10 íslenskir hlutir sem fagurkera dreymir um

Á óskalista vikunnar er íslenskum hönnuðum fagnað!
Á óskalista vikunnar er íslenskum hönnuðum fagnað! Samsett mynd

Þjóðhátíðardag­ur Íslend­inga verður hald­inn hátíðleg­ur á 17. júní næst­kom­andi. Það er því vel við hæfi að fagna ís­lenskri hönn­un á óskalista vik­unn­ar, en þar finn­ur þú tíu spenn­andi vör­ur eft­ir ís­lenska hönnuði sem tengja má við Ísland og ís­lenska menn­ingu á einn eða ann­an hátt. 

Ómiss­andi í ís­lensku veðurfari!

Við vit­um það manna best að veðrið á Íslandi get­ur verið óút­reikn­an­legt, líka á sumr­in. Þá er gott að eiga flík sem auðvelt er að henda yfir sig og veit­ir hlýju – og ekki verra að það sé ís­lensk hönn­un! 

Ullarsjal fæst hjá As We Grow og kostar 39.900 krónur.
Ull­ar­sjal fæst hjá As We Grow og kost­ar 39.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Aswegrow.is

Heit­asta tískutrendið!

Slæður og klút­ar eru heit­asta tískutrendið um þess­ar mund­ir eft­ir að Halla Tóm­as­dótt­ir, ný­kjör­inn for­seti Íslands, kom þeim á kortið í kosn­ing­ar­bar­átt­unni. Þessa fögru silk­is­læðu prýða teikn­ing­ar af plönt­um sem finn­ast í ís­lensku flór­unni.

Silkiklútur fæst hjá Morra og kostar 17.900 krónur.
Silki­klút­ur fæst hjá Morra og kost­ar 17.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Morra.is

Vasi úr eld­fjalla­ösku!

Vas­ar ger­ast varla meira ís­lensk­ir en þessi frá Kerr­vk, en hann gleður ekki bara augað held­ur er hann hand­gerður úr postu­líni og eld­fjalla­ösku!

Lavala vasi fæst hjá Kerrvk. Hann kemur í tveimur stærðum …
Lavala vasi fæst hjá Kerr­vk. Hann kem­ur í tveim­ur stærðum og kost­ar frá 6.000 til 12.000 krón­ur. Skjá­skot/​In­sta­gram

Draum­ur í ilm­vatns­flösku!

Það þarf ekki að sann­færa þá sem vita hvernig ís­lenska sum­arið lykt­ar um að þessi ilm­ur sé góður, þeir bara vita það! Ilm­ur­inn er sam­starfs­verk­efni 66° Norður og Fischer­sund og er inn­blás­in af ís­lenskri nátt­úru.

Ilmvatn fæst hjá Fischersund og kostar 26.900 krónur.
Ilm­vatn fæst hjá Fischer­sund og kost­ar 26.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Fischer­sund.com

Sund­bol­ur sum­ars­ins!

Á Íslandi rík­ir mik­il sund­menn­ing og því þurfa all­ir Íslend­ing­ar að eiga góðan sund­fatnað, sér­stak­lega fyr­ir sum­arið! Þessi tryllti sund­bol­ur er frá ís­lenska merk­inu Swimslow og kall­ast Lauga­sk­arð eins og sund­laug­in í Hvera­gerði sem marg­ir halda upp á.

Sundbolur fæst hjá Swimslow og kostar 36.700 krónur.
Sund­bol­ur fæst hjá Swimslow og kost­ar 36.700 krón­ur. Ljós­mynd/​Swimslow.com

Staðal­búnaður í ís­lenska eld­húsið!

Það ættu all­ir að eiga eina klass­íska pönnu­kökupönnu í eld­hús­inu til að geta töfrað fram hinar ómót­stæðilegu ís­lensku pönnu­kök­ur, en að mati margra eru þær ómiss­andi hluti af 17. júní!

Íslensk pönnukökupanna fæst hjá Bast og kostar 12.995 krónur.
Íslensk pönnu­kökup­anna fæst hjá Bast og kost­ar 12.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Bast.is

Nýi ís­lenski fán­inn?

Þetta skemmti­lega verk tengja ef­laust marg­ir við, enda ekki hægt að þræta fyr­ir það að hér á Íslandi sé kalt, dýrt og guðdóm­lega fal­legt að vera. Verkið kall­ast Nýi ís­lenski fán­inn og er eft­ir Mar­gréti Bjarna­dótt­ur. 

Verk eftir Margréti Bjarnadóttur fæst hjá Listval Gallery og kostar …
Verk eft­ir Mar­gréti Bjarna­dótt­ur fæst hjá List­val Gallery og kost­ar 105.000 krón­ur. Ljós­mynd/​List­val.is

Peysu­veður!

Ólíkt mörg­um öðrum stöðum í heim­in­um þá er peysu­veður á Íslandi á sumr­in frek­ar en á haust­in. Það er alltaf jafn gam­an að eiga góða peysu sem er í senn hlý og fal­leg, en þessi frá Far­mers Mar­ket er með fal­legu mynstri sem gleður sann­ar­lega augað. 

Hlý peysa fæst hjá Farmers Market og kostar 42.500 krónur.
Hlý peysa fæst hjá Far­mers Mar­ket og kost­ar 42.500 krón­ur. Ljós­mynd/​Far­mers­mar­ket.is

Land elds og íss!

Marg­ir ís­lensk­ir hönnuðir sækja inn­blást­ur í landið okk­ar enda býr það yfir ómældri feg­urð. Hér má sjá afar fal­leg­an hring sem ber heit­ir Jök­ull og er úr lín­unni Eld­ur og Ís frá skart­gripa­merk­inu Sign.

Jökull hringur fæst hjá Sign og kostar 21.900 krónur.
Jök­ull hring­ur fæst hjá Sign og kost­ar 21.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Sign.is

Kröft­ug­ur og ljúf­ur!

Ilm­kertið Storm­ur frá URÐ er inn­blás­inn af vetr­in­um og kröft­ug­um veðrabreyt­ing­um þess árs­tíma, en hann veit­ir hlýju og hug­ar­ró hvernig sem viðrar. 

Ilmkerti fæst hjá URÐ og kostar 6.450 krónur.
Ilm­kerti fæst hjá URÐ og kost­ar 6.450 krón­ur. Ljós­mynd/​Urd.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda