Kjóll Kristrúnar er löngu uppseldur

Kjóllinn er augljóslega í miklu uppáhaldi hjá forsetisráðherranum.
Kjóllinn er augljóslega í miklu uppáhaldi hjá forsetisráðherranum. Samsett mynd

Kristrún Frosta­dótt­ir for­set­is­ráðherra klædd­ist praktísk­um og klæðileg­um kjól við þing­setn­ing­una í dag. Kjóll­inn er frá danska fata­merk­inu Sam­søe Sam­søe sem hef­ur verið mjög vin­sælt hér á landi. 

Þing­setn­ing­in hófst með þing­setn­ing­ar­at­höfn Siðmennt­ar en hefðbund­in þing­setn­ing­ar­at­höfn hófst 13.30 með guðsþjón­ustu í Dóm­kirkj­unni. Þaðan héldu þing­menn yfir í Alþing­is­húsið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún klæðist kjóln­um held­ur notaði hún hann á blaðamanna­fundi nýrr­ar rík­is­stjórn­ar Sam­fylk­ing­ar, Viðreisn­ar og Flokks fólks­ins þar sem stjórn­arsátt­máli rík­is­stjórn­ar­inn­ar var kynnt­ur í des­em­ber á síðasta ári.

Kjóll­inn er aug­ljós­lega í upp­á­haldi enda þægi­leg flík sem auðvelt er að grípa í. Kjóll­inn nær að ökkla og er lan­germa í ólífug­ræn­um lit. Yfir kjól­inn klædd­ist hún ljósri og síðri kápu.

Kristrún klæddist ljósri kápu yfir kjólinn og svörtum stígvélum.
Kristrún klædd­ist ljósri kápu yfir kjól­inn og svört­um stíg­vél­um. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
Frá guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
Frá guðsþjón­ustu í Dóm­kirkj­unni. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

82% nælon á móti 18% teygju

Kjóll­inn er úr 82% polyami­de, sem er einnig þekkt sem nælon, á móti 18% af teygju. Þetta ger­ir það að verk­um að kjóll­inn verður ein­stak­lega þægi­leg­ur. Kjóll­inn fékkst í GK Reykja­vík en er upp­seld­ur.

Þetta er þó klass­ískt snið frá merk­inu og áætla má að svipaður kjóll komi aft­ur í versl­an­ir en lík­leg­ast í öðrum lit­um.

Á vefsíðu Sam­søe Sam­søe kost­ar kjóll­inn 24 þúsund krón­ur á fullu verði. Hann er hins veg­ar á út­sölu núna og fæst á rúm­lega 14 þúsund krón­ur.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við þingsetninguna.
Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra við þing­setn­ing­una. mbl.is/​Karítas
Kristrún klæddist sama kjól í desember á síðasta ári.
Kristrún klædd­ist sama kjól í des­em­ber á síðasta ári. mbl.is/​Eyþór
Kjóllinn er frá danska merkinu Samsøe Samsøe.
Kjóll­inn er frá danska merk­inu Sam­søe Sam­søe.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda