Ný skartgripalína frá Laufeyju

Línan var gerð í samstarfi við skartgripaverslunina Catbird í New …
Línan var gerð í samstarfi við skartgripaverslunina Catbird í New York. Ljósmynd/Instagram

Íslenska jazzsöngkonan Laufey Lín Jónsdóttir hannaði skartgripalínu í samstarfi við amerísku skartgripaverslunina Catbird. Í línunni eru sex mismunandi skartgripir, allt frá armböndum yfir í hringi, eyrnalokka og hálsmen. Laufey segir þetta vera skartgripi drauma sinna.

„Ég bjó þetta til fyrir þig og mig. Gullkanínur æsku minnar, slaufur, bláir tónar og hringir fyrir brotið hjarta og gleði. Líka eitt sérstakt hjarta fyrir Lauvers,“ skrifar hún á Instagram. „Lauvers“ er það orð sem hún á yfir aðdáendur sína.

„Hver gripur er búinn til með svo mikilli ást og er til í 100% endurunnu gulli og silfri.“ 

Vörur úr línunni eru á verðbilinu 6.600 krónum og yfir í 110.000 krónur. Þá er hringur með ljósfjólubláum steini sá dýrasti í línunni.

Hún hannaði línuna fyrir aðdáendur sína með minningum úr æsku. …
Hún hannaði línuna fyrir aðdáendur sína með minningum úr æsku. Hringurinn með ljósfjólubláasteininum er dýrasti gripurinn í línunni. Ljósmynd/Instagram
Falleg hálsmen.
Falleg hálsmen. Ljósmynd/Instagram
Fallegur hringur með pastelfjólubláum steini.
Fallegur hringur með pastelfjólubláum steini. Ljósmynd/Instagram
Glæsilegir stjörnuhringir sem koma í gulli og silfri.
Glæsilegir stjörnuhringir sem koma í gulli og silfri. Ljósmynd/Instagram
Krúttlegt hálsmen með kanínu og tungli.
Krúttlegt hálsmen með kanínu og tungli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda