Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir vakti athygli í ólífugrænni mynstraðri „jacquard“ setti þegar hún mætti í Spursmál til Stefáns Einars á dögunum. Þá voru skyrtan og buxurnar í stíl, í sama lit og efni.
Fyrir upptekna konu eins og Þórdísi er sniðugt að klæðast settum sem þessum. Fötin passa alltaf saman, eru þægileg og tekur enga stund að ákveða hverju á að klæðast. Því þarf varla að leiða hugann að fatnaðinum þegar mikið annað tekur pláss í höfðinu.
Skyrtan og buxurnar eru úr tískuvöruversluninni Momo sem rekur tvær verslanir, aðra í Nóatúni 17 og hina á Garðatorgi í Garðabæ. Skyrtan er bundin um mittið sem gerir hana aðsniðnari og býr til skemmtileg smáatriði. Buxurnar eru með teygju í mittið og ef þessu er klæðst saman þá lítur þetta út eins og flottur samfestingur. Settið er til í nokkrum mismunandi litum.
Skyrtan kostar 23.990 krónur og buxurnar 24.990 krónur. Verðið á settinu er því 48.980 krónur.
Sérstakur jacquard-vefstóll var fundinn upp árið 1804 af textílhönnuðinum Joseph Marie Jacquard. „Jacquard-efni“ verður til þannig að mynstrið er ofið í efnið en ekki prentað. Þetta er oft gert þannig að bæði efnið og mynstrið er í sama lit en aðeins annarri áferð. Jacquard-efni er einnig þekkt undir öðrum nöfnum eins og damask, matlassé og brocade.
Þau efni sem eru með mynstrið ofan í efnið líkjast jacquard-efnum en strangt til tekið má aðeins kalla þau sem hafa verið ofin í jacquard-vefstól bera nafnið.