10 hlutir sem þú þarft fyrir skvísuútileguna

Óskalistinn er sérlega töff þessa vikuna!
Óskalistinn er sérlega töff þessa vikuna! Samsett mynd

Útil­eg­u­sum­arið er í full­um gangi um þess­ar mund­ir og hafa fjöl­marg­ir lagt land und­ir fót í von um að hitta á sól­ina. Á óskalista vik­unn­ar finn­ur þú tíu vör­ur sem úti­leguskvís­ur lands­ins verða að eign­ast, allt frá töffara­leg­um fatnaði yfir í hin full­komnu úti­leguglös til að drekka kampa­vínið úr!

Lúx­us­bolli á ferðinni!

Útil­eguskvís­ur þurfa að geta fengið sér lúxuskaffi hvar og hvenær sem er, líka í úti­leg­unni. Þá er nauðsyn­legt að eiga góða ferðakaffi­vél eins og þessa sem tek­ur ekki of mikið pláss og er smart!

Wacaco Nanopresso ferðakaffivélin fæst hjá Margt & Mikið og kostar …
Wacaco Nanopresso ferðakaffi­vél­in fæst hjá Margt & Mikið og kost­ar 9.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Tra­deinn.com

Útil­egu­hatt­ur­inn!

Góður og töff hatt­ur nýt­ist bet­ur en þú held­ur í úti­legu! Hann kem­ur til bjarg­ar í ýms­um aðstæðum – þegar það er mik­il sól, þegar það er rign­ing og líka þegar hárið er í rugl­inu!

Bucket-hattur fæst hjá Zara og kostar 3.795 krónur.
Bucket-hatt­ur fæst hjá Zara og kost­ar 3.795 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara.com

„Bjú­tísvefn“ í tjaldi!

Það er eitt­hvað al­veg sér­stakt við það að gista í tjaldi úti í nátt­úr­unni og mik­ill mis­skiln­ing­ur að það þurfi að vera óþægi­legt. Til að há­marka „bjú­tísvefn­inn“ er sniðugt að taka með sér góða svefn­grímu, sér­stak­lega fyr­ir ís­lensku sum­ar­næt­urn­ar!

Silki svefngríma fæst hjá Heima er gott og kostar 5.990 …
Silki svefn­gríma fæst hjá Heima er gott og kost­ar 5.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Heima­ergott.is

Vertu raun­sæ en töff!

Það er mikið fjör að fara í úti­legu og njóta ís­lenska sum­ars­ins til hins ítr­asta. En það má samt ekki gleyma því að Íslandi fylgja oft snögg­ar veður­breyt­ing­ar og rign­ing. Það er því nauðsyn­legt að vera öllu viðbú­inn og pakka ein­hverju vatns­heldu ofan í tösk­una!

Regnkápa frá Rains fæst hjá Fou22 og kostar 13.900 krónur.
Regn­kápa frá Rains fæst hjá Fou22 og kost­ar 13.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Fou22.is

Skipu­lag upp á tíu!

Útil­eguskvís­ur elska að vera öllu viðbún­ar og eiga það til að pakka aðeins of miklu með sér. Það er hins veg­ar allt í góðu ef það er vel skipu­lagt!

Ferðasnyrtitaska fæst hjá Söstrene Grene og kostar 2.694 krónur.
Ferðasnyr­titaska fæst hjá Söstrene Grene og kost­ar 2.694 krón­ur. Ljós­mynd/​Sostrenegrene.is

For­gangs­röðun í lagi!

Ef það er eitt­hvað sem úti­leguskvís­ur eru með á hreinu þá er það for­gangs­röðunin, þó það séu kannski ekki all­ir sam­mála um hvernig hún eigi að vera. Er það ekki ann­ars kampa­vín, kampa­víns­glös, tjald og svo kem­ur svefn­pok­inn?

Kampavínsglös úr plasti fást hjá Ramba Store. Tvö í pakka …
Kampa­víns­glös úr plasti fást hjá Ramba Store. Tvö í pakka kosta 2.390 krón­ur. Ljós­mynd/​Ramba­store.is

Smart og kósí!

Nota­leg­ir stól­ar eru ómiss­andi í úti­leg­una. Svo skemm­ir ekki fyr­ir ef þeir eru líka smart!

Sólstóll frá FIAM fæst hjá Fakó og kostar 32.900 krónur.
Sól­stóll frá FIAM fæst hjá Fakó og kost­ar 32.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Balconyli­vingcph.com

Með tísk­una á hreinu!

Útil­eguskvís­ur eru alltaf með tísk­una á hreinu. Þessi fal­lega úlpa úr sam­starfs­línu Ganni og 66°North fell­ur vel í kramið hjá þeim, enda bæði pass­lega hlý og fá­rán­lega töff!

Stuttur jakki úr samstarfslínu Ganni og 66°North kostar 61.900 krónur.
Stutt­ur jakki úr sam­starfs­línu Ganni og 66°North kost­ar 61.900 krón­ur. Ljós­mynd/​66n­orth.com

Kælitaska sem gleður augað!

Útil­egu­búnaður má líka vera fal­leg­ur! Þessi kælitaska pass­ar full­kom­lega inn í litap­all­ettu úti­leguskvís­unn­ar og ætti að halda kampa­vín­inu köldu fram á kvöld.

Kælitaska fæst hjá Ramba Store og kostar 6.990 krónur.
Kælitaska fæst hjá Ramba Store og kost­ar 6.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Ramba­store.is

Leit­in að sumr­inu!

Útil­eguskvís­um er margt til list­anna lagt, en þær eru þó al­veg sér­stak­lega góðar í því að elta sól­ina og eru alltaf með sund­föt með sér!

Bikiní frá Hojsberg fæst hjá Húrra Reykjavík. Toppurinn kostar 8.990 …
Bik­iní frá Hojs­berg fæst hjá Húrra Reykja­vík. Topp­ur­inn kost­ar 8.990 krón­ur og bux­urn­ar 8.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Hurr­areykja­vik.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda