Best klæddu stjörnurnar á rauða dreglinum

Vilhjálmur Bretaprins, Da’Vine Joy Randolph, Emma Stone, Emily Blunt og …
Vilhjálmur Bretaprins, Da’Vine Joy Randolph, Emma Stone, Emily Blunt og Margot Robbie.

Bafta-kvikmyndaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Lundúnum í gær. Stjörnurnar á hátíðinni klæddust fallegum litum og góðum efnum en voru umfram allt settlegar enda ekki annað í boði í Bretlandi. 

Leikkonan Cate Blanchett vakti verðskuldaða athygli á rauða dreglinum. Blanchett hefur verið dugleg að klæðast eldri flíkum en í þetta skiptið klæddist hún kjól frá Louis Vuitton. Vínrauði kjóllinn var gerður úr afgangsefnum. Perlurnar í óvenjulegu perlufestinni voru endurnýttar úr hálsmeninu sem Blancheett bar á Bafta-verðlaunahátíðinni í fyrra. 

Hálsfesti Cate Blanchett var endurnýtt. Hér er hún annars vegar …
Hálsfesti Cate Blanchett var endurnýtt. Hér er hún annars vegar á rauða dreglinum á Bafta árið 2024 í vínrauðum kjól og hins vegar í svörtum kjól á Bafta árið 2023. Samsett mynd

Prinsinn mætti í bláu

Vilhjálmur Bretaprins mætti án eiginkonu sinnar, Katrínar prinsessu af Wales, sem er að jafna sig eftir aðgerð. Vilhjálmur kryddaði upp á hin venjulegu jakkaföt og klæddist dökkbláum jakkafötum úr flaueli og bar fallega slaufu við. Karlmennirnir voru duglegir að klæðast öðruvísi jakkafötum án þess að ganga of langt. 

Vilhjálmur Bretaprins mætti í dökkbláum jakkafötum úr flaueli.
Vilhjálmur Bretaprins mætti í dökkbláum jakkafötum úr flaueli. AFP/Adrian DENNIS
Bradley Cooper í Louis Vuitton.
Bradley Cooper í Louis Vuitton. AFP/Adrian DENNIS
Colman Domingo í fötum frá Boss.
Colman Domingo í fötum frá Boss. AFP/Adrian DENNIS
Paul Mescal í öðruvísi jakkafötum.
Paul Mescal í öðruvísi jakkafötum. AFP/Adrian DENNIS

Hér fyrir neðan má sjá fleiri fallega klæddar stjörnur á rauða dreglinum.

Rosamund Pike í bláum kjól frá Dior.
Rosamund Pike í bláum kjól frá Dior. AFP/Adrian DENNIS
Emma Stone í kjól frá Louis Vuitton.
Emma Stone í kjól frá Louis Vuitton. AFP/Adrian DENNIS
Margot Robbie var í bleikum og svörtum kjól frá Giorgio …
Margot Robbie var í bleikum og svörtum kjól frá Giorgio Armani Privé. AFP/Adrian DENNIS
Leikkonan Da'Vine Joy Randolph var í kjól frá Robert Wun.
Leikkonan Da'Vine Joy Randolph var í kjól frá Robert Wun. AFP/Adrian DENNIS
Ayo Edebiri í glamúrkjól frá Bottega Veneta.
Ayo Edebiri í glamúrkjól frá Bottega Veneta. AFP/Adrian DENNIS
Carey Mulligan í kjól frá Dior.
Carey Mulligan í kjól frá Dior. AFP/Adrian DENNIS
Emily Blunt í kjól frá Elie Saab.
Emily Blunt í kjól frá Elie Saab. AFP/Adrian DENNIS
Florence Pugh í kjól frá Harris Reed.
Florence Pugh í kjól frá Harris Reed. AFP/Adrian DENNIS
Susan Downey og Robert Downey Jr.
Susan Downey og Robert Downey Jr. AFP/Adrian DENNIS
Dua Lipa var í eldrauðum kjól frá Velentino.
Dua Lipa var í eldrauðum kjól frá Velentino. AFP
Emerald Fennell í áberandi kjól frá Armani.
Emerald Fennell í áberandi kjól frá Armani. AFP
Lily Collins í kjól með áberandi ermum.
Lily Collins í kjól með áberandi ermum. AFP/Adrian DENNIS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál