10 hlutir sem þú þarft í útileguna um verslunarmannahelgina

Allt sem þú þarft fyrir verslunarmannahelgina!
Allt sem þú þarft fyrir verslunarmannahelgina! Samsett mynd

Ein mesta ferðahelgi lands­manna er framund­an, versl­un­ar­manna­helg­in, og því ekki vit­laust að byrja að plana hana tím­an­lega. Óskalista vik­unn­ar prýða því tíu vör­ur sem henta sér­stak­lega vel í úti­leg­una eða á úti­hátíðina!

Skyn­söm og töff yf­ir­höfn!

Á Íslandi er allra veðra von og því kem­ur vatns­held­ur fatnaður sér vel. Þessi jakki er frá 66°Norður og er töff hvernig sem viðrar!

Kría-jakki fæst hjá 66°Norður og kostar 61.000 krónur.
Kría-jakki fæst hjá 66°Norður og kost­ar 61.000 krón­ur. Skjá­skot/​In­sta­gram

Útil­egu­teppið!

Það er ómiss­andi að vera með hlýtt teppi í úti­leg­unni. Þetta teppi ber ein­fald­lega heitið Útil­ega og hent­ar því sér­stak­lega vel um versl­un­ar­manna­helg­ina, en það er ís­lensk hönn­un eft­ir Vé­dísi Jóns­dótt­ur.

Teppið Útilega eftir Védísi Jónsdóttur fæst hjá Knitknit og kostar …
Teppið Útil­ega eft­ir Vé­dísi Jóns­dótt­ur fæst hjá Knit­knit og kost­ar 16.890 krón­ur. Ljós­mynd/​Knit­knit.is

Létt og góð!

Hvort sem þú ætl­ar á úti­hátíð eða í úti­legu er nauðsyn­legt að vera með létta og góða tösku. Þessi er frá danska merk­inu Sandqvist og er í full­kom­inni stærð fyr­ir það allra nauðsyn­leg­asta.

Hliðartaska frá Sandqvist fæst hjá Mjöll og kostar 14.900 krónur.
Hliðartaska frá Sandqvist fæst hjá Mjöll og kost­ar 14.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Mjoll.is

Staðal­búnaður!

Góð stíg­vél ættu að vera staðal­búnaður í all­ar úti­leg­ur og úti­hátíðir á Íslandi, enda fátt verra en að vera blaut­ur í fæt­urna!

Stígvél frá Barbour fást hjá Boozt og kosta 14.249 krónur.
Stíg­vél frá Bar­bour fást hjá Boozt og kosta 14.249 krón­ur. Ljós­mynd/​Boozt.com

Ekki al­veg úlpu­veður!

Við höld­um í von­ina og reikn­um með að þurfa ekki að taka þykku úlp­una út fyr­ir versl­un­ar­manna­helg­ina. Hins veg­ar er alltaf sniðugt að hafa með sér flott vesti sem hægt er að henda yfir sig þegar farið er að kólna á kvöld­in!

Vesti frá Entire Studios fæst hjá Nebraska og kostar 59.990 …
Vesti frá Entire Studi­os fæst hjá Nebraska og kost­ar 59.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Nebraska.is

Klass­ík­in!

Lopa­peys­an er klass­ísk flík til að taka með á úti­hátíðina eða í úti­leg­una. Hún held­ur á þér hita og svo er hún hrika­lega smart!

Handprjónuð ullarpeysa fæst hjá Icewear og kostar 32.990 krónur.
Hand­prjónuð ullarpeysa fæst hjá Icewe­ar og kost­ar 32.990 krón­ur. Skjá­skot/​In­sta­gram

Lyk­il­atriði!

Það má ekki gleyma húf­unni yfir versl­un­ar­manna­helg­ina, enda get­ur hún gegnt mik­il­vægu hlut­verki í úti­leg­um og á úti­hátíðum þegar kem­ur að því að end­ast lengi úti! 

Húfa fæst hjá Magneu og kostar 9.900 krónur.
Húfa fæst hjá Magneu og kost­ar 9.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Magneareykja­vik.com

Stemn­ings­græj­an!

Þú legg­ur ekki af stað í úti­legu yfir versl­un­ar­manna­helg­ina án þess að vera með ferðahátal­ara í tösk­unni – svo ein­falt er það!

Ferðahátalari frá Kreafunk fæst hjá Akkúrat og kostar 10.900 krónur.
Ferðahátal­ari frá Krea­funk fæst hjá Akkúrat og kost­ar 10.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Akkurat.store

Þessi sem held­ur heitu og köldu!

Gott ferðamál er ómiss­andi yfir versl­un­ar­helg­ina. Þetta ferðamál er frá Kinto og er sér­stak­lega hannað fyr­ir úti­veru og ferðalög, en það held­ur drykkj­um bæði heit­um og köld­um leng­ur.

Ferðamál frá Kinto fæst hjá Epal og kostar 9.700 krónur.
Ferðamál frá Kinto fæst hjá Epal og kost­ar 9.700 krón­ur. Ljós­mynd/​Epal.is

Ljóm­andi húð á mettíma!

Það er óþarfi að flækja húðrútín­una í úti­leg­unni. Þetta krem er lita­laust en full­komn­ar samt sem áður húðina og veit­ir henni ein­stak­an frísk­leg­an ljóma.

Skin Hero Glow frá Erborian fæst hjá Beautybox og kostar …
Skin Hero Glow frá Er­bori­an fæst hjá Beauty­box og kost­ar frá 3.580 til 6.850 krón­ur. Ljós­mynd/​Beauty­box.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda