„Ég var algjör hippi sem unglingur“

Guðný Björg Hallgrímsdóttir ákvað að skrá sig í förðunarnám árið …
Guðný Björg Hallgrímsdóttir ákvað að skrá sig í förðunarnám árið 2022 og sér sannarlega ekki eftir því í dag.

Förðun­ar­fræðing­ur­inn og einkaþjálf­ar­inn Guðný Björg Hall­gríms­dótt­ir ákvað að taka u-beygju og skráði sig í förðun­ar­nám árið 2022. Í dag kenn­ir hún förðun hjá Reykja­vík Makeup School, er efn­is­höf­und­ur fyr­ir miðil­inn The Hi Beauty á In­sta­gram þar sem hún býr til förðun­ar­mynd­bönd og aðra afþrey­ingu, og tek­ur að sér ýmis verk­efni inn­an förðun­ar­brans­ans.

„Ég var al­gjör hippi sem ung­ling­ur en ég var í dansi í 13 ár svo að ég tengdi förðun meira við sviðslist eða gjörn­ing,“ seg­ir Guðný. Hún steig fyrstu skref sín í förðun þegar hún var 14 ára göm­ul, en þá seg­ir hún aðal­atriðið hafa verið að sparsla yfir ból­ur með hylj­ara og setja dökkrauðan, fjólu­blá­an eða brún­an varalit.

„Ég fór svo að mála mig sett­lega og fyr­ir al­vöru, ef svo má segja, þegar ég var í mennta­skóla,“ bæt­ir hún við.

Hér er Guðný að taka sín fyrstu skref í förðun …
Hér er Guðný að taka sín fyrstu skref í förðun 14 ára göm­ul.

„Gæti ekki ímyndað mér lífið öðru­vísi“

Guðný seg­ist alla tíð hafa verið mjög list­ræn, en hún var snemma feng­in í að farða aðra fyr­ir sviðsfram­komu í dans­in­um, sem seinna þróaðist í að farða vini og fjöl­skyldu fyr­ir ýmis til­efni

„Ég hef alltaf verið mjög list­ræn og þrífst best í skap­andi um­hverfi. Árið 2022 tók ég ákvörðun um að geyma há­skóla­námið sem ég var í og demba mér í staðinn í förðun­ar­fræði eft­ir að unnusti minn benti mér á að áhug­inn lægi greini­lega ann­ars staðar en í fé­lags­vís­ind­um, þar sem ég horfði ekki á fyr­ir­lest­ur heima fyr­ir án þess að mála mig upp sem alls kyns ver­ur. Ein­beit­ing­in var best þegar ég leyfði mér að farða mig og skissa upp næstu farðanir á blað,“ seg­ir hún.

„Ég átti svo erfitt með að trúa því að maður gæti verið í fullu starfi sem förðun­ar­fræðing­ur og unnið við eitt­hvað sem er svona skemmti­legt, en eft­ir að ég út­skrifaðist hef­ur verið nóg að gera og ég gæti ekki ímyndað mér lífið öðru­vísi,“ bæt­ir hún við.

Það hefur verið nóg að gera hjá Guðnýju eftir að …
Það hef­ur verið nóg að gera hjá Guðnýju eft­ir að hún út­skrifaðist. Ljós­mynd/​Tinna Óðins­dótt­ir

Hvernig farðar þú þig dags dag­lega?

„Yf­ir­leitt jafna ég út húðlit­inn og hyl ból­ur eða ör, skelli á mig krem sólar­púðri, kinna­lit, auga­brúnag­eli og maskara. En á góðum skvísu­degi á ég það al­veg til að skella í skemmti­leg­an „eyel­iner“ eða drama­tísk­ar var­ir.“

En þegar þú ferð eitt­hvert fínt?

„Úff, það er erfitt að velja eitt þar sem förðun­ar­stíl­ar fyr­ir mér eru eins og að velja hvaða bol ég ætla að vera í það kvöldið. En mitt ör­ugg­asta val er alltaf fersk og fal­leg húð og „edgy smokey“ augu, „smokey“ augn­blý­ant­ur eða rauður varalit­ur.“

Fersk húð, smokey-augnförðun og rauðar varir verða oft fyrir valinu …
Fersk húð, smokey-augn­förðun og rauðar var­ir verða oft fyr­ir val­inu þegar Guðný er að farða sig fyr­ir sér­stök til­efni.

Hvað tek­ur það þig lang­an tíma að gera þig til?

„Dags dag­lega tek­ur það mig sirka hálf­tíma en ég gæti þess vegna dundað mér all­an dag­inn að gera mig til þegar ég fer fínt, en mér líður best með að fá klukku­tíma eða einn og hálf­an.“

Hvernig hugs­ar þú um húðina?

„Ég hef verið að díla við horm­óna­tengd­ar ból­ur síðan ég var ung­ling­ur og hef því pælt mikið í húðum­hirðu, lesið mér til og þróað alls kyns tækni til að hylja síðan ör og ból­ur með förðun. Ég passa alltaf að neita húðinni ekki um raka svo að hún of­fram­leiði ekki olíu í varn­ar­skyni. Ég nota sól­ar­vörn alla daga og tví­hreinsa húðina á kvöld­in, en þá nota ég fyrst farðahreinsi og síðan and­lits­hreinsi sem hent­ar minni húðgerð.

Síðan passa ég að hafa húðrútín­una ekki of flókna til að espa húðina ekki upp í frek­ari ból­ur. Ég vinn bara með rakakrem, rakaser­um og síðan kannski sterk­ari sýru yfir stutt tíma­bil á meðan húðin er mjög slæm, en sem dæmi nota ég AHA-, BHA- og sal­i­sýl­sýr­ur. Ég hef fundið að míníma­lísk húðrútína fer best með mína húð.“

Guðný hugsar vel um húðina, en hún segir galdurinn vera …
Guðný hugs­ar vel um húðina, en hún seg­ir gald­ur­inn vera að hafa húðrútín­una ekki fo flókna.

Hvað er helst að finna í snyrti­budd­unni þinni?

„Ég fer varla út úr húsi án þess að vera með maskara og eitt­hvað létt á vör­un­um.“

Hverj­ar eru fimm upp­á­halds­snyrti­vör­ur þínar?

„Hot Bronzer krem-sólar­púðrið frá Chilli in June hef­ur ekki farið af mér síðan hann kom út, en lit­ur­inn Melty er full­kom­inn fyr­ir ljósa húð án þess að gera hana app­el­sínu­gula.“

„Lim­it­less-maskar­inn frá Ilia er minn „holy grail“ maskari, en hann leng­ir, þykk­ir og greiðir úr augn­hár­un­um.“

„Brow Lam­inati­on-auga­brúnag­elið frá Gosh er frá­bært til að líma auga­brún­irn­ar í það form sem maður vill og ég gæti þess vegna hent mér í heit­an leik­fim­isal og þær hagg­ast ekki.“

„Mot­h­ers­hip x Moon­lit Seducti­on-augnskuggapall­ett­an frá Pat McGr­ath er pall­etta sem ég nota á mig og nán­ast alla aðra.“

„Beyond Jelly-varalit­ur­inn frá Nabla er undra­vara sem ég get ekki verið án. Ég nota lit­inn Luz, en þetta er vara sem er eins kon­ar blanda af varalit, gloss og vara­sal­va í áferð – svo nátt­úru­leg­ur og gor­djöss!“

Guðný með ótrúlega flotta augnförðun.
Guðný með ótrú­lega flotta augn­förðun.

Hvað dreym­ir þig um að eign­ast í snyrti­budd­una?

„Ja hérna – þarf ég að velja bara eitt? Varalitap­all­etta frá Bobbi Brown er ör­ugg­lega efst á lista, en síðan koma all­ar hinar pall­ett­urn­ar frá Pat McGr­ath.“

Hvernig farðanir finnst þér skemmti­leg­ast að gera á öðrum?

„Mér finnst skemmti­leg­ast að gera ed­itorial- og fashi­on-förðun en líka brúðkaups­glamúr­förðun þar sem ég fæ að gera ljóm­andi húð með sett­leg­um sanseruðum augnskugga – míníma­lískt en frísk­legt og ljóm­andi.“

Hvers kon­ar verk­efni finnst þér skemmti­leg­ust?

„Ed­itorial-mynda­tök­ur, aug­lýs­ing­ar og kvik­mynda­brans­inn.“

Geggjuð förðun eftir Guðnýju.
Geggjuð förðun eft­ir Guðnýju. Ljós­mynd/​Elísa­bet Blön­dal

Er eitt­hvert verk­efni sem stend­ur upp úr?

„Það er erfitt að velja! Í fyrra var ég ráðin í að sminka fyr­ir banda­ríska heim­ild­ar­mynd, en ástæðan fyr­ir því að það verk­efni stend­ur svona upp úr er að það var svo magnað að leik­stjór­inn og fleiri lyk­il­menn gátu ekki flogið til Íslands, þar sem flug­inu þeirra var af­lýst og því var okk­ur öll­um stýrt í gegn­um FaceTime. Það var magnað hvernig það fór fram og hversu vel það heppnaðist miðað við aðstæður.

Síðan þykir mér af­skap­lega vænt um tök­urn­ar á veg­um ít­alska tíma­rits­ins The Web­ster. Þar var Sunna Björk förðun­ar­fræðing­ur upp­haf­lega bókuð en komst ekki vegna veik­inda og þá fékk ég þann heiður að stökkva inn og farða tvö ít­ölsk súpermód­el í fatnaði frá merkj­um á borð við Gucci, Balenciaga, Jacqu­em­us, Moon­boot og fleira. Þetta var bara svo krútt­legt, teymið var sam­an­sett af fólki frá alls kyns lönd­um í strumpar­útu sem ferðaðist um landið með nesti í bak­pok­um að mynda fyr­ir stærstu tísku­merk­in.“

Mynd úr einu af uppáhaldsverkefni Guðnýjar.
Mynd úr einu af upp­á­halds­verk­efni Guðnýj­ar. Ljós­mynd/​Alec Artidiello

Hvað er fram und­an hjá þér?

„Veistu það, ég er svo mik­il skelli­bjalla að ég spyr mig eig­in­lega sjálfa að þessu. En það er margt spenn­andi fram und­an. Ég get alla­vega sagt að það verður enn meira af förðunum, ég ætla að halda áfram að vera jámann­eskja og hafa gam­an af líf­inu. Mig dreym­ir svo um að fara út fyr­ir land­stein­ana og læra enn meira förðun­ar­tengt og klára hárstíl­ist­ann.“

Það er margt spennandi framundan hjá Guðnýju.
Það er margt spenn­andi framund­an hjá Guðnýju.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda