Halla mætti í sérsaumuðum fötum sem hún hefur notað áður

Halla Tómasdóttir brosti eins og sólin þegar hún mætti til …
Halla Tómasdóttir brosti eins og sólin þegar hún mætti til veislu í Nordatlantens Brygge. Ida Marie Odgaard/Ritzau Scanpix

Halla Tóm­as­dótt­ir for­seti Íslands er stödd í Kaup­manna­höfn í sinni fyrstu rík­is­heim­sókn og hef­ur hver ein­asta mín­úta verið þaul­skipu­lögð. Fyr­ir stuttu mætti Halla í veislu í Nor­datlantens Bryg­ge í Kaup­manna­höfn. Veisl­an var með óform­legra sniði en gala­kvöld­verður­inn sem fram fór í Kristjáns­borg­ar­höll í gær­kvöldi. 

Halla klædd­ist sérsaumuðum föt­um sem hönnuð eru af Björgu Inga­dótt­ur sem oft er kennd við Spaks­manns­spjar­ir. 

Björg hannaði dressið í sum­ar

Björg hannaði pilsið og blúss­una á Höllu í sum­ar. Hún klædd­ist því á Bessa­stöðum í kvöld­boði sem haldið var 3. ág­úst eða sama dag og hún tók form­lega við for­seta­embætt­inu. Fyrr um dag­inn klædd­ist hún ljósu dressi sem Björg hannaði einnig. 

Hér sést Halla í dressinu sem Björg Ingadóttir hannaði á …
Hér sést Halla í dress­inu sem Björg Inga­dótt­ir hannaði á hana. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix

Pilsið og blúss­an sem Halla klædd­ist rétt í þessu í Kaup­manna­höfn sam­an­stend­ur af síðu pilsi sem kem­ur ör­lítið út að neðan sem ger­ir það að verk­um að það þarf ekki að hafa á því klauf. Við pilsið var hún í blússu úr sama efni með stand­kraga sem hafður er niður. Við blúss­una er lít­ill tref­ill sem er bleik­ur öðrum meg­in og vín­rauður hinum meg­in. 

Ólög­legt fata­sam­ráð?

Danska press­an grínaðist með það að Halla, Friðrik Dana­kon­ung­ur og Mary Dana­drottn­ing hefðu haft sam­ráð um klæðaburð því litap­all­ett­an var í stíl. Friðrik Dana­kon­ung­ur var með vín­rautt bindi í stíl við fatnað Höllu og Mary Dana­drottn­ing var með vín­rauðar var­ir og skart­gripi með vín­rauðum eðal­stein­um. Ein­hver gæti haldið því fram að um ólög­legt fata­sam­ráð væri að ræða. En samt ekki. Vín­rauður er einn af þeim lit­um sem er mest móðins í haust­tísk­unni sem nú rík­ir. Svo má ekki gleyma því að vín­rauðir eðal­stein­ar, dem­ant­ar og vönduð efni detta aldrei úr móð. Það að nota sama dressið tvisvar er líka bara meira en í lagi. Megi Halla nota þetta vín­rauða dress sem oft­ast! 

Björn Skúlason, Friðrik Danakonungur, Mary Danadrottning og Halla Tómasdóttir forseti …
Björn Skúla­son, Friðrik Dana­kon­ung­ur, Mary Dana­drottn­ing og Halla Tóm­as­dótt­ir for­seti Íslands. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix
Björn Skúlason, Halla Tómasdóttir, Friðrik Danakonunungur og Mary Danadrottning. Ef …
Björn Skúla­son, Halla Tóm­as­dótt­ir, Friðrik Dana­kon­un­ung­ur og Mary Dana­drottn­ing. Ef vel er rýnt í klæðaburð má sjá sam­hljóm í litap­all­ett­unni. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix
Friðrik Danakonungur og Mary Danadrottning. Hann var með vínrautt bindi …
Friðrik Dana­kon­ung­ur og Mary Dana­drottn­ing. Hann var með vín­rautt bindi og hún skreytti sig með vín­rauðum eðal­stein­um. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix
Hjónin Hjalti Sigvaldason Mogensen og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir voru …
Hjón­in Hjalti Sig­valda­son Mo­gensen og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir voru glæsi­leg þegar þau mættu í veisl­una. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix
Halla var með tösku frá Tori Burch sem er vinsælt …
Halla var með tösku frá Tori Burch sem er vin­sælt am­er­ískt lúxusvörumerki. Task­an fer vel við dressið enda í sama lit. Ida Marie Od­ga­ard/​Ritzau Scan­pix
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda