Zendaya stelur senunni trekk í trekk

Zendaya er sannkölluð tískudrottning!
Zendaya er sannkölluð tískudrottning! Samsett mynd

Á und­an­förn­um vik­um hef­ur kvik­mynd­in The Dune: Part Two verið kynnt víðsveg­ar um heim­inn og hef­ur leik­kon­an Zendaya sýnt og sannað hve mik­il tísku­drottn­ing hún er með hjálp stíl­ist­ans Law Roach. 

Zendaya hef­ur stolið sen­unni trekk í trekk á rauða dregl­in­um síðustu vik­ur, en hún toppaði sig þó í gær í Lund­ún­um þegar kvik­mynd­in var heims­frum­sýnd. Leik­kon­an hafði að mestu haldið sig við jarðliti í anda mynd­ar­inn­ar þar til hún mætti í tryllt­um vélmanna­bún­ingi út haust- og vetr­ar­línu Thierry Mugler frá ár­inu 1995. Hún skartaði glans­andi dem­ants­háls­meni við bún­ing­inn sem set­ur punkt­inn yfir i-ið og gef­ur heild­ar­lúkk­inu mik­inn glamúr, en við bún­ing­inn var hún svo í silfruðum pinna­hæl­um frá Mugler. 

Þegar kem­ur að förðun­inni leyfði hún vélmanna­bún­ingn­um að njóta sín til fulls, en hún skartaði léttri og ljóm­andi húð, glans­andi vör­um og eindaldri augn­förðun. Hárið var svo sleikt aft­ur í snúð. 

Zendaya toppaði sig þegar hún mætti í trylltum vélmannabúningi frá …
Zendaya toppaði sig þegar hún mætti í tryllt­um vélmanna­bún­ingi frá Mugler. AFP
Förðunin var einföld og minimalísk.
Förðunin var ein­föld og mini­malísk. AFP

Leik­kon­an lét sér ekki nægja að skarta einu lúkki á heims­frum­sýn­ing­unni, en þegar leið á kvöldið skipti hún yfir í svart­an gólfsíðan Mugler kjól og „vinta­ge“ Bulgari skart­gripi. 

Zendayu tókst að stela senunni tvisvar sinnum sama kvöldið.
Zendayu tókst að stela sen­unni tvisvar sinn­um sama kvöldið. AFP

Vakti eft­ir­tekt í Lou­is Vuitt­on og Bottega Veneta

Þann 12. fe­brú­ar gekk Zendaya rauða dreg­il­inn á frum­sýn­ingu kvik­mynd­ar­inn­ar í Par­ís, en þar klædd­ist hún gylltu setti frá Lou­is Vuitt­on sem vakti án efa eft­ir­tekt. Förðunin var nátt­úru­leg og tónaði vel við dressið, en áhersla var lögð á augn­förðun­ina með gyllt­um glans­andi augnskugga og gerviaugn­hár­um. 

Zendaya vakti einnig athygli þegar hún gekk rauða dregilinn í …
Zendaya vakti einnig at­hygli þegar hún gekk rauða dreg­il­inn í Par­ís í trylltu dressi frá Lou­is Vuitt­on. AFP
US actress Zendaya poses for a photocall during the preview …
US actress Zendaya poses for a photocall dur­ing the preview screen­ing event for the film "Dune: Part Two" at the Le Grand Rex Par­is cinema in Par­is on Febru­ary 12, 2024. (Photo by GEOF­FROY VAN DER HASSELT / AFP) AFP

Í byrj­un fe­brú­ar kom leik­kon­an fram á frum­sýn­ingu í Mexí­kó, en þar klædd­ist hún sér­sniðnu Bottega Veneta dressi eft­ir Matt­hieu Bla­ey. Dressið var í mokka-lit og sam­an­stóð af lan­germa toppi með rúllukraga og gólfsíðu upp­háu pilsi með þykku mitt­is­bandi úr strútsleðri. Til að full­komna lúkkið var hún með dem­ants­skartrgipi frá Bulgari og nátt­úru­lega förðun. 

Zendaya skartaði trylltu lúkki á frumsýningunni í Mexíkó fyrr í …
Zendaya skartaði trylltu lúkki á frum­sýn­ing­unni í Mexí­kó fyrr í fe­brú­ar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda