Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur ekkert breyst síðan hún var tvítug. Fyrirsætan birti gamla mynd af sér í leðurjakka og sést varla að fyrirsætan er orðin 58 ára gömul.
Fyrirsætan birti myndirnar í tilefni þess að snyrtivörumerki hennar, Meaningful Beauty, var 20 ára á dögunum. „Til þess að hjálpa okkur að fagna birtið mynd af ykkur síðan þið voruð 20 ára og mynd af ykkur í dag,“ skrifaði Crawford meðal annars á Instagram.
Crawford lét sitt ekki eftir liggja og birti mynd af sér í leðurjakka með slegið hár og aðra mynd af sér í eins leðurjakka með slegið hár að hætti Cindy Crawford. Myndirnar tvær sýna ekki bara að Crawford hefur lítið breyst á síðastliðnum 38 árum heldur að líka leðurjakkatískan hefur lítið breyst.