Gulla Bjarna ljóstrar upp leyndarmáli hvað varðar húðvörur

Gulla Bjarnadóttir heldur úti hlaðvarpinu Í alvöru talað! ásamt Lydíu …
Gulla Bjarnadóttir heldur úti hlaðvarpinu Í alvöru talað! ásamt Lydíu Ósk. Í þættinum ræða þær húðvörur og tísku. Samsett mynd

Vin­kon­urn­ar Lydía Ósk og Gulla Bjarna eru um­sjón­ar­menn hlaðvarps­ins Í al­vöru talað! Gulla er förðun­ar­fræðing­ur, áhuga­leik­ari og tísku­áhuga­kona mik­il og starfar sem versl­un­ar­stjóri í Col­lecti­ons á Hafn­ar­torgi. Lydía er sál­fræðing­ur hjá Sam­kennd heilsu­setri, jóga­kenn­ari og fyr­ir­les­ari. Í þætt­in­um fara þær yfir það helsta er kem­ur að út­liti og tísku fyr­ir haustið. Gulla hef­ur sterk­ar skoðanir á því hvað skal kaupa og hvað skal ekki kaupa. 

„Á haust­in er gott að byrja að vera dug­leg að nota næt­ur­maska eða næt­ur­krem og þétt­ari krem sem gefa meiri raka á dag­inn. Einnig er gott að nota hyaluronic ser­um und­ir krem sem gef­ur mik­inn raka,“ seg­ir Gulla og bend­ir á að það sé gott fyr­ir okk­ur að nota mild­ar sýr­ur til þess að fríska upp á húðina, fjar­lægja dauðar húðfrum­ur og gera húðvör­un­um sem við not­um auðveld­ara fyr­ir að kom­ast inn í húðina.

„Við not­um retínól ekki á sumr­in og því dreg ég það fram og set inn í húðrútín­una á haust­in. En við get­um notað C-víta­mín ser­um á sumr­in. C-víta­mín er góður andox­ari fyr­ir húðina, hæg­ir á öldrun húðar­inn­ar og held­ur húðinni ung­legri og ferskri,“ seg­ir Gulla sem gef­ur gott ráð sem virk­ar ef fólk vill ekki eyða öll­um mánaðarlaun­um sín­um í húðvör­ur. 

„Ef þú þarft að velja á milli, eyddu frek­ar pen­ing­um þínum í gottser­um og keyptu ódýr­ara krem og hreinsi.Ser­um fara dýpra ofan í húðina og hafa þess vegna meiri virkni en krem­in,“ seg­ir hún. 

Gulla mælir með því að konur splæsi í dýr serum …
Gulla mæl­ir með því að kon­ur splæsi í dýr ser­um en ódýr­ari and­lit­skrem. Virg­inia Mar­in­ova/​Unsplash

Kon­ur kvarta stund­um yfir því hvað þær eiga erfitt með að finna sér gott ser­um því það séu til svo óskap­lega marg­ar teg­und­ir. 

„Byrjaðu á því að hugsa hvað þú vilt fá fyr­ir þína húð. Viltu fá þétt­ingu eða viltu fá ljóma? Viltu að farði sitji á fal­legri hátt á húðinni? Vant­ar húðinni meiri raka? Svo er gott að fara í versl­un þar sem er hægt að fá aðstoð og bara spyrja hvað sé best að kaupa. 

Svo er líka alltaf mik­il­vægt að muna eft­ir því að hreinsa húðina á morgn­ana og á kvöld­in, og tvisvar í hvert skipti. Það að þrífa húðina er mjög mik­il­vægt en van­metið atriði í húðum­hirðu. Í fyrra skiptið sem maður hreins­ar húðina fer farðinn af, en í seinna skiptið verður húðin virki­lega hrein,“ seg­ir Gulla. 

Lydía Ósk Ómarsdóttir og Gulla Bjarna.
Lydía Ósk Ómars­dótt­ir og Gulla Bjarna.

Gulla er sér­leg­ur talsmaður þess að fólk sé með húðrútínu og að fólk njóti augna­bliks­ins. Kveiki á kert­um og um­vefji sig með ást og kær­leika. 

„Varðandi hárið er til dæm­is hægt að setja í sig hár­maska til þess að gefa hár­inu auk­inn raka í kuld­an­um,“ seg­ir hún. 

Gulla er á kafi í tísk­unni sem versl­un­ar­stjóri. Hún mæl­ir með því að fólk kaupi sér góðar galla­bux­ur og fal­lega peysu úr ull fyr­ir haustið. 

„Fáðu þér góða kápu og fal­lega en góða skó fyr­ir hálk­una og snjó­inn. Þá ertu vel sett fyr­ir vet­ur­inn,“ seg­ir Gulla. 

Hægt er að hlusta á þátt­inn hér fyr­ir neðan: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda