10 hlutir sem þú munt elska á útskriftardaginn

Óskalisti vikunnar er tileinkaður útskriftarskvísum landsins!
Óskalisti vikunnar er tileinkaður útskriftarskvísum landsins! Samsett mynd

Útskrift­ar­tíma­bilið er að hefjast og því ekki seinna vænna að fara að huga að deg­in­um. Á óskalista vik­unn­ar finn­ur þú tíu vör­ur sem eru full­komn­ar fyr­ir út­skrift­ar­dag­inn, allt frá drauma­kjóln­um yfir í kökudisk­inn sem er ómiss­andi á út­skrift­ar­dag­inn!

Drauma­kjóll­inn!

Það er fátt sem topp­ar fal­leg­an hvít­an kjól á út­skrift­ar­dag­inn. Þessi kjóll er eft­ir ís­lenska hönnuðinn Eddu Gunn­laugs­dótt­ur og er í afar fal­legu og klæðilegu sniði. 

Flóra kjóll fæst hjá ddea og kostar 75.000 krónur.
Flóra kjóll fæst hjá ddea og kost­ar 75.000 krón­ur. Ljós­mynd/​Ddea.is

Klass­ísk­ir en tryllt­ir!

Þess­ir flottu hæla­skór eru klass­ísk­ir og geta passað við nán­ast allt, en það sem ger­ir þá extra flotta er tull-efnið sem get­ur poppað upp hvaða lúkk sem er!

Hælaskór fást hjá Zara og kosta 8.995 krónur.
Hæla­skór fást hjá Zara og kosta 8.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Augna­kon­fekt!

Þetta fagra pils frá Hou­se of Sunny er sann­kallað augna­kon­fekt sem auðvelt er að dressa upp eða niður – það er nefni­lega extra gam­an að geta notað út­skrift­ar­dressið áfram!

Pils frá House of Sunny fæst hjá Yeoman og kostar …
Pils frá Hou­se of Sunny fæst hjá Yeom­an og kost­ar 20.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Hild­uryeom­an.com

Fáguð og töff!

Blúndu­skyrt­an frá Opéra Sport er líka án efa flík sem hef­ur mikið nota­gildi eft­ir út­skrift­ar­dag­inn, en hana er einnig auðvelt að dressa upp og niður enda ein­stak­lega smart.

Blúnduskyrta frá Opéra Sport fæst hjá Húrra Reykjavík og kostar …
Blúndu­skyrta frá Opéra Sport fæst hjá Húrra Reykja­vík og kost­ar 35.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Hurr­areykja­vik.is

Tíma­laust með tvisti!

Perl­ur eru alltaf fal­leg­ar í skarti, en þetta háls­men er með skemmti­legu tvisti sem ger­ir það sann­ar­lega ein­stakt. Svo er það líka til­val­in út­skrift­ar­gjöf fyr­ir þá sem eru í leit að slíkri!

Hálsmenið fæst hjá Aftur og kostar 28.800 krónur.
Háls­menið fæst hjá Aft­ur og kost­ar 28.800 krón­ur. Ljós­mynd/​Aft­ur.is

Fyr­ir veisl­una!

Það er ómiss­andi að eiga fal­leg­an kökustand fyr­ir út­skrift­ar­veisl­una. Þessi popp­ar án efa upp veislu­borðið og gef­ur því sum­ar­legt yf­ir­bragð!

Kökudiskur frá IB Laursen fæst hjá Fakó og kostar 7.900 …
Kökudisk­ur frá IB Laur­sen fæst hjá Fakó og kost­ar 7.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Fako.is

Glit­ur á út­skrift­ar­dag­inn!

Ef það er ein­hvern tím­ann til­efni til að glitra þá er það á út­skrift­ar­dag­inn! Þessi guðdóm­legi jakki mun setja punkt­inn yfir i-ið á út­skrift­ar­dress­inu.

Blazer-jakki fæst hjá Zara og kostar 11.995 krónur.
Blazer-jakki fæst hjá Zara og kost­ar 11.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Þessi sem fer beint á óskalist­ann!

Þessi hring­ur er úr vöru­lín­unni Eld­ur og Ís frá Sign og prýðir án efa óskalista margra fag­ur­kera. Hann er líka full­kom­in gjöf!

Hringur fæst hjá Sign og kostar 21.900 krónur.
Hring­ur fæst hjá Sign og kost­ar 21.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Sign.is

Hlé­b­arðaæði frá toppi til táar!

Sann­kallað hlé­b­arðaæði hef­ur tekið yfir tísku­heim­inn og því er vel við hæfi að klæðast mynstr­inu frá toppi til táar á út­skrift­ar­dag­inn!

Dressið fæst í Zara. Buxurnar kosta 4.595 krónur og toppurinn …
Dressið fæst í Zara. Bux­urn­ar kosta 4.595 krón­ur og topp­ur­inn kost­ar 4.595 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Töfr­andi augnaráð! 

Ef þig lang­ar að út­skrif­ast eða mæta í út­skrift­ar­veislu þá gæti þessi augnskuggi frá Chanel hitta í mark. Hann virk­ar hvít­ur á lit­inn en er með perlu­áferð gef­ur augnsvæðinu meiri dýpt. 

Chanel Ombre Essentielle augnskugginn virkar hvítur en verður bleikur þegar …
Chanel Ombre Essentielle augnskugg­inn virk­ar hvít­ur en verður bleik­ur þegar hann kem­ur á augn­lokið. Ljós­mynd/​Chanel.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda