Prinsessa vakti athygli í hettupeysu og joggingbuxum

Charlene mætti í hettupeysu og þótti óvenju sportleg. Þá bar …
Charlene mætti í hettupeysu og þótti óvenju sportleg. Þá bar hún Louis Vuitton sólgleraugu. Skjáskot/Instagram

Charlene prinsessa af Mónakó vakti mikla undrun á dögunum þegar hún mætti í opinbera heimsókn í hettupeysu og jogging buxum. Heimsóknin var á svokallað Rokethon Race sem er morgunganga til þess að vekja athygli á velferð dýra. Í tilefni af því hefur hún ákveðið að nýta tækifærið og skarta látlausara útliti en vanalega.

Prinsessan þykir almennt mikill tískufrömuður og þykir með þeim best klæddu í heiminum í dag. Hún er líka alltaf óhrædd við að prófa eitthvað nýtt og framandi. Djarfir samfestingar eru í sérstöku uppáhaldi hjá henni og er rauði liturinn í uppáhaldi. 

Eins er hún dugleg að breyta hárinu og er hún nú að leyfa því að vaxa eftir að hafa haft það stutt í þó nokkurn tíma.

Sjaldan sést til Charlene jafn óformleg til fara. Hún er …
Sjaldan sést til Charlene jafn óformleg til fara. Hún er oftast í sínu fínasta pússi. Hér valdi hún hvíta strigaskó við annars látlaust útlitið. Skjáskot/Instagram
Charlene mætti á
Charlene mætti á "Pique Nique Monegasque" í hárauðum samfestingi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda