Er Agnes í öðru eða fjórða veldi

Agnes Björt kaupir notuð föt og setur þau saman á …
Agnes Björt kaupir notuð föt og setur þau saman á rokkaralegan hátt. Ljósmynd/Aðsend

Agnes Björt, tón­list­ar­kona í hljóm­sveit­inni Sykri, er með rokk­ara­leg­an fata­stíl. Þegar Agnes fer á svið leyf­ir hún ímynd­un­ar­afl­inu og gleðinni að ráða för þegar kem­ur að fata­stíln­um.

Ásamt því að hressa sig upp með lit­rík­ari föt­um í sum­ar nýt­ur Agnes þess að vera í fríi.

„Ég ætla að ferðast í sum­ar bæði um landið og er­lend­is og kíkja í stúd­íó þess á milli. Ég hef verið að nota dag­ana til þess að styrkja mig og efla, lesa og huga að lík­ams­rækt. Ég er líka á nám­skeiði núna þar sem ég er að læra að kort­leggja tauga­kerfið mitt og þekkja bet­ur hvernig það bregst við í mis­mun­andi aðstæðum. Mjög áhuga­vert,“ seg­ir Agnes um það sem hún er að fást við.

Á sviði leyfir Agnes ímyndunaraflinu og gleðinni að ráða för.
Á sviði leyf­ir Agnes ímynd­un­ar­afl­inu og gleðinni að ráða för. Ljós­mynd/​Aðsend

Smá Court­ney Love

Hvernig mynd­ir þú lýsa fata­stíln­um þínum?

„Jenni­fer Herema hitt­ir Court­ney Love hitt­ir Snooki hitt­ir Brigitte Bar­dot.“

Hvernig klæðir þú þig dags­dag­lega?

„„Tom­boy“-fíl­ing­ur, víð föt, af­slappað og kúl. Ég hef verið mikið í jarðlit­um en er að kynna til leiks lit­rík­ari föt nú með sumr­inu. Ég var að fá mér ljót­an gervip­els sem ég hef verið að nota með nátt­kjól­um, mótor­hjóla­stíg­vél­um og kodda­hári, það er gott mó­ment.“

Agnes elskar Guess-töskur.
Agnes elsk­ar Gu­ess-tösk­ur. Ljós­mynd/​Aðsend

En þegar þú kem­ur fram á sviði?

„Á sviði er ég eins og Agnes í öðru eða fjórða veldi. Þar leyfi ég ímynd­un­ar­afl­inu og gleðinni að ráða. Hverju höf­um við að tapa? Ég vil helst að fólk fái svona barnagleðitil­finn­ingu þegar það sér mig og að það finni hvernig áhyggj­ur skipta ekki alltaf svona miklu máli. „Nai­ve awe ef­fect“ með rokk­stjörnuívafi.“

Agnes er óhrædd að stíga út fyrir þægindarammann.
Agnes er óhrædd að stíga út fyr­ir þæg­ind­aramm­ann. Ljós­mynd/​Aðsend

Hver flík geym­ir minn­ing­ar um stór­an dag

Áttu upp­á­halds­flík og af hverju?

„Það eru nokkr­ar flík­ur sem ég get með engu móti losað mig við. Þær eiga það all­ar sam­eig­in­legt að hafa verið hannaðar og saumaðar á mig fyr­ir hina ýmsu tón­leika og uppá­kom­ur. Hver flík geym­ir minn­ing­ar um stór­an dag í mínu lífi og hef­ur þess vegna til­finn­inga­legt gildi. Ég hef líka fengið að taka virk­an þátt í ferl­inu, flík­urn­ar eru þannig minn­ing­ar um frá­bært sam­starf sem ég hef átt við fata­hönnuði og klæðskera, sem við eig­um svo marga flotta hér á Íslandi.“

Algjör töffari.
Al­gjör töffari. Ljós­mynd/​Aðsend

En fylgi­hlut?

„Ég elska Gu­ess-tösk­ur og á svona fimm stykki sem ég hef keypt notaðar hér og þar. Hárið á mér er oft líka minn helsti „fylgi­hlut­ur“, ef svo má segja. Ég er alltaf eitt­hvað að prufa mig áfram með alls kon­ar gervi­hár. Þegar ég var ung­ling­ur var ég „emo king“ og hárið á mér var alltaf núm­er eitt í öll­um dress­um. Ég vaknaði klukk­an sex alla daga til að gera hárið mitt flott fyr­ir skól­ann, án gríns, hvernig væri að taka upp þann metnað aft­ur?“

Agnes sækir innblástur aðallega á Instagram og Pinterest.
Agnes sæk­ir inn­blást­ur aðallega á In­sta­gram og Pin­t­erest. Ljós­mynd/​Aðsend

Þú get­ur gert ljót­ustu bux­ur í heimi að þeim flott­ustu

Hvert sæk­ir þú inn­blást­ur?

„In­sta­gram og Pin­t­erest aðallega, myndi ég segja. Á In­sta­gram fylg­ir maður fólki sem á sinn eig­in heim og klæðir sig í hann. Víd­eóblogg hafa verið góð upp­spretta inn­blást­urs fyr­ir mig ný­lega, að sjá hvað fólk er að gera, hvernig lífs­stíl það lif­ir og í hvaða um­hverfi, það er upp­spretta og meg­in­lind tísk­unn­ar. Megsu­per­starprincess á In­sta­gram ger­ir þetta t.d. mjög vel, maður fær New York beint í æð með því að skoða „story-in“ henn­ar. Róm­ans­inn í ógeðinu. Á Pin­t­erest skoðar maður mynd­ir af göml­um, gleymd­um og ógleymd­um rokk­stjörn­um, 60's-inu, O.G. Club kids og nýju Club Kids like-tísk­unni sem er fer sann­ar­lega vax­andi.“

Agnes segir hár sitt vera helsta fylgihlut sinn.
Agnes seg­ir hár sitt vera helsta fylgi­hlut sinn. Ljós­mynd/​Aðsend

Fyr­ir hverju fell­ur þú oft­ast?

„„Swagi“. Flík­ur eru hér til að bæta út­geisl­un­ina sem kem­ur fyrst og fremst inn­an úr okk­ur sjálf­um. Flík­ur hjálpa okk­ur aðallega til að lifa nær því orku­sviði, þeim heimi sem við búum í eða vilj­um búa í hverju sinni. Þannig skipt­ir það þannig séð engu máli fyr­ir neinn nema þig sjálf­an hverju þú klæðist. Þú get­ur gert ljót­ustu bux­ur í heimi flott­ustu bux­ur í heimi ef ásetn­ing­ur­inn er rétt­ur og þú finn­ur sjálfa þig skína í flík­inni. Þess vegna eru ekki til nein tísku­slys því þetta er allt sam­an ferðalag með alls kon­ar lands­lagi sem við þurf­um að fara yfir og áfangastaðirn­ir breyt­ast eins og mann­eskj­ur og um­hverfið ger­ir.“

Agnes tekur kántrí-glamúrinn alla leið.
Agnes tek­ur kántrí-glamúr­inn alla leið. Ljós­mynd/​Aðsend

Kaup­ir allt notað nema nær­föt­in

Hef­ur þú gert ein­hver tískumis­tök?

„Nei, nema kannski að gleyma að taka mynd­ir af dress­un­um mín­um fyr­ir viðtal eins og þetta hérna.“

Hvar versl­ar þú oft­ast?

„Allt sem ég kaupi er notað nema nær­föt­in mín. Úr Hertex, Verzl­ana­höll­inni, Extral­opp­unni, Rauða kross­in­um aðallega.“

Hvað er á óskalist­an­um?

„Eft­ir þetta viðtal finn ég að mig lang­ar að upp­færa hár-leik­inn minn. Mig lang­ar í síðar og þykk­ar hár­leng­ing­ar sem fá að sjúsk­ast til með dag­legri notk­un. Næst á lista, let’s go!“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda