Þetta eru fimm heitustu sundfatatrendin í ár

Sunfatatískan í ár er sérlega fjölbreytt og skemmtileg!
Sunfatatískan í ár er sérlega fjölbreytt og skemmtileg! Samsett mynd

Að und­an­förnu höf­um við fengið að sjá fleiri bik­iní­mynd­ir og færri skíðamynd­ir á sam­fé­lags­miðlum og það þýðir aðeins eitt – það er komið sum­ar og tími til að draga fram upp­á­halds­sund­föt­in!

Í ár er sund­fata­tísk­an bæði fjöl­breytt og skemmti­leg og því ættu all­ir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Þeir sem aðhyll­ast mini­malísk­an lífs­stíl munu ekki eiga í nein­um vand­ræðum með að finna sér fal­leg sund­föt, og ekki held­ur þeir sem elska lit­rík­ar flík­ur og mynstur.

Smart­land tók sam­an það allra heit­asta í sund­fata­tísk­unni í ár, en tísku­sér­fræðing­ar eru sam­mála um að það séu fimm trend sem verði sér­lega áber­andi í sum­ar. 

Stíl­hrein­ar lín­ur

Mini­malísk sund­föt með stíl­hrein­um lín­um og 90's yf­ir­bragði eru áber­andi um þess­ar mund­ir, en hvíti og svarti lit­ur­inn eru þar alls­ráðandi bæði í sund­bol­um og bik­in­íum.

Bikiní frá Monday Swimwear.
Bik­iní frá Monday Swimwe­ar. Ljós­mynd/​Mondayswimwe­ar.com
Sundbolur frá American Eagle.
Sund­bol­ur frá American Eagle. Ljós­mynd/​Ae.com
Bikiní fæst hjá Fou22. Toppurinn kostar 8.900 krónur og buxurnar …
Bik­iní fæst hjá Fou22. Topp­ur­inn kost­ar 8.900 krón­ur og bux­urn­ar kosta 7.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Fou22.is

Skemmti­leg smá­atriði

Að und­an­förnu hafa skemmti­leg smá­atriði sem gleðja augað verið alls­ráðandi í tísku­heim­in­um, allt frá slauf­um yfir í steina og pallí­ett­ur. Sund­föt eru ekki und­an­skil­in því trendi og því meg­um við bú­ast við því að sjá óvænt smá­atriði í sund­fata­tísku sum­ars­ins.

Bikiní frá Monday Swimwear.
Bik­iní frá Monday Swimwe­ar. Ljós­mynd/​Mondayswimwe­ar.com
Bikiní fæst hjá Lífstykkjabúðinni. Toppurinn kostar 25.900 krónur og buxurnar …
Bik­iní fæst hjá Lífstykkja­búðinni. Topp­ur­inn kost­ar 25.900 krón­ur og bux­urn­ar kosta 11.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Lifstykkja­budin.is
Bikiní fæst hjá Zara. Toppurinn kostar 4.595 krónur og buxurnar …
Bik­iní fæst hjá Zara. Topp­ur­inn kost­ar 4.595 krón­ur og bux­urn­ar kosta 3.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

Mis­mun­andi áferð

Í dag er hægt að fá sund­föt með ým­is­kon­ar áferð á, en það er akkúrat það sem set­ur oft punkt­inn yfir i-ið. Hekluð sund­föt eru að koma sterk inn í sum­ar­tísk­una í ár, en svo verður rykkt áferð einnig áber­andi í sund­fatnaði. 

Heklað bikiní frá White Fox Boutique.
Heklað bik­iní frá White Fox Bout­ique. Ljós­mynd/​Whitefox­bout­ique.com
Silfrað bikiní frá Triangl.
Silfrað bik­iní frá Triangl. Ljós­mynd/​Triangl.com
Bikiní frá Aim'n fæst hjá Wodbúð. Toppurinn kostar 5.500 krónur …
Bik­iní frá Aim'n fæst hjá Wod­búð. Topp­ur­inn kost­ar 5.500 krón­ur og bux­urn­ar kosta 4.500 krón­ur. Ljós­mynd/​Wod­bud.is

Heill­andi mynstur

Mynstr­in hafa verið með ótrú­lega end­ur­komu í tísku­heim­inn á und­an­förn­um mánuðum og þá sér­stak­lega dýra­mynst­ur eins og hlé­b­arða- og bletta­tíg­ur­mynst­ur. Þá hafa blóma­mynst­ur einnig heillað ófáa og því ekki ólík­legt að mynstruð bik­iní verði með því vin­sæl­asta í sum­ar. 

Bikiní frá Monday Swimwear.
Bik­iní frá Monday Swimwe­ar. Ljós­mynd/​Mondayswimwe­ar.com
Bikiní frá Envii fæst hjá Gallerí 17. Toppurinn kostar 6.995 …
Bik­iní frá En­vii fæst hjá Galle­rí 17. Topp­ur­inn kost­ar 6.995 krón­ur og bux­urn­ar kosta 5.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Ntc.is
Sundbolur frá Baiia.
Sund­bol­ur frá Baiia. Ljós­mynd/​Baiia.co

Sjarmer­andi snið

Úrvalið af sund­föt­um í mis­mun­andi sniðum hef­ur sjald­an verið meira, en í ár virðast ákveðin snið vera meira áber­andi en önn­ur. Þar má nefna túbu­sund­boli og -bík­iní með eng­um bönd­um yfir axl­irn­ar, sund­föt með bandi yfir aðra öxl­ina og sund­föt með erm­ar sem ná niður á upp­hand­legg­ina.

Öll þessi snið eiga það sam­eig­in­legt að leyfa öxl­un­um og bring­unni að njóta sín!

Sundbolurinn fæst hjá Zara og kostar 6.995 krónur.
Sund­bol­ur­inn fæst hjá Zara og kost­ar 6.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com
Bikiní frá Maygel Coronel.
Bik­iní frá Mayg­el Coronel. Ljós­mynd/​Net-a-port­er.com
Sundbolur frá MyraSwim.
Sund­bol­ur frá MyraSwim. Ljós­mynd/​Myraswim.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda