Draumurinn um hvítar sokkabuxur

Fegurðin var mikil þegar Chanel sýndi haute couture línu sína …
Fegurðin var mikil þegar Chanel sýndi haute couture línu sína fyrir vor-og sumar 2024. Samsett mynd

Hvenær klædd­ist þú síðast hvít­um sokka­bux­um? Á ferm­ing­ar­dag­inn? Ef þú vilt upp­færa stíl­inn þá sýndi franska tísku­húsið Chanel haute cout­ure-línu sína fyr­ir vor og sum­ar í fyrra­dag en þar koma stelpu­leg­ir lit­ir og tjull við sögu.

Feg­urðin var alls­ráðandi þegar Virg­inie Vi­ard svipti hul­unni af vor- og sum­ar­línu Chanel. Vi­ard er yf­ir­hönnuður tísku­húss­ins og meta sér­fræðing­ar í tísku­heim­in­um þetta þannig að lín­an hafi verið ekta hún; létt, fal­leg og stelpu­leg en á sama tíma ekta Chanel. Brjóstsyk­urslituð föt, hvít­ar sokka­bux­ur, balle­rínu­leg­ir há­hælaðir skór og tjull fram­kallaði góðar til­finn­ing­ar og ör­ugg­lega góðar minn­ing­ar hjá göml­um balle­rín­um sem svifu um svið leik­hús­anna áður en grá full­orðins­ár eyðilögðu allt.

Vellíðun­ar­hroll­ur fór um sal­inn þegar Marga­ret Qualley gekk inn í fyrsta al­klæðnaði vor- og sum­ar­lín­unn­ar. Hvít­ur jakki með gull­töl­um, sem var full­kom­inn í sniðinu – ekki víður og kauðsleg­ur, fór vel við hvít­ar sokka­bux­ur og hálf­gegn­sætt pils. Til að toppa heild­ar­mynd­ina var hún með lít­inn trúðakraga sem rammaði bring­una inn á sjarmer­andi hátt. Tjull­krag­inn minnti á ung­barnakrag­ana sem amma mín heit­in, Marta María Jón­as­dótt­ir, saumaði á ung­börn­in í fjöl­skyld­unni til að punta mjúk ung­barna­föt og fegra hvers­dag­inn. Hún vissi, líkt og Virg­inie Vi­ard, að stund­um þarf einn lít­inn kraga til að breyta heild­ar­mynd­inni.

Hvíti lit­ur­inn var áber­andi í gegn­um sýn­ing­una en í gegn­um tíðina hef­ur litap­all­etta Chanel verið mjög svört og hvít. Nú mátti sjá breiðari litap­all­ettu þar sem bæði var unnið með mjúka og stelpu­lega liti en líka sterka og kröft­uga.

Allt í allt voru 56 dress sýnd á sýn­ing­unni. Mikið var lagt í öll smá­atriði eins og út­saum og bróderí. Hjá Chanel er þó aldrei farið of langt frá upp­run­an­um því Vi­ard vill nátt­úr­lega ekki að Gabrielle Chanel snúi sér við í gröf­inni með furðuleg­heit­um, en hún lést 1971.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda