Edda Gunnlaugs: Helstu tískustraumarnir fyrir sumarið

Á tískupöllunum fyrir sumarið var flest látlaust, litir daufir og mynstrin fjarri því að vera æpandi. En þó kemur alltaf meiri litagleði með sumrinu og ekki veitir af hér á landi. Litir eins og hvítur, silfur, gull, kirsuberjarauður og nokkrar útgáfur af gulum verða áberandi í sumar.

Margir geta svo gleðst yfir því að kögur sást hjá stóru tískuhúsunum eins og Prada, Gucci og Rabanne sem er vísun í kúrekatískuna sem hefur verið vinsæl undanfarið. Þú kemst langt með það sem er sennilega í fataskápnum nú þegar, eins og hvítur stuttermabolur, gallaefni, flatbotna ballerínuskór, smá af rauðu og taska sem getur geymt allt það helsta.

Kögur

Kögrið er komið aftur margra til mikillar gleði. Kögurjakkar, belti eða kjólar verða áberandi í sumar og þessi tíska tekur kúrekatískuna á næsta stig.

Sumarlína Prada.
Sumarlína Prada.
Kjóll úr Zöru, 26.995 kr.
Kjóll úr Zöru, 26.995 kr.
Jakki frá Herskind, fæst í Mathilda. 159.990 kr.
Jakki frá Herskind, fæst í Mathilda. 159.990 kr.

Gallaefni

Það er alltaf eitthvað svo sumarlegt við gallaefni. Frasinn „öllu má nú ofgera“ á ekki við og flottast er að blanda nokkrum gallaflíkum saman, tösku og skóm.

Monikh Dale tísku- og lífsstílsáhrifavaldur.
Monikh Dale tísku- og lífsstílsáhrifavaldur.
Taska frá Jacquemus, fæst í Collage The Shop á Hafnartorgi.
Taska frá Jacquemus, fæst í Collage The Shop á Hafnartorgi.
Pils frá Ganni, fæst í GK Reykjavík og kostar 42.995.
Pils frá Ganni, fæst í GK Reykjavík og kostar 42.995.
Skór frá íslenska merkinu KALDA, kosta 57.500 kr.
Skór frá íslenska merkinu KALDA, kosta 57.500 kr.
Gallajakki úr Vero Moda, kostar 9.990 kr.
Gallajakki úr Vero Moda, kostar 9.990 kr.

Kirsuberjarautt

Rauður hefur verið áberandi í vetur og heldur það áfram. Kirsuberjarauðir fylgihlutir munu gera mikið ef dressið er annars litlaust.

Blanca Miro. Rauða taskan gerir mikið.
Blanca Miro. Rauða taskan gerir mikið.
Skór frá Ganni, fást í Andrá Reykjavík og kosta 49,900 …
Skór frá Ganni, fást í Andrá Reykjavík og kosta 49,900 kr.
Rauð skyrta frá Opéra Sport, fæst í Húrra Reykjavík og …
Rauð skyrta frá Opéra Sport, fæst í Húrra Reykjavík og kostar 35.990 kr.

Gull og silfur

Þessir litir eru ekki aðeins fyrir jóla- og hátíðartímann heldur er vel hægt að gera þessa tísku sumarlega. Það skiptir ekki máli hvort það sé gull eða silfur, það má líka blanda því saman. Burt með allar reglurnar.

Sumarlína TOVE.
Sumarlína TOVE.

Hvítt

Hvítt er alltaf fallegt á sumrin og miklar líkur á að eitthvað hvítt leynist í fataskápnum. Heklaðar eða blúndu flíkur úr hvítu og beinhvítu verða áberandi.

Kjóll frá Second Female, fæst í FOU22 og kostar 29.900 …
Kjóll frá Second Female, fæst í FOU22 og kostar 29.900 kr. Þarna slærðu tvær flugur í einu höggi, silfur og kögur.
Gulllitaðar buxur frá Rabens Saloner, fást í Mathilda og kosta …
Gulllitaðar buxur frá Rabens Saloner, fást í Mathilda og kosta 44.900 kr.
Kjóll frá Diesel og fæst í GK Reykjavík. Kostar 35.990 …
Kjóll frá Diesel og fæst í GK Reykjavík. Kostar 35.990 kr.
Silfurlituð dragt úr Zöru. Jakkinn kostar 13.995 og buxurnar 8.995 …
Silfurlituð dragt úr Zöru. Jakkinn kostar 13.995 og buxurnar 8.995 kr.

Vel sniðinn dragtarjakki, helst einu númeri of stór, bjargar þér frá norðanáttinni og fer vel yfir sumarlegan kjól eða víðar gallabuxur.

Gulur

Það eru margir tónar af gulum í tísku, smjörgulur og límónaðigulur þá helst. Liturinn fer vel með hvítu, svörtu og ljósbrúnu.

Sumarlína Gabriela Hearst.
Sumarlína Gabriela Hearst.
Blúndubolur úr Vero Moda, kostar 9.990 kr.
Blúndubolur úr Vero Moda, kostar 9.990 kr.
Kjóll frá Herskind, fæst í Mathilda og kostar 49.990 kr.
Kjóll frá Herskind, fæst í Mathilda og kostar 49.990 kr.
DAY, fæst í Kultur og kostar 64.995 kr.
DAY, fæst í Kultur og kostar 64.995 kr.
Monikh Dale í vesti og dragtarbuxum í smjörgulum lit.
Monikh Dale í vesti og dragtarbuxum í smjörgulum lit.
Kjóll frá Isabel Marant.
Kjóll frá Isabel Marant.
Þunn peysa frá COS.
Þunn peysa frá COS.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál