10 hlutir sem þú þarft fyrir þorrablótið

Óskalisti vikunnar er með partí yfirbragði!
Óskalisti vikunnar er með partí yfirbragði! Samsett mynd

Eft­ir tveggja vikna par­típásu eft­ir ára­mót­in stytt­ist óðum í þorra­blót­in sem marg­ir hafa beðið spennt­ir eft­ir lengi. Á óskalista vik­unn­ar finn­ur þú því tíu vör­ur sem munu gera þorra­blótið að enn betri upp­lif­un, bæði fyr­ir, á meðan og á eft­ir!

Und­ir­bún­ing­ur!

Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir þorra­blót er afar mik­il­væg­ur. Best er að byrja dag­inn áður og tryggja góðan næt­ur­svefn, en það eru ekki all­ir sem ná að byrja und­ir­búnig­inn svo snemma. Þá er lyk­il­atriði að taka góða lögn sam­dæg­urs og nota­leg svefn­gríma því ómiss­andi!

Satín augngríma fæst hjá Akkúrat og kostar 3.390 kr.
Satín augn­gríma fæst hjá Akkúrat og kost­ar 3.390 kr. Ljós­mynd/​Akkurat.store

Meiri und­ir­bún­ing­ur!

Það er mikið stuð á þorra­blót­um og því þarf að leggja extra vinnu í að und­ir­búa húðina fyr­ir förðun­ina svo hún hald­ist fal­leg allt kvöldið. Þessi vara ger­ir alla vinn­una fyr­ir þig, en hún virk­ar sam­stund­is og dreg­ur úr sjá­an­leg­um öldrun­ar­merkj­um á húðinni auk þess að kafna áferð húðar­inn­ar og draga úr sýni­leika svita­hola og öra – full­komið und­ir farðann!

Hayluronic Fix Multi Blur Line & Pore Perfector 2% frá …
Hayluronic Fix Multi Blur Line & Pore Per­fector 2% frá Nip+Fab fæst í Hag­kaup og kost­ar 3.499 kr. Ljós­mynd/​Hag­kaup.is

Hinn full­komni kjóll!

Það get­ur verið snúið að finna hinn full­komna kjól fyr­ir þorra­blótið. Þessi kjóll tikk­ar hins veg­ar í ansi mörg box, en hann er stíl­hreinn en samt með skemmti­leg­um smá­atriðum sem grípa augað. Svo er auðveld­lega hægt að nota hann á hina ýmsu viðburði framund­an!

Kjóllinn fæst hjá Fou22 og kostar 26.900 kr.
Kjóll­inn fæst hjá Fou22 og kost­ar 26.900 kr. Ljós­mynd/​Fou22.is

Kom­in með nóg af kjól­um?

Eft­ir jól­in og ára­mót­in eru sum­ir hrein­lega komn­ir með al­veg nóg af því að vera í kjól­um. Eng­ar áhyggj­ur – þessi bol­ur er full­kom­inn fyr­ir þorra­blótið! Hann pass­ar við allt og það er auðvelt að dressa hann upp og niður með skarti og fylgi­hlut­um.

Bolur fæst í Vero Moda og kostar 5.990 kr.
Bol­ur fæst í Vero Moda og kost­ar 5.990 kr. Ljós­mynd/​Best­sell­er.is

Stjarna kvölds­ins!

Ef þú vilt taka lúkkið einu skrefi lengra þá er leður­kápa málið. Leðrið hef­ur verið að gera allt gjör­sam­lega vit­laust und­an­farið, en vin­sæld­irn­ar virðast bara vera að aukast og því hitt­ir þessi kápa beint í mark!

Kápa fæst hjá Zara og kostar 15.995 kr.
Kápa fæst hjá Zara og kost­ar 15.995 kr. Ljós­mynd/​Zara.com

Skvísu­skórn­ir!

Þú þarft enga mann­brodda á þess­um hæl­um! 

Skórnir fást hjá Zara og kosta 10.995 kr.
Skórn­ir fást hjá Zara og kosta 10.995 kr. Ljós­mynd/​Zara.com

Tíma­laust skart!

Fal­legt skart get­ur gert mikið fyr­ir heild­ar­lúkkið, en þetta fal­lega háls­men frá by lovisa er full­komið fyr­ir kvöldið.

Hálsmen fæst hjá by lovisa og kostar 23.600 kr.
Háls­men fæst hjá by lovisa og kost­ar 23.600 kr. Ljós­mynd/​Bylovisa.is

Ekki gleyma því mik­il­væg­asta!

Flott taska er ómiss­andi á þorra­blótið því ein­hversstaðar verður þú að geyma sím­ann og glossið – og þá er ekki verra að geta hent því ofan í al­vöru partítösku!

Taska frá Hvisk fæst í Húrra og kostar 18.990 kr.
Taska frá Hvisk fæst í Húrra og kost­ar 18.990 kr. Ljós­mynd/​Hurr­areykja­vik.is

Þegar stuðið er búið!

Þegar stuðið er búið er fátt mik­il­væg­ara en að taka af sér farðann, enda vit­um við að það fer alls ekki vel með húðina að sofa með farða! Þá kem­ur þessi mildi farðahreins­ir að góðum not­um, en hann fjar­læg­ir ekki ein­ung­is farðann held­ur hreins­ar hann húðina og tón­ar hana í leiðinni. 

Eau Efficace Gentle Makeup Remover frá Sisley Paris fæst hjá …
Eau Efficace Gentle Makeup Remo­ver frá Sisley Par­is fæst hjá Beauty­box og kost­ar 19.750 kr. Ljós­mynd/​Beauty­box.is

Síðasta skrefið!

Síðasta skref kvölds­ins er að koma sér eins vel fyr­ir og hægt er uppi í rúmi, en þá er gott að vera með nota­leg nátt­föt til­bú­in. Nátt­föt­in nýt­ast líka sér­lega vel dag­inn eft­ir, sér­stak­lega ef það var mjög mikið stuð!

Náttbuxur fást í Gina Tricot og kosta 5.595 kr.
Nátt­bux­ur fást í Gina Tricot og kosta 5.595 kr. Ljós­mynd/​Gin­at­ricot.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda