10 hlutir sem eru ómissandi á ströndina

Óskalisti vikunnar er sumarlegur!
Óskalisti vikunnar er sumarlegur! Samsett mynd

Júní­mánuður er framund­an með til­heyr­andi sól­ar­landa­ferðum. Það er fátt sem við Íslend­ing­ar kunn­um að meta jafn mikið og sól­rík­an dag á strönd­inni eft­ir kald­an og dimm­an vet­ur á klak­an­um. Því prýða óskalista vik­unn­ar tíu vör­ur sem er ómiss­andi að taka með sér á strönd­ina!

Ómiss­andi fyr­ir strand­ar­ferðina!

Það er ómiss­andi að vera með gott hand­klæði meðferðis á strönd­ina, bæði til að geta legið á en líka til að þurrka sér með eft­ir að maður kæl­ir sig í sjón­um. Það skemm­ir að sjálf­sögðu ekki fyr­ir ef hand­klæðið er fal­legt, en þetta rönd­ótta hand­klæði frá Tekla klikk­ar í öll box­in.

Handklæði frá Tekla fæst hjá epal og kostar 8.500 krónur.
Hand­klæði frá Tekla fæst hjá epal og kost­ar 8.500 krón­ur. Ljós­mynd/​Teklafa­brics.com

Þægi­legt og praktískt!

Fal­leg­ar „overs­ized“ skyrt­ur eru ekki bara flott­ar held­ur líka praktísk­ar fyr­ir sól­ar­landa­ferðina. Það er auðvelt að henda þeim yfir bik­iníið á leiðinni á og frá strönd­inni, en svo er líka hægt að nota þær við stutt­bux­ur eða pils til að rölta um bæ­inn.

Skyrta fæst hjá Zara og kostar 4.595 krónur.
Skyrta fæst hjá Zara og kost­ar 4.595 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Inn­blást­ur frá Stokk­hólmi!

Hver er ekki til í að fá inn­blást­ur frá tískugyðjun­um í Stokk­hólmi? Þessi flottu sólgler­augu eru úr sam­starfs­línu Corlin, en þau eru inn­blás­in af Stokk­hólmi og setja punkt­inn yfir i-ið á hvaða lúkki sem er. 

Sólgleraugu frá Corlin fást hjá Sis Bis og kosta 15.990 …
Sólgler­augu frá Corlin fást hjá Sis Bis og kosta 15.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Sis­bis.is

Litagleði og smá­atriði!

Úrvalið af sund­föt­um hef­ur lík­lega sjald­an verið betra – það ligg­ur við að því fylgi smá val­kvíði. Með því að velja stíl­hrein sund­föt í skemmti­leg­um lit get­ur þú verið viss um að slá í gegn, en þar að auki eru skemmti­leg smá­atriði á þessu bik­iníi sem gleðja augað.

Bikiní fæst hjá H&M. Toppurinn kostar 1.940 krónur og buxurnar …
Bik­iní fæst hjá H&M. Topp­ur­inn kost­ar 1.940 krón­ur og bux­urn­ar 1.790 krón­ur. Ljós­mynd/​Hm.com

Sum­artask­an í ár!

Það er nauðsyn­legt að eiga góða strand­artösku fyr­ir sum­arið. Þessi er í akkúrat réttri stærð og kem­ur í nokkr­um fal­leg­um lit­um.

Strandtaska frá Becksöndergaard fæst hjá Boozt og kostar 9.969 krónur.
Strand­taska frá Becksönd­erga­ard fæst hjá Boozt og kost­ar 9.969 krón­ur. Ljós­mynd/​Becksond­erga­ard.com

Það allra mik­il­væg­asta!

Ef það er eitt­hvað sem þú verður að taka með þér á strönd­ina, þá er það góð sól­ar­vörn. Þessi vörn frá EVY er sér­stak­lega gerð fyr­ir viðkvæma húð og kem­ur í nokkr­um styrk­leik­um, en hana má nota bæði á lík­amann og í and­litið. 

Sólarvörn frá EVY fæst hjá Lyfju og kostar 3.529 krónur.
Sól­ar­vörn frá EVY fæst hjá Lyfju og kost­ar 3.529 krón­ur. Ljós­mynd/​50-ml.com

Það allra heit­asta!

Það stefn­ir allt í að heklaðar vör­ur verði það allra heit­asta í sum­ar, bæði í sund­fatnaði en líka í sum­arfatnaði. Þetta pils er ómiss­andi í fríið – skelltu þér í það eft­ir góðan dag á strönd­inni og þú ert til­bú­in í kvöldið.

Heklað pils fæst hjá Gina Tricot og kostar 12.895 krónur.
Heklað pils fæst hjá Gina Tricot og kost­ar 12.895 krón­ur. Ljós­mynd/​Gin­at­ricot.is

Bók­in sem þú nærð að klára!

Hver kann­ast ekki við að taka með sér bók til að lesa á strönd­inni sem end­ar svo á því að vera ofan í tösku alla ferðina? Þessi bók er full­kom­in í fríið því hún er hæfi­lega löng og þú munt ekki geta lagt hana frá þér!

Eyja eftir Ragnhildi Þrastadóttur fæst hjá Pennanum Eymundsson og kostar …
Eyja eft­ir Ragn­hildi Þrasta­dótt­ur fæst hjá Penn­an­um Ey­munds­son og kost­ar 3.699 krón­ur. Ljós­mynd/​Penn­inn.is

Stíl­hreint og smart!

Það verða all­ir að eiga góða sandala sem eru stíl­hrein­ir og smart. Þess­ir ættu að falla vel í kramið hjá fag­ur­ker­um lands­ins!

Sandalar fást hjá Zara og kosta 8.995 krónur.
Sandal­ar fást hjá Zara og kosta 8.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Kú­reka­sum­arið mikla!

Tísku­sér­fræðing­ar hafa spáð því að kú­reka­sum­arið mikla sé framund­an og því er vel við hæfi að fjár­festa í góðum strand­hatt í kú­rekasniði!

Hattur fæst hjá Ethic og kostar 4.900 krónur.
Hatt­ur fæst hjá Et­hic og kost­ar 4.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Et­hic.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda