Áslaug Arna klæddist sjö ára gamalli útsöludragt

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti framboð sitt í Sjálf­stæðissaln­um og klæddist …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti framboð sitt í Sjálf­stæðissaln­um og klæddist sjö ára gamalli dragt við það tilefni. mbl.is/Hákon

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins legg­ur upp úr því að vera vel til höfð og fín til fara, bæði í vinnu og einka­lífi. Það kom því ekk­ert á óvart að hún hafi verið óaðfinn­an­leg í tauinu þegar hún til­kynnti fram­boð sitt til for­manns flokks­ins sem fram fór í Sjálf­stæðissaln­um á dög­un­um. Áslaug Arna skartaði blárri dragt og var í ljós­um toppi inn­an und­ir. 

Dragt­in er þó ekki al­veg ný af nál­inni því Áslaug Arna keypti hana fyr­ir sjö árum á Kast­rup flug­velli í Dan­mörku. Dragt­in er frá Day Bir­ger et Mikk­el­sen sem er danskt gæðamerki og var á út­sölu þegar hún var keypt. Efnið er með fín­legu munstri sem gef­ur meiri svip. 

Tísku­merkið var stofnað í Kaup­manna­höfn árið 1997 og var mark­miðið að ýta und­ir það að kon­ur gætu verið smart til fara. Mikið lagt upp úr góðum efn­um og sniðum sem skipt­ir svo sann­ar­lega máli í lífi þeirra sem vilja ná lengra.  

Hér­lend­is er hægt að kaupa hönn­un­ina hér­lend­is í versl­un­um NTC en eins og dragt Áslaug­ar Örnu sann­ar búa föt­in fyr­ir tíma­laus­um el­eg­ans! 

Hér fyr­ir neðan er hægt að skoða mynd­ir af viðburðinum: 

Dragtin er vel sniðin og úr góðum efnum.
Dragt­in er vel sniðin og úr góðum efn­um. mbl.is/​Há­kon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda