Íslenskar konur með næststærstu brjóstin

Rannsakendum virðist ekki hafa dottið í hug að taka brjóstastækkanir …
Rannsakendum virðist ekki hafa dottið í hug að taka brjóstastækkanir kvenna inn í jöfnuna. Jon Ly/Unsplash

Sam­kvæmt nýrri alþjóðlegri rann­sókn eru norsk­ar kon­ur með stærstu brjóst­in en meðal­skála­stærð þeirra er C og D.

Rann­sókn­in var fram­kvæmd af World Pop­ulati­on Review og skoðaðar voru brjósta­stærðir kvenna í 108 lönd­um. Þetta kem­ur fram á norska miðlin­um Dag­bla­det.

Norsk­ar kon­ur hafna efst­ar á lista sem kem­ur rann­sak­end­um á óvart þar sem al­vana­legt er að brjósta­stærð hald­ist í hend­ur við lík­amsþyngd­arstuðul­inn BMI. Þær norsku hafa BMI-stuðul­inn 26,2 að meðaltali, sem telst til yfirþyngd­ar.

Hins veg­ar er stuðull norskra kvenna lægri en kvenna í Banda­ríkj­un­um, með 29 að meðaltali, og á Bretlandi, með 27,1 að meðaltali. Bæði Banda­rík­in og Bret­land deila öðru sæti með Íslandi og Lúx­em­borg þegar kem­ur að brjósta­stærð kvenna, en meðal­skála­stærð kvenna í lönd­un­um fjór­um er C.

Þess má geta að þyngd­arstuðull ís­lenskra kvenna er lægri en allra of­an­greindra landa og er 25,6 að meðaltali.

Minnstu skála­stærðirn­ar er að finna í Mið-Afr­íku og Suðaust­ur-Asíu.

Rann­sak­end­ur telja að erfðaþætt­ir geti út­skýrt stærri brjósta norskra kvenna miðað við Bret­land og Banda­rík­in, þrátt fyr­ir að þyngd­arstuðull­inn sé lægri. Nokkr­ir þætt­ir geta haft áhrif á brjósta­stærð; erfðir, mataræði, lík­amsþyngd og ald­ur, sam­kvæmt World Pop­ulati­on Review.

Dag­bla­det

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda