Sérhannaðar hárgreiðslur njóta vinsælda

Magnús Andri Ólafsson gengur undir nafninu Slakur Barber.
Magnús Andri Ólafsson gengur undir nafninu Slakur Barber. Samsett mynd

Ferm­ing­ar­dreng­ir vilja hafa hárið eins og á fræg­um fót­bolta­mönn­um. Hár­greiðslumaður­inn Magnús Andri Ólafs­son, Slak­ur Barber, seg­ir að „skin­fa­de“ sé al­ger­lega málið og þeir allra trúuðustu fái sér kross í hliðina eða mynstur.

Magnús Andri, Slak­ur Barber, rek­ur hár­greiðslu­stof­una Studio 220 í Hafnar­f­irði ásamt Gunn­ari Jónasi Hauks­syni, sem kall­ar sig GuzCut. Þegar Magnús Andri er spurður út í ferm­ing­ar­hár­tísk­una hjá karlpen­ingn­um seg­ir hann að allt gangi út á „skin­fa­de“. En hvað er það eig­in­lega? „Skin­fa­de“ þýðir í raun að hárið er rakað í hliðunum á mjög ná­kvæm­an hátt þannig að höfuðið verði í raun eins og lista­verk eða jafn­vel fylgi­hlut­ur. Hár­greiðslan á ræt­ur sín­ar að rekja til þekktra er­lendra fót­bolta­manna eins og Cristiano Ronaldo.

„Við Slak­ur Barber og GuzCut mynd­um segja að ferm­ing­arklipp­ing­arn­ar ein­kenn­ist af „skin­fa­de“ og „design“ í hinum ýmsu stærðum og gerðum ásamt því að vera með topp­inn greidd­an niður og svo­lítið „messy“ eða skipt í 70/​30 skipt­ingu og „line-up“,“ seg­ir Magnús Andri.

Hann seg­ir að hver og ein greiðsla sé sér­hönnuð og hægt sé að fara marg­ar leiðir til að vera flott­ur um hárið.

„Ef þú ætl­ar alla leið og ert vel trúaður færðu þér kross­inn í aðra hliðina,“ seg­ir Magnús Andri.

Sam­sett mynd
Þeir allra trúuðustu fá sér kross í hliðarnar.
Þeir allra trúuðustu fá sér kross í hliðarn­ar.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda