Máttu eiginlega ekki við aukinni fegurð

Sara Reginsdóttir geislaði af fegurð en hér er búið að …
Sara Reginsdóttir geislaði af fegurð en hér er búið að farða hana með nýja farðanum frá Guerlain og setja á hana augnskugga og kinnalit. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir

Dýr­leif Sveins­dótt­ir farðaði Söru Reg­ins­dótt­ur, flug­freyju hjá Icelanda­ir og jóga­kenn­ara, með splunku­nýj­um farða frá Gu­erlain. Sara mátti eig­in­lega ekki við því að verða sæt­ari en það er nú bara eins og það er. Sara var þó ekki sú eina sem iðaði af þokka því dís­irn­ar í boðinu voru þónokkr­ar.

Farðinn sem Sara prófaði heit­ir Terracotta Le Teint og ger­ir yf­ir­bragð húðar­inn­ar nátt­úru­legt en líka ljóm­andi. Í leiðinni setti Dýr­leif augnskugga, skyggði and­litið og gerði allt þetta sem við hinar vilj­um kunna svo við get­um reynt að vera eins og Sara. Dýr­leif byrjaði á að næra húðina vel áður en farðinn var sett­ur á. Hún notaði bæði ser­um og dag­krem úr Abeille Royal-lín­unni frá Gu­erlain en þessi tvenna styrk­ir ysta lag húðar­inn­ar og veit­ir raka og fyll­ingu.

„Þegar ég ber farðann á finnst mér best að byrja á miðju and­lit­inu en það er svæðið sem við þurf­um oft­ast mestu þekj­una. Ég set farðann á allt and­litið en ekki und­ir aug­un. Und­ir aug­un set ég hylj­ar­ann. Ef ég myndi setja farðann líka und­ir aug­un þá væri of mik­il þekja að mínu mati. Hylj­ar­inn gef­ur létt­ari og bjart­ari þekju,“ seg­ir Dýr­leif.

Hún setti Terracotta lig­ht 03-bronzer­inn á kinn­bein­in, á kinn­ar og upp að gagn­auga. En líka efst á ennið, á kjálkalínu og ör­lítið á nefið.

„Kinna­lit­inn set ég svo á kinn­beinið og í átt að kinn­um, en ég hef hann frek­ar ofar á kinn­um en neðar til að fá „lyft­ingu“. Þegar við setj­um á okk­ur bronzer eða kinna­lit í kinn­ar vilj­um við passa að fara ekki of ná­lægt nef­inu. Mér finnst gott að miða við aug­un, en ef við horf­um beint í speg­il ætti bronzer­inn að mild­ast í línu við auga­stein­inn en kinna­lit­ur­inn við augað en ekki augn­um­gjörðina,“ seg­ir Dýr­leif.

Hvað um aug­un?

„Ég byrja á að skyggja létt augn­beinið með Terracotta-sólar­púðrinu en mér finnst best að nota blönd­un­ar­bursta til að fá nátt­úru­lega áferð. Þar næst setti ég lit nr. 03 í Ombre G 129 Ho­ney Am­ber-litap­all­ett­unni und­ir augn­beinið til að ljá aug­un­um meiri dýpt. Í lok­in setti ég lit nr. 02 á ytra augn­lokið við augn­hár­in og blandaði upp á mitt augn­lokið og inn að miðju,“ seg­ir hún.

Auga­brún­irn­ar eru sér­lega fal­lega mótaðar. Hvað sett­ir þú í þær?

„Þegar ég fylli í brún­irn­ar þá byrja ég á því að nota greiðuna og greiði hár­in upp. Þá sé ég hvernig þau liggja og hvar ég þarf mestu fyll­ing­una. Ég nota síðan létt­ar stutt­ar strok­ur þegar ég fylli inn í þær,“ seg­ir Dýr­leif sem notaði Brow G Medi­um Brown-blý­ant­inn.

Hvað um var­irn­ar?

„Þegar kem­ur að varalit skipt­ir öllu máli að nota varalita­grunn en þá helst varalit­ur­inn bet­ur á og fer síður að renna í lín­urn­ar í kring­um munn­inn. Ég nota síðan var­blý­ant til að teikna út­lín­ur en nota stutt­ar strok­ur til að ná beinni línu. Síðan set ég varalit­inn á.“

Andrea Magnúsdóttir, fatahönnuður og eigandi Andreu í Hafnarfirði, kynnti sér …
Andrea Magnús­dótt­ir, fata­hönnuður og eig­andi Andr­eu í Hafnar­f­irði, kynnti sér helstu töfra nýs farða. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Pattra Sriyanonge og Anna Kristín Óskarsdóttir spáðu í spilin.
Pattra Sriyanonge og Anna Krist­ín Óskars­dótt­ir spáðu í spil­in. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Helga Kristjánsdóttir ritstjóri Hér fann hún rétta litinn með því …
Helga Kristjáns­dótt­ir rit­stjóri Hér fann hún rétta lit­inn með því að prófa sig áfram. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Mæðgurnar Birgitta Líf Brandsdóttir og Þórunn Högnadóttir.
Mæðgurn­ar Birgitta Líf Brands­dótt­ir og Þór­unn Högna­dótt­ir.
Aqua Allegoria Rosa Verde-ilmurinn frá Guerlain fékk að vera með …
Aqua Alleg­oria Rosa Ver­de-ilm­ur­inn frá Gu­erlain fékk að vera með í teit­inu. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Terracotta-sólarpúðrið er sérlega vinsælt en það er hægt að nota …
Terracotta-sólar­púðrið er sér­lega vin­sælt en það er hægt að nota það til að skyggja and­litið og líka sem augnskugga. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Það var vinsælt að úða á sig örlitu magni af …
Það var vin­sælt að úða á sig ör­litu magni af San­tal Royal sem ilm­ar vel. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Dýrleif settti Abeille Royale-serumið á andlitið á Söru Regins áður …
Dýr­leif settti Abeille Royale-serumið á and­litið á Söru Reg­ins áður en hún setti dag­krem á húðina og svo farðann. Ljós­mynd/​Re­bekka Marinós­dótt­ir
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda