10 hlutir sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem koma þér …
Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið! Samsett mynd

Sann­kallað hlaupaæði hef­ur ríkt um all­an heim und­an­farna mánuði og hafa göt­ur og stíg­ar hér á Íslandi verið full­ir af hlaup­ur­um í allt sum­ar. Marg­ir hafa verið á fullu í und­ir­bún­ingi fyr­ir Reykja­vík­ur­m­araþonið sem fer fram laug­ar­dag­inn 24. ág­úst, en þar eru fjór­ar vega­lengd­ir í boði og fjöl­breytt­ur hóp­ur hlaup­ara sem ætl­ar að spreyta sig.

Á óskalista vik­unn­ar finn­ur þú tíu hluti sem koma þér í al­vöru hlaupagír og gætu hjálpað þér að kom­ast í gegn­um síðustu dag­ana fyr­ir hlaup. 

Al­vöru demp­un!

Ef það er eitt­hvað sem er ómiss­andi fyr­ir keppn­is­hlaup þá eru það klár­lega góðir hlaupa­skór. Það get­ur verið kúnst að finna réttu hlaupa­skóna, en í dag er hægt að finna skó sem eru sér­stak­lega hannaðir fyr­ir ákveðnar lengd­ir í keppn­is­hlaup­um. Þess­ir skór eru afar létt­ir með góðri demp­un og henta sér­lega vel fyr­ir götu­hlaup, maraþon og hálft maraþon. 

Cloudmonster hlaupaskórnir frá On fást hjá Sportvörum og kosta 30.990 …
Cloudmon­ster hlaupa­skórn­ir frá On fást hjá Sport­vör­um og kosta 30.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Sport­vor­ur.is

Mjúk­ur og þægi­leg­ur!

Þegar kem­ur að því að velja fatnað fyr­ir keppn­is­hlaup er mik­il­vægt að passa að hann sé bæði létt­ur og þægi­leg­ur. Þessi flotti hlýra­bol­ur frá Metta Sport tikk­ar í bæði box­in.

Hlýrabolur fæst hjá Metta og kostar 5.990 krónur.
Hlýra­bol­ur fæst hjá Metta og kost­ar 5.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Metta­sport.is

Staðal­búnaður!

Hlaupa­vesti hafa notið auk­inna vin­sælda að und­an­förnu og virðast vera orðinn staðal­búnaður flestra hlaup­ara, enda nýt­ast þau afar vel – sér­stak­lega fyr­ir lengri hlaup. Það fer eft­ir lengd og gerð hlaups­ins hvaða vesti hent­ar best, en þetta vesti er með tveim­ur vatns­brús­um og ýms­um vös­um og geymslu­hólf­um fyr­ir orku­stykki- og gel, auka fatnað og fleira. 

Hlaupavesti frá Salomon fæst hjá Útilíf og kostar 18.900 krónur.
Hlaupa­vesti frá Salomon fæst hjá Útil­íf og kost­ar 18.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Salomon.com

Líka fyr­ir lúkkið!

Þó svo flott hlaupa­sólgler­augu láti mann ekki endi­lega hlaupa hraðar þá geta þau án efa hjálpað manni að halda kúl­inu í maraþon­inu. 

Hlaupasólgleraugu frá NEON fást hjá Hlaupár og kosta 22.700 krónur.
Hlaupa­sólgler­augu frá NEON fást hjá Hlaupár og kosta 22.700 krón­ur. Ljós­mynd/​Hlaup­ar.is

Of­ur­létt­ar!

Þess­ar stutt­bux­ur eru sér­stak­lega hannaðar fyr­ir keppn­is­hlaup, en þær eru of­ur­létt­ar – aðeins 100 grömm að þyngd!

Stuttbuxur frá On fást hjá Sportvörum og kosta 10.990 krónur.
Stutt­bux­ur frá On fást hjá Sport­vör­um og kosta 10.990 krón­ur. Ljós­mynd/​On.com

Hag­nýt­ur topp­ur!

Þessi hlaupatopp­ur frá Adi­das býr yfir leynd­um töfr­um sem ættu að falla vel í kramið hjá hlaup­ur­um, en auk þess að veita góðan stuðning leyn­ast á toppn­um nokkr­ir vas­ar þar sem hægt er að geyma auka­hluti á borð við lykla, síma eða orkug­el og -stykki.

Run Pocket-toppur fæst hjá Adidas og kostar 10.990 krónur.
Run Pocket-topp­ur fæst hjá Adi­das og kost­ar 10.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Adi­das.is

Með allt á hreinu!

Þeir sem vilja vera með allt á hreinu verða ef­laust hrifn­ir af þessu hlaupa- og heilsu­úri. Það er ekki bara frá­bært fyr­ir hlaup, stutt og löng, held­ur gef­ur það hinar ýmsu upp­lýs­ing­ar um svefn, end­ur­heimt, HRV, veður, æf­ing­ar og keppn­ir.

Forerunner-hlaupaúrið frá Garmin fæst hjá Garminbúðinni og kostar 94.900 krónur.
For­er­unner-hlaupa­úrið frá Garmin fæst hjá Garmin­búðinni og kost­ar 94.900 krón­ur. Ljós­mynd/​Garmin­budin.is

Létt og góð!

Við höld­um okk­ur við létt­an og þægi­leg­an fatnað, en hér er á ferðinni lan­germa­bol­ur sem auðvelt er að henda sér í ef það fer að kólna í hlaup­inu – eða þá henda sér úr ef það er hlýtt!

Langermabolur frá Under Armour fæst hjá Altis og kostar 14.490 …
Lan­germa­bol­ur frá Und­er Armour fæst hjá Alt­is og kost­ar 14.490 krón­ur. Ljós­mynd/​Alt­is.is

Sér­hönnuð fyr­ir keppn­is­hlaupið!

Þessi der­húfa er lauflétt, eða aðeins 53 grömm að þyngd, og er sér­stak­lega hönnuð fyr­ir keppn­is­hlaup. Der­húf­an er gerð úr mesh-efni með góðri önd­un sem varið er með sól­ar­vörn – svo skemm­ir lúkkið sann­ar­lega ekki fyr­ir!

Derhúfa frá Ciele Athletics fæst hjá Toppar og kostar 6.990 …
Der­húfa frá Ciele At­hletics fæst hjá Topp­ar og kost­ar 6.990 krón­ur. Ljós­mynd/​Topp­ar.is

Fyr­ir kálf­ana!

Í hlaup­um er gjarn­an sér­stak­lega mikið álag á fæt­urna því al­gengt að hlaup­ar­ar noti þrýsti­klæðnað (e. compressi­on garments), aðallega á neðri hluta lík­am­ans. Þá virðast kálfa­hlíf­ar vera sér­stak­lega vin­sæl­ar hér á landi, en þær eru sagðar geta aukið blóðflæði og súr­efn­is­upp­töku, dregið úr þreytu, hjálpað við að koma í veg fyr­ir krampa í vöðva og létt á ein­kenn­um bein­himna­bólgu.

Kálfahlífar frá 2XU fást hjá Sportvörum og kosta 8.490 krónur.
Kálfa­hlíf­ar frá 2XU fást hjá Sport­vör­um og kosta 8.490 krón­ur. Ljós­mynd/​Sport­vor­ur.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda