Flottustu farðanirnar á Golden Globe

Þetta eru flottustu farðanirnar á rauða dreglinum!
Þetta eru flottustu farðanirnar á rauða dreglinum! Samsett mynd

Gold­en Globe-verðlauna­hátíðin fór fram í Los Ang­eles í Banda­ríkj­un­um aðfaranótt mánu­dags. Hátíðin er sann­kölluð tísku­veisla, enda mæta stjörn­urn­ar á rauða dreg­il­inn í sínu fín­asta pússi í fatnaði frá heit­ustu tísku­hús­um heims.

Stjörn­urn­ar velja líka það allra flott­asta þegar kem­ur að förðun og hári, en í ár var mikið um förðun í nátt­úru­legri kant­in­um, ljóm­andi húð og mjúk­ar krull­ur. 

Smart­land tók sam­an fimm bestu farðan­irn­ar á Gold­en Globe-verðlauna­hátíðinni í ár. 

Bleik­ir tón­ar og ljóm­andi húð!

Leik­kon­an Margot Robbie mætti að sjálf­sögðu í Barbí-lit­um frá toppi til táar á rauða dreg­il­inn. Hún skartaði sól­kysstri og ljóm­andi förðun þar sem mjúk­ir bleik­ir tón­ar voru í for­grunni í stíl við kjól­inn. Leynd­ar­málið á bak við sól­kyssta húð Robbie er Healt­hy Glow Bronz­ing Cream frá Chanel í litn­um 392 So­leil Tan Medi­um Bronze. Robbie var svo með mjúka liði í hár­inu.

Leikkonan Margot Robbie var með glæsilega förðun á rauða dreglinum.
Leik­kon­an Margot Robbie var með glæsi­lega förðun á rauða dregl­in­um. AFP
Til þess að ná fram sólkysstri og ljómandi húð var …
Til þess að ná fram sól­kysstri og ljóm­andi húð var Healt­hy Glow Bronz­ing Cream frá Chanel notað á Robbie. Ljós­mynd/​Chanel.com

Tryllt­ur grunge-glamúr!

Leik­kon­an Ari­ana Green­blatt skartaði fá­rán­lega flottri smókí-augn­förðun og nátt­úru­leg­um vör­um á verðlauna­hátíðinni, en það er óhætt að segja að förðunin henn­ar hafi hitt beint í mark. Til að setja punkt­inn yfir i-ið var Green­blatt með tryllt­ar negl­ur í „french“ stíl, en nögl­um í þess­um stíl er spáð mikl­um vin­sæld­um í ár. 

Leikkonan Ariana Greenblatt vakti sannarlega athygli á rauða dreglinum.
Leik­kon­an Ari­ana Green­blatt vakti sann­ar­lega at­hygli á rauða dregl­in­um. AFP
Hægt er að fá svipaðar neglur og Greenblatt er með …
Hægt er að fá svipaðar negl­ur og Green­blatt er með hjá Chic Shop Beauty á Íslandi. Ljós­mynd/​Chics­hop.is

Nátt­úru­leg og óaðfinn­an­leg!

Leik­kon­an Greta Lee var með nátt­úru­lega förðun á rauða dregl­in­um. Nátt­úru­leg og óaðfinn­an­leg húð var í for­grunni, en til þess að ná fram heil­brigðum ljóma og rósa­bleik­um kinn­um var kinna­lit­ur­inn LOrchidée frá Sisley Par­is notaður í litn­um 2 L'orchi­dee Rose. 

Förðunin var þó ekki það eina sem var með hinu vin­sæla „old Hollywood“ yf­ir­bragði held­ur einnig hár­greiðslan, en heild­ar­út­kom­an var sann­ar­lega glæsi­leg. 

Leikkonan Greta Lee var með afar náttúrulega förðun sem sló …
Leik­kon­an Greta Lee var með afar nátt­úru­lega förðun sem sló í gegn. AFP
LOrchidée er kinnalitur og ljómavara sem fullkomnaði húð leikkonunnar.
LOrchidée er kinna­lit­ur og ljóma­vara sem full­komnaði húð leik­kon­unn­ar. Ljós­mynd/​Nord­strom.com

Róm­an­tískt á rauða dregl­in­um!

Leik­kon­an Hai­lee Stein­feld vakti mikla at­hygli á rauða dregl­in­um, ekki síst fyr­ir róm­an­tíska förðun sem hún skartaði. Fer­skju­bleik­ir og hlý­leg­ir tón­ar voru í aðal­hlut­verk í förðun­inni sem var í stíl við kjól­inn. Stein­feld var með stíl­hreina og klass­íska hár­greiðslu, en hárið var tekið upp í snúð og hluti af toppn­um skil­inn eft­ir til að ramma and­litið inn.

Leikkonan Hailee Steinfeld var með rómantíska förðun með bleikum tónum.
Leik­kon­an Hai­lee Stein­feld var með róm­an­tíska förðun með bleik­um tón­um. AFP

Nátt­úru­leg­ur glamúr!

Leik­kon­an Gilli­an And­er­son geislaði á rauða dregl­in­um, en hún var með afar fal­lega förðun sem var nátt­úru­leg en með smá glamúr. Það vantaði svo ekki upp á lyft­ing­una í hár­greiðslu And­er­son sem passaði full­kom­lega inn í heild­ar­lúkkið.

Leikkonan Gillian Anderson skein skært á rauða dreglinum.
Leik­kon­an Gilli­an And­er­son skein skært á rauða dregl­in­um. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda