Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr er meðalmaður á hæð og er í kjörþyngd. Þess vegna ætlar hann að gefa einum heppnum einstaklingi sex nærbuxur í stærðinni L sem passa ekki á hann sjálfan. Nærbuxurnar eru of stórar því hann notar M.
Jón auglýsti nærbuxurnar á síðunni Brask og brall.is:
„Sonur minn gaf mér nærbuxur sem hann keypti í Ameríku en þær eru of stórar, eru L en ég nota M. Mig langar því að gefa þær einhverjum sem getur notað þær. Þetta eru 6 stk. ónotaðar nærbuxur. Áhugasamir geta sótt þær á kosningaskrifstofu mína á milli 3 og 6 í dag,“ segir Jón Gnarr í auglýsingunni.
Ef þig sárvantar nærbuxur í svörtum lit frá fatamerkinu Jokey og fílar 100% bómull þá gætu þessar nærbuxur átt heima í fataskápnum þínum. Kosningaskrifstofa Jóns Gnarr er við Aðalstræti í Reykjavík.