Líkja fatastíl Stefáns Einars við Wayne Rooney

Stefán Einar Stefánsson klæðist hér röndóttri Ralph Lauren peysu.
Stefán Einar Stefánsson klæðist hér röndóttri Ralph Lauren peysu.

Röndótta rugby-peysan sem fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson klæðist gjarnan hefur vakið mikla athygli síðustu daga. Svo mikla að þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir, sem halda úti vinsæla hlaðvarpinu Komið gott, tóku hana fyrir í nýjasta þættinum sem kom út í gær. Þar segja þær Stefán Einar eiga sér augljósa tískufyrirmynd. 

„Ég hef náttúrulega verið dálítið hrifin af því að hann hefur verið að taka að sér, eða er greinilega inspíreraður af hans tísku-íkoni sem virðist vera Wayne Rooney,“ segir Ólöf.

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP/Glyn Kirk

Stæl-íkon sem heitir Wayne Rooney

„Ég hef séð þegar þeir eru stundum með svona opin hlaðvörp eða live-podcöst, en þar er hann SES að vinna með ólíka liti af rugby-skyrtunni. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta. Ég er ekki að hafna þessu eða neitt svona en ég er bara að benda á hið augljósa og það er að hann er með stæl-íkon sem heitir Wayne Rooney.“

„Eins og þú segir með litina. Þetta er eins og Angela Merkel með jakkana, þetta er landamæraleysi í litavali,“ bætir Kristín við.

Peysan er frá Polo Ralph Lauren og fæst í Herragarðinum í nokkrum litaútfærslum.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.

Rugby-peysan í rauðu og bláu.
Rugby-peysan í rauðu og bláu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál