Þriðja sería af þáttunum The White Lotus hefur fengið misjafna dóma síðan hún kom út en það er eitt sem ekki verður deilt um: öll fagurfræði er upp á tíu. Tískan, stíliseringin og umhverfið er næg ástæða til að horfa á þættina og njóta.
Einn aðalkarakter þáttanna, Rick Hatchett sem leikinn er af Walton Goggins, hefur slegið í gegn í hlutverkinu. Hatchett heimsækir hótelið með kærustu sinni, Chelsea, sem er leikin af Aimee Lou Wood. Hatchett skortir lífsgleði og eitthvað er á bak við dvöl hans á hótelinu.
Stíllinn hans fer vel við karakterinn en hann er hrár og reittur. Svokallaðar Hawaii-stuttermaskyrtur eru staðalbúnaður í fataskápnum hans, hnepptar aðeins hálfa leið.
Hawaii-skyrtur minna á suðrænar slóðir. Mynstrið er litríkt, stundum um of og pálmatrén í mynstrinu ómissandi. Þær eru með stuttum ermum og oft sniðlausar. Slíkar skyrtur fást á mörkuðum um heim allan, illa saumaðar og hræódýrar. Skyrtan hentar öllum kynjum. Auðvitað er hægt að finna þær hjá dýrari tískuhúsum líka og er eflaust meira lagt í þær.
Hawaii-skyrtur hafa einnig verið kallaðar aloha-skyrtur en uppruna þeirra má rekja til eyjunnar. Þær eru með kraga, hnepptar, yfirleitt með stuttum ermum og í mynstruðu efni. Stíll þeirra er oft kenndur við afslappaðan lífsstíl sem einkennir eyjuna.
Skærbleik Hawaii-skyrta gengur á milli starfsmanna á skrifstofu Smartlands. Skyrtan var keypt í Dóminíska lýðveldinu, er skreytt pálmatrjám og uppfyllir þau skilyrði sem nefnd eru hér fyrir ofan. Blaðamaður fékk skyrtuna lánaða til Tenerife fyrr á árinu og hyggst reyna halda henni aðeins lengur. Það verður hins vegar erfitt því það er slegist um hana.