Hönnuður Louis Vuitton hannar fyrir íslenskt útivistarmerki

Hönnuðurinn Kei Toyos­hima á heiðurinn af nýrri línu frá íslenska útivistarmerkinu 66°Norður. Toyos­hima er hönnuður hjá Louis Vuiotton en hann hefur einnig starfað fyrir Bottega Veneta og fleiri þekkt tískuhús. Hann er japanskur og var ráðinn inn sem listrænn stjórnandi hjá 66°Norður og er þessi nýja lína afrakstur þess samstarfs.  

Vörulínan er tileinkuð kríunni og ferðalagi hennar með skírskotun í lífstíl ferðalanga í huga. Krían hefur verið áberandi í áratugi á fatnaði fyrirtækisins og er engin breyting þar á en Kríu logo-ið og 66°Norður á íslensku í formi texta eru áberandi á flíkum og einnig má finna grafískt mynstur byggt á kríueggjum. 

Vörulínan er að mörgu leiti nýstárleg en er þó söm við sig og heldur í gamlar hefðir en fyrirtækið var stofnað 1926. Í línunni má finna vörur sem hægt er að klæðast á réttu og röngunni með mismunandi útliti og notagildi líkt og Ægisíða úlpan og Ægisíða jakkinn. 

Einnig má finna vörur sem byggðar eru á vinnufatnaði og úlpum sem hafa verið í vörulínum 66°Norður í gegnum tíðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál