Áslaug Arna blæs hárið með 110 þúsund króna blásara

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir notar einn eftirsóttasta hárblásara heims, Dyson Airwrap, …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir notar einn eftirsóttasta hárblásara heims, Dyson Airwrap, til að blása á sér hárið. Samsett mynd

Glæsi­leg­ur hár­blást­ur Áslaug­ar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, hef­ur verið áber­andi í umræðunni und­an­farna daga eft­ir um­deild um­mæli Ásgeirs Bolla Ásgeirs­son­ar, sem jafn­an er kennd­ur við versl­un­ina 17, um ung­ar kon­ur.

Ásgeir vill bjóða fram viðbót­arlista fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn und­ir merkj­um DD-lista. Í viðtali á Vísi sagði Ásgeir: „Við erum ekk­ert að leita að ein­hverj­um, hvað á ég að kalla það. Ein­hverj­um ný­út­skrifuðum stúlk­um sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig. Þó ég hafi fulla virðingu fyr­ir ungu fólki þá þurf­um við fólk með reynslu og eitt­hvað fólk sem hef­ur áunnið sér eitt­hvað í líf­inu.“

Áslaug Arna svaraði um­mæl­un­um í færslu á Face­book þar sem hún skrifaði: „Hjá sum­um er Boll­inn alltaf hálf tóm­ur, en hjá „ný­út­skrifuðum” stelp­um með blásið hár og naglalakk er Boll­inn full­ur.“

Einn eft­ir­sótt­asti hár­blás­ari heims

Í kjöl­farið birti hún mynd­band af sér þar sem hún var að blása á sér hárið, en til þess notaði hún hinn fræga Dy­son-hár­blás­ara sem hef­ur slegið ræki­lega í gegn um all­an heim. Hann þykir mik­il bylt­ing í hár­mót­un­ar­brans­an­um þar sem hann bæði þurrk­ar og stíliser­ar hárið á sama tíma. 

Með hár­blás­ar­an­um fylgja svo ýms­ir auka­hlut­ir, en hann er einnig með mis­mun­andi hraðastill­ing­ar og hitastill­ing­ar, þar á meðal kalt loft sem á að fara mun bet­ur með hárið. Hér á Íslandi fæst hár­blás­ar­inn í versl­un­um Elko og hjá Heim­ilis­tækj­um og kost­ar 109.995 krón­ur.

Áslaug Arna birti myndband af sér með Dyson-hárblásarann á Instagram.
Áslaug Arna birti mynd­band af sér með Dy­son-hár­blás­ar­ann á In­sta­gram. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda