„Fyrirgefðu, áttu nokkuð laust herbergi?“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Leik­ar­inn Brad Pitt og Pené­lope Cruz leika drama­tískt og ást­fangið par í nýrri aug­lýs­ingu fyr­ir franska tísku­húsið Chanel. Í aug­lýs­ing­unni leika þau atriði úr kvik­mynd­inni A Man and A Wom­an eft­ir Clau­de Lelouch. Mynd­in kom út í Frakklandi 1966 og hlaut Gullpálm­ann á kvik­mynda­hátíðinni í Cann­es sama ár. 

    Ein fræg­asta setn­ing mynd­ar­inn­ar er þegar parið kem­ur á veit­ingastað og hún spyr þjón­inn hvort það sé laust her­bergi.

    „Fyr­ir­gefðu, áttu nokkuð laust her­bergi?“

    Virg­inie Vi­ard, yf­ir­hönnuður Chanel, er mik­il kvik­mynda­áhuga­mann­eskja og langaði hana að heiðra meist­ara­verk Clau­de Lelouch í aug­lýs­ing­unni. Hún vildi fram­kalla sömu stemn­ingu og ríkti í mynd­inni og var aug­lýs­ing­in tek­in upp í Deau­ville í Frakklandi. Tísku­húsið á líka sína teng­ingu við Deau­ville því þar opnaði Gabrielle Chanel, sem yf­ir­leitt var kölluð Coco Chanel, hatta­versl­un með sama nafni 1912. Ári síðar kynnti hún fyrstu Haute Cout­ure línu sína sem kom henni á kortið. 

    Chanel 11.12 handtaskan var upphaflega hönnuð 1955.
    Chanel 11.12 hand­task­an var upp­haf­lega hönnuð 1955.

    Í mynd­inni A Man and A Wom­an var aðalleik­kon­an, Anouk Aimée, með Chanel-tösku sem var í henn­ar einka­eigu. Hún var bæði með tösk­una í mynd­inni en líka í sínu raun­veru­lega lífi. Um er að ræða þessa klass­ísku 11.12 hand­tösku frá Chanel sem notið hef­ur vin­sælda en fyrsta út­gáf­an leit dags­ins ljós 1955. Chanel-aðdá­end­ur eru á því að þessi hand­taska passi við allt. Lyfti kvöld­kjóln­um upp á næsta stig en lífgi líka upp grá­an hvers­dags­leika þegar hún er notuð við galla­bux­ur og ull­ar­káp­ur. Tösk­urn­ar ganga manna á milli, erf­ast á milli kyn­slóða, og gera fátt annað en að hækka í verði - sama hvernig efna­hags­ástand er í heim­in­um. 

    Hér eru Brad Pitt og Penélope Cruz í hlutverkum sínum …
    Hér eru Brad Pitt og Pené­lope Cruz í hlut­verk­um sín­um á veit­ingastaðnum. Chanel-task­an sóm­ir sér vel á borðinu.

    Inez & Vin­oodh myndaði og leik­stýrði aug­lýs­ing­unni og gæt­ir þess vel að halda sig við upp­run­ann. Hvert orð er eins og í upp­runa­legu mynd­inni og þegar vel er að gáð er ekki laust við að Aimée og Cruz séu bara nokkuð áþekk­ar. Cruz hef­ur verið and­lit Chanel síðan 2018 og pass­ar vel inn í það hlut­verk. 

    A Man and A Wom­an eft­ir Clau­de Lelouch fjall­ar um karl og konu, ekkil og ekkju, sem hitt­ast í heima­vist­ar­skóla barna sinna. Þegar þau hitt­ast smell­ur eitt­hvað en hik og ótti þvæl­ast fyr­ir þeim. En svo breyt­ist allt. A Man and A Wom­an var tek­in upp á þrem­ur vik­um vegna bágr­ar fjár­hags­stöðu leik­stjór­ans og voru sum atriðin í mynd­inni í svart­hvítu til að spara pen­inga. Þess má geta að leik­kon­an, Anouk Aimée, klædd­ist sín­um eig­in föt­um og það var ein­mitt þess vegna sem Chanel-task­an kom til sögu. 

    Hér eru þau á göngu á ströndinni.
    Hér eru þau á göngu á strönd­inni.
    Brad Pitt og Penélope Cruz í hlutverkum sínum í auglýsingunni.
    Brad Pitt og Pené­lope Cruz í hlut­verk­um sín­um í aug­lýs­ing­unni.
    Hér er taskan við bílrúðuna.
    Hér er task­an við bíl­rúðuna.
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda