Förðunarfræðingurinn Daniel Martin öðlaðist heimsfrægð þegar hann farðaði Meghan hertogaynju af Sussex fyrir brúðkaup hennar og Harry Bretaprins. Hann er hins vegar ekki sagður hafa farðaði hertogaynjuna í tvö ár.
Meghan fór nýlega til Nígeríu í opinbera heimsókn með Harry en Martin fór ekki með. Martin sagði í viðtali við Us Weekly að Meghan fengi frelsi til að leika sér þegar hann væri ekki með eins og í Nígeríu í maí. „Þetta er bara hún. Hún er ekki með stílista, hún er ekki með hárgreiðslumann. Hún gerir allt sjálf og er góð í því,“ sagði hann. Hann sagði Meghan elska kinnalit, að hún gerði mikið úr kinnunum og áberandi augabrúnum.
Í rauninni hefur Martin sem segist vera í góðu sambandi við Meghan ekki hafa unnið með Meghan síðan í maí 2022. Hann hefur því ekki farðað hana í tvö ár.
Það er hins vegar nóg að gera hjá Martin sem er í miklu uppáhaldi hjá stjörnunum að því fram kemur á vef Daily Mail. Nýlega hefur hann farðað Hollywood-stjörnurnar Rachel McAdams, Olivu Munn, Ali Wong og Myu Rudolph. Hann hefur líka verið að farða heitustu stjörnuna í dag, Bridgeton-stjörnuna Nicolu Coughlan.