„Ræktarfötin hvetja mig til þess að mæta í ræktina“

Hanesa Ósk stundar ræktina af kappi.
Hanesa Ósk stundar ræktina af kappi. Samsett mynd

Breiðholts­mær­in Hanesa Ósk Þórs­dótt­ir er geislandi og kraft­mik­il ung kona. Hún er for­fall­inn tísku­unn­andi sem legg­ur mikið upp úr fal­leg­um klæðnaði og vand­ar fata­valið hvort það er í skól­ann, vinn­una eða rækt­ina. 

Hanesa, sú eina sem ber hið fal­lega nafn hér á landi, stund­ar nám í kenn­ara­fræðum við Há­skóla Íslands og hef­ur ómæld­an áhuga á heilsu­efl­andi lífs­stíl, en þegar hún er ekki í skóla eða vinnu er hana einna oft­ast að finna í rækt­inni. 

Hvernig mynd­ir þú lýsa fata­stíln­um þínum?

„Fata­stíll­inn minn er fjöl­breytt­ur en ég set þæg­indi ávallt í fyrsta sæti. Mér líður best í föt­um sem klæða lík­ama minn vel og kýs ég því oft­ast aðsniðin föt sem sýna lín­urn­ar. Ég er með breiðar mjaðmir og lítið mitti og vil að föt­in falli vel að lík­am­an­um á öll­um svæðum. 

Þú finn­ur mig mjög reglu­lega í pleðri, ég er mik­ill aðdá­andi pleðurs. Mitt mottó er: „Pleður gleður.“

Hanesa Ósk elskar pleður.
Hanesa Ósk elsk­ar pleður. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig klæðir þú þig dags­dag­lega?

„Það er mjög mis­jafnt en ég hef gam­an af því að klæða mig í liti. Ég elska þægi­leg­ar bux­ur og „overs­ized“ hettupeys­ur, sér­stak­lega á þess­um árs­tíma, en góður jakki skipt­ir mig sömu­leiðis miklu máli. Svo elska ég striga­skó og á stórt og mikið safn, lit­rík­ir Air Force eru í upp­á­haldi, alla daga.

Ég er með ólækn­andi sjúk­dóm, Lipedema, sem lýs­ir sér þannig að fitu­frum­ur safn­ast upp í kekkj­um víðsveg­ar um lík­amann og þess vegna finnst mér mik­il­vægt að líða vel í því sem ég klæðist, öll­um stund­um. Ég fæ reglu­lega at­huga­semd­ir og spurn­ing­ar um það hvernig ég þori að vera í lit­rík­um fatnaði en það læt­ur mér líða bet­ur og er von­andi bara hvetj­andi fyr­ir aðra.“

Áttu upp­á­halds­lit?

„Á virk­um dög­um held ég mig oft­ast við jarðtóna en ég elska liti og reyni því að prófa mig áfram með lit­rófið. Ég er alls ekki feim­in þegar kem­ur að því að fara út fyr­ir ramm­ann enda finn­ur maður ekki hið eina rétta án þess að prófa. 

Appalsínu­gul­ur er litatónn sem klæðir mig ein­stak­lega vel en dökk­grænn og svart­ur eru svona mín­ir „go to“ lit­ir.“

Hún er ófeimin að klæðast björtum litum.
Hún er ófeim­in að klæðast björt­um lit­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig klæðir þú þig í rækt­ina?

„Þegar ég fer í rækt­ina þá líður mér stund­um eins og ég sé á leiðinni að ganga tískupall­inn, en ég á rosa­lega mikið af ræktar­föt­um og sýni nýtt „dress“ reglu­lega, það er eig­in­lega vand­ræðal­egt. Ég klæði mig þægi­lega og á til að mynda sam­fest­ing frá fyr­ir­tæk­inu Stax í þrem­ur mis­mun­andi lit­um bara af því að hann er aðsniðinn og sexí, þó ég segi sjálf frá.“

Skipta ræktar­föt þig miklu máli?

„Ræktar­föt­in hvetja mig til þess að mæta í rækt­ina. Þau lýsa per­sónu­leik­an­um mín­um og sýna hvað ég er opin og ófeim­in við að láta í mér heyra. Það að líða vel í ræktar­föt­un­um ger­ir ótrú­lega mikið fyr­ir mann og mér finnst skipta máli að líða vel í rækt­inni. Að klæðast skemmti­leg­um og fal­leg­um ræktar­föt­um ger­ir það, að minnsta kosti fyr­ir mig.“

Hanesa Ósk mætir í ræktina á hverjum degi.
Hanesa Ósk mæt­ir í rækt­ina á hverj­um degi. Ljós­mynd/​Aðsend

Ertu sjálfs­ör­ugg í ræktarfatnaði?

„Hér áður fyrr á ár­un­um átti ég mjög erfitt með að klæðast stutterma­bol­um. Ég hugsaði með mér: „Ætli ein­hver sé að stara? Hvernig eru hand­legg­irn­ir á mér í boln­um? Er ég of áber­andi?“ en um leið og ég bældi niður þær hugs­an­ir þá byrjaði ég að blómstra. 

Í dag skipt­ir það mig engu máli hvort ein­hver sé að horfa eða ekki, við erum öll í rækt­inni til að rækta okk­ur sjálf og eig­um þar af leiðandi bara að hugsa um okk­ur og enga ann­an. Sjálfs­ör­yggið kom um leið og ég leyfði mér að vera ég sjálf og í þeim föt­um sem mig langaði að klæðast.“

Hvar finn­ur þú bestu ræktar­föt­in?

„Sem ung kona með breiðar mjaðmir þá get­ur verið mjög erfitt að finna föt, sér­stak­lega föt sem eru töff og í tísku. Ég panta mikið er­lend­is frá, sér­stak­lega íþrótta­föt­in mín, en á einnig mikið af góðum íþrótta­föt­um frá M Fit­n­ess og Define the line. 

Þegar ég panta er­lend­is frá þá er ég rosa­lega dug­leg að skoða In­sta­gram-síður hjá áhrifa­völd­um með svipaða lík­ams­bygg­ingu og ég, sem dæmi get ég nefnt Jazm­in Margalef og Ariella Nyssa. Ég hef verið dug­leg að panta frá bæði Stax og Doyou­even, sem eru áströlsk fyr­ir­tæki, og einnig Gyms­hark og Women's Best. Ég heill­ast mjög af fyr­ir­tækj­um sem kynna vör­urn­ar með fyr­ir­sæt­um sem maður get­ur speglað sig í.“

Hanesa Ósk á ræktarföt í öllum regnboganslitum.
Hanesa Ósk á ræktar­föt í öll­um regn­bog­anslit­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Áttu þér upp­á­halds íþróttafata­merki?

„Þau eru nokk­ur en ef ég hugsa um er­lent íþróttafata­merki þá er það Stax, all­an dag­inn. Ég þori varla að viður­kenni hversu mikl­um pen­ing ég hef eytt í æf­inga­föt hjá því. Stax er með sturlaða út­sölu einu sinni á ári og ég reyni að vera dug­leg og nýta hana vel, en í hvert sinn sem ég klæðist ræktar­föt­um frá þessu merki þá fæ ég hrós, enda stund­um eins og gang­andi aug­lýs­ing fyr­ir fyr­ir­tækið.

Þegar kem­ur að fyr­ir­tækj­um hérna heima þá eru það klár­lega M Fit­n­ess og Define The Line. Það skipt­ir mig mestu máli að fyr­ir­tæk­in sem ég versla við passi upp á fjöl­breyti­leik­ann og bjóði upp á stærðir fyr­ir alla lík­ama. Það er ekk­ert leiðin­legra en að sjá fal­lega flík og stærsta stærðin kem­ur í L og þetta á einnig við um aug­lýs­inga­her­ferðir, það á að sýna alla lík­ama.“

Hvernig líður þér best í rækt­inni?

„Mér líður best þegar ég er með „playl­ist­ann“ minn í botni, klædd í upp­á­halds sam­fest­ing­inn minn frá Stax, sem er op­inn í bakið, og bara í ryþman­um. Ég pæli í eng­um nema sjálfri mér og eig­in mark­miðum en reyni að sjálf­sögðu að vera pepp­andi þegar ég mæti í hóp­tíma.

Það að finn­ast maður vel­kom­inn og ör­ugg­ur er svo mik­il­vægt. Það er ekk­ert sem fær mig til að líða betu en það að klára æf­ingu vel sveitt og enn peppaðri en þegar ég gekk inn.“

Hanesa Ósk er á heimavelli í ræktinni.
Hanesa Ósk er á heima­velli í rækt­inni. Ljós­mynd/​Aðsend

Af hverju ferð þú í rækt­ina?

„Rækt­in er griðarstaður­inn minn. Ég er í skóla og vinnu og haus­inn því oft á bill­jón. Þegar hlut­irn­ir verða yfirþyrm­andi þá er ekk­ert betra en að hoppa á æf­ingu, sér­stak­lega í Hot Fit eða Power Fit hjá Jenný minni, og fá þessa hvatn­ingu sem er ávallt í tím­un­um henn­ar. Rækt­in ger­ir svo mikið fyr­ir lík­ama og sál. Þetta hljóm­ar svo klisju­kennt, en ég gæti ekki ímyndað mér að stunda ekki rækt­ina. Ef það er eitt­hvað sem ég passa að hafa tíma fyr­ir þá er það rækt­in, hún hef­ur aðstoðað mig við að byggja upp sjálfs­traustið.“

Hef­ur rækt­in alltaf verið hluti af þinni viku­legu/​dag­legu rútínu?

„Já, ég gef mér alltaf góðan tíma fyr­ir rækt­ina á hverj­um degi. Mér finnst ég geisla eft­ir æf­ingu og þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn geisaði yfir gerði ég mér grein fyr­ir því hvað rækt­in var mik­il­væg­ur part­ur af dag­legri rútínu minni.“

Hvað reyn­ir þú að forðast í líf­inu?

„Kannski smá klisju­kennt en nei­kvæðni. Það er ekk­ert verra en eitrað fólk og það sem held­ur vilj­andi aft­ur af þér. Ég forðast líka drama og slúður, ef þú til­eink­ar þér slæma áv­ana þá end­ur­spegl­ar það per­sónu þína og það er orka sem ég vil ekki gefa frá mér, nei­kvæð orka smit­ar út frá sér.

Ég vil hlæja, njóta og hafa gam­an. Ég er með mjög smit­andi hlát­ur sem ég skammaðist mín lengi fyr­ir en í dag leyfi ég mér að hlæja hátt. Hlát­ur leng­ir lífið gott fólk.“

Hanesa Ósk heldur í jákvæðni.
Hanesa Ósk held­ur í já­kvæðni. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað ger­ir þú til þess að rækta þig?

„Ég er dug­leg að skrifa niður hvernig mér líður, borða holl­an mat, eða velja holl­ari kost­inn. Og eins og ég hef sagt þá stunda ég lík­ams­rækt af kappi, þegar ég lyfti lóðum þá finnst mér ég óstöðvandi og fyll­ist sjálfs­trausti sem ég vissi vart að ég byggi yfir.

Að gera mig fína og fara út að borða með góðum hópi vina er eitt­hvað sem ég elska að gera. Þegar tími og tæki­færi gef­ast þá elska ég að ferðast. Ég er ný­kom­in heim frá London en næst ligg­ur leið mín til Teneri­fe þar sem ég ætla að eyða jól­un­um í sól­inni og leyfa lit­ríka fata­stíln­um að skína.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda