm­is fá sér stytt­ur eða topp sem fer and­lits­falli eða fá sér nýj­an blæ eða tón á hárið. Ég mæli með að fá góða ráðgjöf hjá fag­manni, góð ráðgjöf get­ur komið manni skemmti­lega á óvart; hvað það er margt hægt að gera og breyta.“

Hvaða hár­greiðslug­ræja ætti að vera í jólapakk­an­um í ár?

„Í jólapakk­an­um í ár er það lítið krullu­járn, mót­un­ar­vör­ur eða sjampó, hár­nær­ing og góður hár­maski, kaupa t.d. gjafa­bréf í klipp­ingu og lit á hársnyrti­stof­um. Gjafa­bréf í dek­ur fyr­ir hárið er það nýj­asta, hár­spa hjá Blondie.“

Harpa mælir með að leika sér með hárskraut.
Harpa mæl­ir með að leika sér með hárskraut. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Aðvent­an skemmti­leg­asti tím­innn

Það er mikið um að vera hjá Hörpu á aðvent­unni en hún rek­ur Blondie hársnyrti­stofu á þrem­ur stöðum, Skóla­vörðustíg, Síðumúla og Garðatorgi Garðabæ.

„Aðventu­tím­inn er skemmti­leg­asti tím­inn í brans­an­um, all­ir dag­ar full­bókaðir og rúm­lega það. Á Blondie bjóðum við upp á pip­ar­kök­ur og kon­fekt, jólakaffi, rautt og hvítt fyr­ir viðskipta­vini. Það er hefð hjá starfs­fólk­inu á Blondie er eitt­hvað þema til dæm­is all­ir með rauðan varalit, fínt skart eða ein­hvern ákveðinn lit í föt­um þann dag­inn, þetta hjálp­ar okk­ur að kom­ast í gegn­um törn­ina.“

Hvernig er aðvent­an hjá þér?

„Ég er búin að bóka jóla­tón­leika með fjöl­skyld­unni, allskon­ar með vina­hóp­um og svo erum við mjög dug­leg að fara í miðbæ­inn um helg­ar eða kíkj­um í miðbæ Hafn­ar­fjarðar í heitt kakó og upp­lifa aðvent­una.“

Hvernig verða jól­in í ár?

„Á aðfanga­dag för­um við í kirkju með börn­in klukk­an sex, borðum svo heima hjá okk­ur með mömmu og tengdó en við eig­um eft­ir að ákveða hvað verður í mat­inn. Við erum að æfa okk­ur að breyta til en eft­ir­rétt­ur­inn verður tíra­mísú. Við kær­ustuparið skrupp­um til Róm­ar í haust og lærðum ít­alska matseld, þessi eft­ir­rétt­ur er svo ein­fald­ur og góður, hann klikk­ar ekki.“

Hvernig ætl­ar þú að greiða þér?

„Jóla­hárið verður ákveðið út frá föt­un­um en góður blást­ur og hárskraut verður þar í grunn­inn,“ seg­ir Harpa.

Litlu krullurnar eru hátíðlegar.
Litlu krull­urn­ar eru hátíðleg­ar. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda