Lét drauminn rætast þegar hún stóð á tímamótum

Aðalbjörg Reynis Eðvarðsdóttir er að sigla inn í sína fyrstu …
Aðalbjörg Reynis Eðvarðsdóttir er að sigla inn í sína fyrstu fermingarvertíð. Hún var að gera fermingargreiðslu þegar ljósmyndara bar að garði. mbl.is/Árni Sæberg

Aðal­björg Reyn­is Eðvarðsdótt­ir, flug­freyja hjá Icelanda­ir og hársnyrt­ir á Wave Hair salon, er spennt fyr­ir kom­andi ferm­ing­ar­vertíð. Hún hef­ur í nógu að snú­ast að greiða ferm­ing­ar­börn­um sem hún seg­ir að séu með ákveðnar skoðanir. Í ár fermist einnig son­ur Aðal­bjarg­ar en fjöl­skyld­an byrjaði að leggja drög að veisl­unni fyr­ir ára­mót.

Aðal­björg starfar bæði sem flug­freyja og sem hársnyrt­ir en hún lét gaml­an draum ræt­ast í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um og hóf nám Tækni­skól­an­um í hársnyrtiiðn. „Áður en ég byrjaði að starfa sem flug­freyja vann ég sem stílisti og blaðamaður hjá út­gáfu­fé­lag­inu Birt­ingi. Ég hef alltaf verið viðloðandi tísku og haft mik­inn áhuga henni. Ég ég rak líka fata­búð í gamla daga sem hét Noi. Ég hef því bæði haft áhuga á föt­um og hári. Ég hafði lengi hugsað það að læra hár­greiðslu en aldrei látið verða að því. Þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn kom skellti ég mér í skóla,“ seg­ir Aðal­björg sem er svo lukku­leg að starfa í tveim­ur grein­um sem henni finnst jafn­skemmti­leg­ar.

Nátt­úru­legt út­lit hjá ferm­ing­ar­stelp­um

Í hársnyrti­nám­inu er farið vel yfir hár­greiðslur, bæði hvað varðar list­grein­ina sjálfa en líka hár­tísk­una fyrr og nú. Aðal­björg seg­ir lyk­il­atriði að und­ir­búa hárið vel og nota góð efni í hárið þegar það er þvegið og blásið. Und­ir­bún­ing­ur­inn skil­ar sér svo þegar hárið er til dæm­is slétt eða krullað, þannig helst hár­greiðslan vel í hár­inu.

Hvað er í tísku núna?

„Síðastliðin fimm ár hef­ur verið óbreytt hár­tíska. Það er miklu minna um greiðslur í dag en var hér áður fyrr. Þá voru meiri greiðslur og hárið oft sett upp. Í dag eru greiðslurn­ar hjá stelp­um ofsa­lega nátt­úru­leg­ar. Eins og við vit­um þá fer tísk­an í hringi en ég myndi segja að hún hafi verið eins síðastliðin ár. Það er mjög mikið verið að að gera nátt­úru­leg­ar krull­ur í hárið svo er oft sett flétta í hring of­ar­lega á hár­inu með,“ seg­ir Aðal­björg sem seg­ir skemmti­legt að leika sér með mis­mun­andi teg­und­ir af bylgju- og krullu­járn­um og mis­mun­andi flétt­um til dæm­is fiskiflétt­um. Þá setja fal­leg­ar spenn­ur eða blóm oft punkt­inn yfir i-ið.

Aðal­björg seg­ir gott að fara í prufu­greiðslu. Þá gefst tími til að tala um hár­greiðsluna og ferm­ing­ar­föt­in.

„Með því að sjá föt­in fær maður inn­blást­ur líka. Þessi kjóll pass­ar vel við svona fléttu. Það er gott fyr­ir mig en líka fyr­ir ferm­ing­ar­barnið sjálft. Svo má ekki gleyma að krakk­ar í dag eru með marg­ar hug­mynd­ir út af sam­fé­lags­miðlum. Auðvitað get ég komið með ein­hverja hug­mynd en þau sjá oft eitt­hvað á Pin­t­erest eða á In­sta­gram. Þau vita al­veg hvað þau vilja.“

Í þessari fermingarhárgreiðslu tók Aðalbjörg hárið upp að hluta með …
Í þess­ari ferm­ing­ar­hár­greiðslu tók Aðal­björg hárið upp að hluta með fal­legri fléttu sem kall­ast „water­fall“. Hún notaði svo keilu­járn til þess að gera nátt­úru­lega liði í hárið. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Eru stelp­ur enn að safna hári fyr­ir ferm­ingu?

„Já, mér finnst það. Auðvitað eru líka stelp­ur með fal­legt stutt hár. Þá er oft sett blómaspöng eða spenn­ur í hárið.“

Hvenær byrja krakk­ar að lita hárið?

„Sum­ir vilja ekki lita hárið fyrr en eft­ir ferm­ingu. En aðrir, strák­ar eða stelp­ur, vilja fá stríp­ur. Þá myndi ég segja að það væru nokkr­ar stríp­ur. Við erum ekki að tala um neitt svaka­lega mikið. Bara til að fá fersk­leika í hárið. Það er sama í stríp­um í dag, það vilja all­ir fá þetta nátt­úru­lega út­lit.“

Hvernig er hár­tísk­an hjá strák­un­um?

„Það er mik­il stráka­tíska sem er mik­il breyt­ing frá því sem var. Nú eru þeir komn­ir með sterk­ar skoðanir á því hvernig hárið á að vera. „Fade“-hár­greiðsla er í tísku hjá strák­um,“ seg­ir Aðal­björg. Hún seg­ir strák­arn­ir einnig fá hug­mynd­ir sín­ar frá þekkt­um knatt­spyrnu­mönn­um.

Hvernig hár­greiðslu varst þú með þegar þú fermd­ist?

„Ég gleymi því aldrei. Það er mik­il breyt­ing frá því ég fermd­ist. Þá var allt tú­berað og mikið hár­sprey. Hárið hefði hald­ist al­veg eins í viku það var svo mikið sprey. Það er mik­il breyt­ing frá þessu nátt­úru­lega út­liti sem er í tísku núna. Ég var með stutt hár í ferm­ing­unni minni. Það var mikið um stutt­ar klipp­ing­ar. Tú­berað, stutt hár og blóm. Ferm­ing­ar­mynd­in er ekki oft dreg­in fram,“ seg­ir Aðal­björg og hlær.

Falleg blóm eins og brúðarslör lífga upp á heildarútlitið á …
Fal­leg blóm eins og brúðarslör lífga upp á heild­ar­út­litið á ferm­ing­ar­dag­inn. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Byrjuðu að skipu­leggja ferm­ing­una snemma

Einka­son­ur­inn Kol­beinn fermist í ár og er mik­il til­hlökk­un fyr­ir deg­in­um. „Und­ir­bún­ing­ur­inn geng­ur mjög vel. Það var búið að segja manni að vera mjög tím­an­leg­ur í einu og öllu. Bæði hvað varðar sal og veit­ing­ar. Ég byrjaði að huga að þessu vel fyr­ir jól. Eina sem þarf að græja eru föt­in og mamma græj­ar hárið.“

Hvernig er að fylgj­ast með barn­inu fara í gegn­um þenn­an vet­ur?

„Þetta eru mik­il tíma­mót fyr­ir for­eldra og barn að fara í gegn­um ferm­ing­una. Það er búið að vera mjög skemmti­legt að fylgja hon­um eft­ir í þessu. Ferm­ing­ar­fræðslan fer skemmti­lega fram og for­eldr­arn­ir fá að taka þátt sem er breyt­ing frá því að ég fermd­ist. Mér finnst það áhuga­vert og skemmti­legt.“

Aðal­björg seg­ir gam­an að sjá hvað margt er í boði þegar kem­ur að veislu­höld­um. Þau ætla hins veg­ar að fara ein­falda leið þegar kem­ur að veisl­unni.

„Ég ætla að fara lát­lausa leið. Við leigðum lít­inn, fal­leg­an sal á Seltjarna­nesi þar sem við búum og ætl­um að vera með þessa klass­íska kran­sa­köku sem ferm­inga­köku og snitt­ur frá hverf­is­veit­ing­arstaðnum Ráðagerði. Bara létt­ar veit­ing­ar,“ seg­ir Aðal­björg sem er laus við allt stress sem fylg­ir því stund­um að halda ferm­ing­ar­veisl­ur.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda