Húðrútínan breyttist eftir sundferilinn

Hrafnhildur Lúthersdóttir hugsar vel um húðina.
Hrafnhildur Lúthersdóttir hugsar vel um húðina. Ljósmynd/Aðsend

Hrafn­hild­ur Lúth­ers­dótt­ir, fyrr­ver­andi ólymp­íufari í sundi og rekstr­ar­stjóri hjá Ice­land Soccer Tra­vel, hugs­ar vel um húðina. Húðrútín­an breytt­ist eft­ir að hún hætti að keppa í sundi.  

Hrafn­hild­ur byrjaði að mála sig þegar hún var í kring­um 16-17 ára ald­ur­inn en þá var það ekki mikið meira en maskari. „Ég var alltaf svo mikið í sundi og fannst það ekki taka því að mála mig ef ég þurfti svo að taka það allt af áður en ég fór á æf­ingu. En jú, ætli maður hafi ekki eitt­hvað leikið sér með máln­ing­ar­dót móður sinn­ar þegar maður var yngri. Ég hef samt litað á mér auga­brún­ir og augn­hár al­veg síðan ég var 16 eða 17 ára. Ég er svo ljós í yf­ir­lit­um að ef ég geri það ekki lít ég bara út fyr­ir að vera veik,“ seg­ir Hrafn­hild­ur þegar hún er spurð hvenær hún byrjaði að mála sig.

Breytt­ist húðrútín­an eða förðun­ar­rútín­an þín eft­ir að þú hætt­ir að keppa í sundi?

„Húðrútín­an breytt­ist mjög mikið. Ég tók mig miklu meira á að þrífa húðina al­menni­lega og bera á mig góð krem, af því aft­ur, ég hugsaði svo mikið um sundið. Það tek­ur því ekki að setja krem ef ég er að fara á morgu­næf­ingu, þá verður húðin bara sleip og gler­aug­un og sund­hett­an renna af. Svo tek ég mig al­veg til og mála mig oft­ar núna en ég gerði áður.“

Hvernig hugs­ar þú um húðina í dag?

„Ég reyni að hugsa um húðina eins vel og ég get. Ég skola húðina með vatni á morgn­ana og set á mig krem og sól­ar­vörn. Svo á kvöld­in geri ég tvö­falda hreins­un, nota Cera­Ve Oil Cle­anser fyrst og svo e.l.f. Holy Hydrati­on Daily Cle­anser. Ég enda á að setja gott augnkrem og and­lit­skrem. Þegar ég man eft­ir því og er í stuði þá bæti ég Drun­ken Elephant A-Passi­oni Ret­in­ol og August­in­us Bader augn­hára- og auga­brúna-ser­um inn í rútín­una líka.“

Hrafnhildur þrífur húðina með hreinsi frá CeraVe.
Hrafn­hild­ur þríf­ur húðina með hreinsi frá Cera­Ve.

Hvernig mál­ar þú þig dags dag­lega?

„Dags dag­lega er ég voðal­ega lítið máluð. Í mesta lagi set ég á mig smá hylj­ara og maskara, Be­nef­it 24-Hour Brow Setter og bæti smá Tanolog­ist Self Tan Drops í and­lit­skremið til að fá smá lit í and­lit og bringu. Ég elska reynd­ar kinna­lit því það get­ur poppað mann upp án þess að þurfa mikið til, og elska þá NARS Orga­sm og Tarte Paaarty-kinna­lit­ina; setja á kinn­ar og smá á augn­lok­in sem augnskugga og þá er maður „good to go“.

Hrafnhildur setur brúnkudropa út í andlitskremið.
Hrafn­hild­ur set­ur brúnku­dropa út í and­lit­skremið.
Kinnalitur frá Nars.
Kinna­lit­ur frá Nars.
Kinnalitur frá Tarte. Kinnaliturinn lífgar upp á útlitið.
Kinna­lit­ur frá Tarte. Kinna­lit­ur­inn lífg­ar upp á út­litið.

En þegar þú ferð eitt­hvað spari?

„Þá set ég nú aðeins meira á mig. Ég er samt ekki mikið fyr­ir að vera stíf­máluð þar sem ég hef aldrei al­menni­lega fundið vöru eða tækni til að koma í veg fyr­ir að húðin mín þorni al­veg upp, þannig að ég elska frek­ar að nota „skin tint“ eða „cc krem“ fyr­ir smá lit og til þess að hylja. Svo nota ég nú al­veg „contour“ og kremaðan kinna­lit, „highlig­hter“ og augnskugga þegar ég er að fara rosa fínt eða gef mér tíma til. Ég elska að nota augnskugga sem augn­blý­ant líka, það er aðeins meira fyr­ir­gef­andi en augn­blý­ant­ur. Þá get­ur maður líka leikið sér aðeins meira með liti, notað bara brún­an ef maður vill eitt­hvað meira lúmskt til dæm­is, eða farið í blá­an ef maður vill breyta eitt­hvað til.“

Áttu upp­á­halds­snyrti­vöru?

„Ég elska e.l.f. húðvör­urn­ar. Þær hafa virkað best á mína húð og svo eru þær ekk­ert of dýr­ar. Ég þurfti alltaf að flytja þær inn á sín­um tíma, kaupa hell­ing þegar ég fór til Banda­ríkj­anna í frí eða biðja vini og vanda­menn um að koma með handa mér, þannig ég var mjög ánægð þegar ELF vör­urn­ar komu í Krón­una!“

E.l.f. er í miklu uppáhaldi hjá Hrafnhildi en hún notar …
E.l.f. er í miklu upp­á­haldi hjá Hrafn­hildi en hún not­ar meðal ann­ars and­lits­hreinsi frá merk­inu.

Hef­ur þú gert ein­hver förðun­ar­mis­tök?

„Ég held ég hafi ekki gert mörg förðun­ar­mis­tök, nema að setja meik á þurra húð, og of­gera auga­brún­irn­ar. Mér fannst al­veg gam­an að gera smá til­raun­ir þegar ég var heima og hafði tíma þegar ég var yngri, en svo fann maður bara eitt­hvað sem var fljót­legt og auðvelt og hélt sér við það.“

Vörurnar frá Sóley eru í uppáhaldi.
Vör­urn­ar frá Sól­ey eru í upp­á­haldi.

Er ein­hver snyrti­vara á óskalist­an­um fyr­ir sum­arið?

„Sum­mer Fri­days-vör­ur. Mér finnst þær fal­leg­ar og góðar, og svo eru þær veg­an og cru­elty free sem er alltaf gott að sjá og finna. En svo ég styðji ís­lensk­ar vör­ur líka, þá eru Sól­ey Org­anics í upp­á­haldi hjá mér, þá sér­stak­lega Græðir smyrsl, svo ótrú­lega gott fyr­ir húðina.“

Hrafnhildi langar í vörur frá merkinu Summer Fridays.
Hrafn­hildi lang­ar í vör­ur frá merk­inu Sum­mer Fri­days.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda