Dýrleif farðaði Gróu mömmu sína

Gróa Margrét Finnsdóttir skartaði sínu fegursta eftir að dóttir hennar …
Gróa Margrét Finnsdóttir skartaði sínu fegursta eftir að dóttir hennar farðaði hana.

Dýr­leif Sveins­dótt­ir förðun­ar­fræðing­ur fékk það verk­efni að farða móður sína, Gróu Mar­gréti
Finns­dótt­ur, sem er á besta aldri. Hún seg­ir að það skipti máli að næra húðina vel áður en hún er förðuð og raki sé lyk­il­atriði ef mark­miðið sé að töfra fram það besta.

„Á húðina notaði ég Vital Per­fecti­on-lín­una frá Shiseido. Vital Per­fecti­on þétt­ir og slétt­ir húðina ásamt því að lyfta og móta um­gjörð and­lits­ins. Húðin fær jafn­ari og bjart­ari ásýnd og hent­ar því sér­stak­lega vel fyr­ir þroskaðri húð. Mik­il­vægt er að hefja ferlið með hreinni húð, því er Refres­hing Cle­ans­ing Water frá Shiseido til­var­in vara í und­ir­bún­ing húðar­inn­ar,“ seg­ir Dýr­leif.

„Á húðina notaði ég Vital Perfection-línuna frá Shiseido. Vital Perfection …
„Á húðina notaði ég Vital Per­fecti­on-lín­una frá Shiseido. Vital Per­fecti­on þétt­ir og slétt­ir húðina ásamt því að lyfta og móta um­gjörð and­lits­ins,“ seg­ir Dýr­leif.

Þar á eft­ir bar hún El­iza­beth Arden 8 Hour Lip Protect­ant á var­irn­ar til að næra þær vel og gefa þeim auk­inn raka.

„Því næst setti ég Vital Per­fecti­on-augn­maska frá Shiseido, sem er virk­ur maski með retónóli sem vinn­ur hratt á lín­um, þrota og baug­um. Gott er að láta þá liggja und­ir aug­un­um í að minnsta kosti 15 mín­út­ur. Retínól er eitt öfl­ug­asta inni­halds­efnið til að virkja og styrkja kolla­genfrum­urn­ar í húðinni, en það eru þær sem halda hrnni ung­legri og geislandi,“ seg­ir hún.

Dýrleif fór mjúkum höndunum um húð móður sinnar.
Dýr­leif fór mjúk­um hönd­un­um um húð móður sinn­ar.

Næst setti hún Eu­derm­ine Acti­vat­ing Essence frá Shiseido á húðina sem inni­held­ur mýkj­andi formúlu sem fyll­ir húðina raka.

„Vital Per­fecti­on-augnkremið frá Shiseido er því næst sett und­ir aug­un, ásamt Vital Per­fecti­on Ser­um yfir allt and­litið. Formúl­an í serum­inu mót­ar and­lits­drætti og gef­ur húðinni C-víta­mín sem eyk­ur kolla­genfram­leiðslu og dreg­ur úr lita­blett­um í and­liti,“ seg­ir Dýr­leif sem endaði á því að bera Vital Per­fecti­on Advanced-dag­kremið frá Shiseido á húðina.

Dýrleif rammaði augun inn með augnblýanti.
Dýr­leif rammaði aug­un inn með augn­blý­anti.

Farði sem fyll­ir upp í húðhol­ur

Þá var komið að því að setja þunnt lag af Cl­ar­ins In­st­ant Smooth Pri­mer á húðina en hann fyll­ir upp í húðhol­ur og skil­ur húðina eft­ir matta, mjúka og slétta. Því næst setti Dýr­leif farðann Shiseido Radi­ant Lift­ing Foundati­on á and­litið sem veit­ir miðlungs til fulla þekju með ljós­leiðrétt­ing­ar­tækni.

„Farðinn er prófaður af húðlækn­um og bind­ur raka í húðinni í 24 klukku­stund­ir ásamt því að inni­halda SPF 30. Því næst var sett und­ir aug­un Shiseido Skin Self Refres­hing Conceal­er. Það besta við þenn­an hylj­ara er að formúl­an er vatns­held, svita­held og smit­ast ekki og gef­ur húðinni raka. Næsta skref var að fá smá lit í and­litið með Cl­ar­ins-sólar­púðrinu og fal­leg­um og hlýj­um kinna­lit frá Gu­erlain í litn­um 02,“ seg­ir hún.

„Því næst setti ég Vital Perfection-augnmaska frá Shiseido, sem er …
„Því næst setti ég Vital Per­fecti­on-augn­maska frá Shiseido, sem er virk­ur maski með retónóli sem vinn­ur hratt á lín­um, þrota og baug­um. Gott er að láta þá liggja und­ir aug­un­um í að minnsta kosti 15 mín­út­ur. Retínól er eitt öfl­ug­asta inni­halds­efnið til að virkja og styrkja kolla­genfrum­urn­ar í húðinni, en það eru þær sem halda hrnni ung­legri og geislandi,“ seg­ir Dýr­leif.

Áhersla á vel förðuð augu

Dýr­leif byrjaði á því að móta auga­brún­ir móður sinn­ar með Gu­erlain Brow Pencil.

„Ég mæli með að nýta burst­ann á end­an­um á penn­an­um og bursta vel í gegn­um auga­brún­irn­ar eft­ir að lit­ur­inn er sett­ur í. Fyr­ir fal­lega og seiðandi augn­förðun notaði ég nýju augnskuggapall­ett­una frá Gu­erlain í litn­um Ombres G 129, Ho­ney Am­ber. Inn í vatns­lín­una setti ég The In­ten­se Colour Eye Pencil-augn­blý­ant­inn frá Gu­erlain í litn­um 02 – Brown Earth. Því næst bretti ég augn­hár­in með Shiseido-brett­ar­an­um og setti XXL-maskar­ann frá Cl­ar­ins á augn­hár­in. Maskar­inn leng­ir og þykk­ir augn­hár­in, en hann inni­held­ur phant­henol sem styrk­ir augn­hár­in,“ seg­ir hún.

Dýr­leif seg­ir að það skipti máli að nota und­ir­lag á var­irn­ar og í þessu til­felli notaði hún Lip Lift-pri­mer­inn frá Gu­erlain áður en hún bar Gu­erlain-varalit á var­irn­ar í litn­um Sat­in nr. 11. Hún setti svo varalita­blý­ant í litn­um 03 í kring­um var­irn­ar eft­ir að hún bar varalit­inn á.

Í blá­lok­in úðaði hún El­iza­beth Arden Eig­ht Hour Hydrat­ing Mist-raka­spreyi á and­litið því það hef­ur að geyma ríku­legt magn af andoxun­ar­efn­um og víta­mín­um.

„Húðin fær nær­ingu og heil­brigðara út­lit. Spreyið má nota á morgn­ana, eft­ir æf­ingu, á kvöld­in, eft­ir að þú ert búin að mála þig eða bara hvenær sem húðin kall­ar á auk­araka,“ seg­ir Dýr­leif.

Hér er Dýrleif að farða augu móður sinnar.
Hér er Dýr­leif að farða augu móður sinn­ar.
Maskari rammar inn augun og gefur meiri svip.
Maskari ramm­ar inn aug­un og gef­ur meiri svip.
Varalitablýantur er mikið þarfaþing og gerir í raun miklu meira …
Varalita­blý­ant­ur er mikið þarfaþing og ger­ir í raun miklu meira fyr­ir vara­svæðið en kon­ur átta sig á.
Hér er Dýrleif að leggja lokahönd á verkið með því …
Hér er Dýr­leif að leggja loka­hönd á verkið með því að púðra kinn­arn­ar.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda