Katrín prinsessa af Wales klæddist hvítum kjól á laugardaginn í skrúðgöngu til heiðurs Karli Bretakonungi. Þetta var fyrsta skipti sem Katrín sást opinberlega síðan á jóladag. Prinsessan hefur verið í krabbameinsmeðferð að undanförnu.
Katrín tók enga áhættu og klæddist breska merkinu Jenny Peckham. Merkið er í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún hefur klæðst svipuðu sniði frá merkinu áður en hún hefur einnig klæðst síðkjólum frá merkinu við sérstaklega fín tilefni.
Erlendir miðlar benda á að Katrín hafi klæðst kjólnum kvöldið fyrir krýningu Karls Bretakonungs í fyrra. Kjólnum var þó breytt fyrir skrúðgönguna á laugardaginn. Hálsmálinu og mittisbandinu var breytt á þann veg að í fyrra var kjóllinn aðeins með svörtu mittisbandinu en ekki hvítu og svörtu. Ekki var heldur um að ræða eins áberandi slaufu.
Ef rýnt er í kvikmyndasöguna má sjá líkindi með kjólnum og kjólnum sem persóna Audrey Hepburn klæddist í kvikmyndinni My Fair Lady árið sem kom út árið 1964. Sagan á hins vegar að gerast í byrjun 20. aldar í Lundúnum.